Morgunblaðið - 23.12.2014, Page 10
Malín Brand
malin@mbl.is
Það geta eflaust margir tekiðundir það að áætlanir okk-ar um „hvað við ætlum aðverða“ í lífinu geta lengi
breyst. Tóta er ein þeirra sem eru
afar sáttir við að svo sé enda hefur
hún komið víða við á ævinni, rétt
eins og litrík og fjölbreytt listsköpun
hennar ber vitni. Þó datt henni aldr-
ei í hug að hún
ætti eftir að
skrifa bók en ár-
ið 2012 kom út
bók hennar I
love being alive
og kom hún út í
tilefni af opnun
myndlistarsýn-
ingar hennar í
Hafnarborg í
nóvember 2012 og bar yfirskriftina
Ég elska að vera til. Bókina unnu
hjónin saman en eiginmaður Tótu,
Tómas Jónsson, er bæði ljósmynd-
ari og grafískur hönnuður. „Hann
var alltaf að taka myndir af börn-
unum, fjölskyldunni og mér. Þegar
ég lauk námi í myndlistaskólanum
fór hann að taka myndir af verk-
unum mínum. Þannig að þetta var
eiginlega uppsafnað,“ segir Tóta um
þær fjölmörgu og ljómandi
skemmtilegu ljósmyndir Tómasar
sem prýða bókina. „Eftir sýninguna
í Hafnarborg vorum við bæði komin
með eitthvað sem ég var að skrifa og
uppsafnaðar myndir af verkunum
mínum. Þannig að í bókinni eru hug-
leiðingar, verkin, myndirnar hans
Tomma af mér á öllum aldurs-
skeiðum. Það var nú eiginlega það
óþægilegasta en honum fannst það
Stígur fagurfræðin
með sunnanvindinum?
Listakonan og búningahönnuðurinn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir eða Tóta eins
og hún er kölluð, hefur skemmtilegt og jákvætt viðhorf til lífsins. Hún er full af lífs-
orku og elskar að vera til. Stundum eru hugmyndirnar í halarófu á eftir kollinum
á henni, enda segist hún oft fara fram úr sjálfri sér, svo öflugt er hugarflugið. Þetta
og meira til má lesa um í bókinni I love being alive sem nýverið var endurútgefin.
Ljósmyndir/Tómas Jónsson
Fallegt Í bókinni fá lesendur að sjá skrautlegt heimili þeirra Tótu og Tóm-
asar og um leið innsýn inn í ævintýralega og hrífandi veröld Tótu.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
Styrktarfélagið Jógahjartað stóð fyr-
ir útgáfu lags og myndbands fyrir
skemmstu en því er ætlað að minna
börn og fullorðna á það fallega sem
býr innra með þeim og auka ham-
ingju, ljós og frið í hjarta.
Lagið er sungið af börnum í kór
Hörðuvallaskóla en þar hefur verið
jógakennsla fyrir öll börn í 1.-4. bekk í
haust. Öll vinna við það er unnin í
sjálfboðavinnu og þökkum við öllum
sem gerðu það mögulegt.
Jógahjartað skipulagði kennslu
fyrir 700 börn í jóga, hugleiðslu og
slökun á haustönn í 6 grunnskólum á
Íslandi. Er almenn ánægja með verk-
efnið og það sem börnin lærðu var
t.d. djúp öndun, ýmsar stöður til að
liðka líkamann og hugleiðslur til að
róa hugann og finna frið í hjarta svo
eitthvað sé nefnt. Með því að fara inn
á síðu Jógahjartans má hlusta á lagið
og horfa á myndband þess.
Vefsíðan www.jogahjartad.com
Ljósið innra með okkur
Hjartað Hugmyndin að
baki laginu var að minna á
það fallega sem býr í fólki.
Í kvöld klukkan 19 verður jólaganga
Hafnarfjarðar farin frá Suðurbæjar-
laug að jólaþorpinu. Íshestar munu
með fagurlega skreytta fáka leiða
gönguna. Annars verður Þorláks-
messudagskrá jólaþorpsins með fjöl-
breyttasta móti. Jólahúsin verða
opnuð klukkan 16 og á milli 10 og
17:30 leikur Sveinn Sigurjónsson á
harmonikku fyrir gesti. Klassískur
söngkvartett kemur þá fram og
klukkan 18 stígur hljómsveitin Berg-
mál á svið. Klukkan 20, að jólagöng-
unni lokinni, verður fjöldasamsöngur
og skötusmakk í þorpinu og eflaust
líf og fjör fram eftir kvöldi.
Endilega …
… farið í jóla-
göngu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjör Mikil hátíð verður í jólaþorpinu.
Í tilefni jólanna er öllum áhugasöm-
um boðið í árlegt opið hús Geð-
hjálpar, að Borgartúni 3 í dag. Húsið
verður opið frá klukkan 9 til 16.
Boðið verður upp á drykki og veit-
ingar í anda jólanna ásamt því að allir
gestir fá lítinn jólapakka.
Jólakvikmynd við hæfi allra í fjöl-
skyldunni verður sýnd kl. 14.00 og
fleira skemmtilegt verður á dag-
skránni.
Landssamtökin Geðhjálp voru
stofnuð fyrir rúmum þrjátíu og fimm
árum eða þann 9. október árið 1979
og eru hagsmunasamtök þeirra sem
þurfa aðstoð vegna geðrænna vanda-
mála. Tilgangur félagsins er að bæta
hag þeirra sem eiga við geðræn
vandamál að stríða, svo og aðstand-
enda þeirra. Á meðal þess sem Geð-
hjálp hugar að er að jafnræðisregla
stjórnarskrárinnar sé virt og þeim
mannréttindasáttmálum sem Ísland
á aðild að sé framfylgt og að stuðla
að málefnalegri umræðu í samfélag-
inu. Í dag er því kjörið tækifæri til að
kynna sér starf Geðhjálpar og líta við
í Borgartúni fyrir klukkan 16 í dag.
Opið hús hjá Geðhjálp í dag
Andi jólanna, pakkar, veitingar
og kvikmynd fyrir fjölskyldur
Morgunblaðið/Ásdís
Stefna Geðhjálp er hagsmunafélag allra þeirra er berjast við geðraskanir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Sjálfvirk rennibraut inn á heimili