Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 112

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 112
persónulegur sem hann er, fullur af vörumerkj- um höfundar síns og órjúfanlegur frá sjálfri frásögninni. Hann hefur sinn sjarma í tiktúrum sínum sem eru fáar til ama, helst er að orðaröð sé einkennileg: „ ... þótt þú hafir skeint hana í lífinu á bænum“ (bls. 73), eða fullmikið sé af fomöfnum: „í sömu svifum fór móðir hennar að bogra í höfðinu á henni. Hún sneri við henni baki. Telpan tók um herðar henni og lagði hana aftur á bak“ (bls. 53). Þama veit maður ekki hvor hún þeirra er hvor hún. Þá kemur fyrir að líking gangi ekki upp þó falleg sé: „Ljós nóttin var einslags draumur langra daga sem þverra aldrei alveg og týnast því ekki í næturmyrkrið, heldur logaði á þeim eins og sílýsandi lampa í nóttinni“ (bls. 54—55). Þama er nóttinni líkt við hlut sem síðan er í henni. En þetta eru aðeins litlar kvartanir um bók sem endalaust væri hægt að velta sér upp úr og verðurvonandi gert. Stíll ogefni farasaman líkt og sögupersónurnar fara með dýrunum og nátt- úrunni. Það er sem veðráttan hagi sér í samræmi við líðan fólksins, bregður skýjum á loft eftir langan þurrk til þess eins að því leiðist ekki og telpan reynir „ . . . að anda hljóðlega til að styggja ekki kyrrðina“ (bls. 14). Það er þessi gagnkvæma háttvísi sem er eitt það fallegasta í bókinni, auk þeirrar næmu athygli sem dýrin fá. Hestar, kýr og hundar verða fullgildar persónur og virðast telpunni „ . . . jafnvel miklu mann- legri. . .“ (bls. 32) en fólkið. Hestur veit ekki hvort hann má hreyfa sig „ ... af tillitssemi við harminn í huga mannsins sem húkti á baki hans“ (bls. 125) og það glampar fallega á línur eins og þessar: „ ... næturfriðurinn lagðist yfir og virtist jafnvel ógna hundunum. Geigur greip þá við kyrrð og fegurð jarðarinnar, því að þeir ráku upp hræðslukennt gjamm stöku sinnum og urruðu andspænis engu sérstöku" (bls. 27). Þama, líkt og víðar í bókinni, nær Guðbergur sterkum „spiritual“ áhrifum á einfaldan hátt og án þess að þurfa að styðja sig við gamla geist- lega drauga úr trú eða hjátrú. Hann birtir okkur hina hversdagslegu eilífð og skrifar um hið ójarðneska á jarðbundinn hátt, hið yfimáttúrulega með náttúmstemningum og nær því að vera andlegur á mjög materíalískan hátt, sem að líkindum er eina leiðin fyrir bók- menntir að fara nú á trúlausum tíma þegar fólk sækir sitt andlega brauð í hljóðgerfla og heila- hvíldamámskeið. Svo lengi deyr sem lifir Tvífættu persónumar em, líkt og þær fjórfættu, allar nafnlausar. Það er að líkindum gert til að forðast fomar klisjurog öll sagan erörnefna- og vömheitalaus sem gerði hana nokkuð tímalausa ef ekki kæmi til eitt vasadiskó og umræður um tölvur og hópefli. Þetta er enginn venjulegur „realismi“ og með þessu móti næst einnig hæfi- leg mixtúra af því almenna og hinu einstaka, sagan gæti í raun gerst hvar sem er, hvenær sem er og hefur ekkert af hinum staðbundna kreðsu- þef sem einkennir svo mjög íslenskar bók- menntir, án þess þó nokkurn tíma að glata sérkennum hins íslenska veruleika. Sérhver persóna er sérstæð, heilsteypt og leynir á sér, fólki er ekki lýst í einföldum andlitsdráttum heldur framkallast mynd manns af því hóló- grafískt í gegnum síðurnar, af orðum þeirra og gerðum, við kynnumst persónunum af um- gengninni við þær. Bóndinn er yfirvegaður og síminnandi á gæði sveitalífsins og húsfreyjan einföld og jarðbundin með ekta setningar eins og: „Reyndu bara að borða. Það hefur okkur alltaf reynst best þrátt fyrir vísindin“ (bls. 51). Dóttirinn er hinsvegar af flóknari kynslóð, dálítið tætt háskólamanneskja sem fær nýjar dellur reglulega og er full af fróðleik úr annars manns höfði, heldur fyrirlestra yfir heimilis- fólkinu um nýjustu tækni og vísindi og lærir spænsku útá hól. Astalíf hennar er að mestu handan við bakgrunn söguþráðarins, það glittir aðeins í það við og við, sem gerir bókina marg- lesna. Dóttirin er á ýmsan hátt fulltrúi hinnar venjulegu háskólamanneskju sem engum sér- stökum kostum er búin og hefur ekkert sérstakt að lifa fyrir en fyllir líf sitt þess í stað af sí- felldum þeysireiðum og örvæntingarfullum 102 TMM 1992:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.