Morgunblaðið - 23.12.2014, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Alþjóðaknatt-spyrnu-sambandið,
FIFA, hefur haft á
sér það orð í gegn-
um tíðina að vera
ekki barnanna
best, þegar kemur
að því að viðhalda ímynd íþrótt-
arinnar. Spilling, peninga-
þvætti og mútumál hafa loðað
við samtökin, ekki síst í
tengslum við úthlutun sam-
bandsins á staðsetningu
Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu karla árin 2018 og
2022. Sem kunnugt er hrepptu
Rússar og Katarbúar hnossið,
og hafa æ síðan heyrst háværar
raddir, ekki síst í síðarnefnda
tilvikinu, um að mútuþægni hafi
ráðið niðurstöðunni.
Forsvarsmenn FIFA vildu
greinilega hreinsa sig af ávirð-
ingunum, og réðu því Michael
Garcia, kunnan bandarískan
lögfræðing, til þess að vinna
skýrslu um vinnubrögðin við
kosninguna sem réð því að
Rússland og Katar urðu að
næstu gistiríkjum HM. Garcia
skilaði af sér 430 síðna plaggi
og FIFA birti síðan útdrátt úr
því.
Helstu niðurstöður sam-
kvæmt útdrættinum voru þær,
að ólíkt því sem haldið hafði
verið fram, voru Englendingar
hengdir í hæsta gálga, en Kat-
arbúar birtust sem hvítþvegnir
englar, hreinsaðir
af öllum áburði.
Sú niðurstaða
virðist þó hafa ver-
ið eitthvað broguð,
því að Garcia mót-
mælti undireins og
sagði útdráttinn
ekki gefa rétta mynd af skýrsl-
unni. Í framhaldinu sagði hann
síðan af sér öllum tengslum við
FIFA með harðorðu bréfi, þar
sem hann sagði samtökin ófær
um að taka á spillingu innan
sinna raða. Sagði hann jafn-
framt að samtökin skorti alla
forystu. Þær kröfur hafa því
orðið háværari að skýrsla
Garcia verði birt í heild sinni,
og sagði Sepp Blatter, formað-
ur FIFA, að það yrði gert, eftir
að búið væri að fjarlægja allar
persónuupplýsingar úr henni.
Því miður er orðstír FIFA
ekki betri en svo, að knatt-
spyrnuspekúlantar taka með
öllum fyrirvörum orðum Blat-
ters um að skýrslan verði birt í
heild sinni. Er óttast að enn
verði reynt að hvítþvo það ferli
sem endaði með því að ein
helsta íþróttakeppni heims er á
leiðinni til Katar, eins af þeim
ríkjum heims sem hvað verst er
fallið til að spila knattspyrnu í.
Málið allt í kringum skýrsluna
bendir því til, að þess verði enn
langt að bíða að spillingin innan
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins verði upprætt.
Meðhöndlun skýrslu
um meinta spillingu
í alþjóðlegu knatt-
spyrnunni stefnir í
nýtt hneyksli}
Feluleikur skaðar FIFA
Þeir í Hollywoodgera bíómynd-
ir fyrir heiminn og
hafa gert mönnum
glaðan dag og
grætt vel í leiðinni,
þótt fáar kvik-
myndir þaðan þoli meira en eitt
áhorf frá hverjum og einum.
Nú er sú mynd frægust sem
Hollywood þorði ekki að sýna.
Þeir sem náðu að gægjast í
framleiðsluna segja hana undir-
málsmynd og í lakari kanti
slíkra. En óvænta frægð sína
hlaut hún ósýnd, þar sem hún
snerist um banatilræði við nú-
verandi leiðtoga Norður-Kóreu
og sá frétti af því að myndin
væri væntanleg.
Allir vita að Kim Jong Un er
elskaður, dáður og virtur leið-
togi og kippir í kyn föður og afa.
Hinu virta góðmenni var mis-
boðið. Fullyrt er að leyniþjón-
usta Kims hafi því gert tölvuá-
rás á Sony-stórfyrirtækið, sem
bar ábyrgð á banatilræðinu,
þótt í þykjustunni væri. Tölvuá-
rásinni fylgdu lítt dulbúnar hót-
anir í garð væntanlegra bíó-
gesta. Sony ákvað að hætta við
að setja myndina á markað og
sagði raunar sjálfhætt þar sem
ekkert kvikmynda-
hús þyrði að taka
myndina til sýn-
ingar. Allt er þetta
næstum of spaugi-
legt til að hægt sé
að trúa því. En hitt
vekur eftirtekt, að þetta fátæka
ríki, sem ekki tryggir fólki
nauðþurftir, skuli vera svo öfl-
ugt í tölvuhakki. Fyrst það gat
átt svona við Sony-risann,
hvaða rekstur er þá óhultur?
Hvað um banka og orkufyrir-
tæki, t.d. kjarnorkuver, er nú
spurt. Og þar sem látið er und-
an hótunum frá furðulegum
einræðisherra í fátæku smáríki
og það af helsta herveldi heims,
hvernig bregðast þeir þá við
sem minna mega sín?
Fjölmiðlar efast margir um
að Norður-Kórea hafi tækni-
lega þekkingu og afl til tölvu-
árásar af þessu tagi. Þeir vitna
til sérfræðinga sem segja nán-
ast öruggt að stórríki í grennd-
inni hljóti að hafa veitt aðstoð
sína við skemmdarverkið.
Hvers vegna? Jú, þau hafi feng-
ið tækifæri til að sannreyna
tæknilega getu og hinn elskaði,
dáði og virti leiðtogi í lepprík-
inu situr uppi með glæpinn.
Tölvuárásin á Sony
er undarleg.
Viðbrögðin eru þó
skrítnari}
Árásin á Sony er eins og bíó
S
tundum hendir að norðanáttin feykir
til mín skilaboðum frá miðaldra
körlum og þaðan af eldri, sem ein-
kennast af getsökum og hótfyndni.
Stundum fylgja með uppnefni og
skætingur. Sjaldnast er ástæða til að taka þetta
bókstaflega, nema hvað þetta segir nokkuð um
sendandann. Regla mín er þó sú að svara þessu
og óska skýringa. Viðbáran er yfirleitt sú að
viðkomandi hafi „bara verið að grínast“ eins
komist er að orði. Hugur hafi ekki fylgt máli og
að þetta hafi bara verið „óbærilegur léttleiki til-
verunnar,“ svo vitnað sé í titil frægrar bókar
En þrátt fyrir þetta grín og gaman þá situr
eitthvað eftir. Sendingar sem koma aftur mið-
nætti aðfaranótt föstudags og laugardags af
sama stofni, nema að þær eru yfirleitt hallær-
islegt fylliríisrugl. Eru þær merkingarlausar
nema að sendandinn sýnir svart á hvítu að öl er innri mað-
ur, en það er inntak eins af erindum Hávamála. Einu send-
ingarnar sem ég tek af alvöru eru bréf ætluð nafna mín-
um, Sigurði Boga, sem er geðlæknir á Landspítalanum.
Þau lýsa sársauka viðkomandi. Þeim bréfriturum reyni ég
að beina á rétta braut, í fullvissu þess að læknirinn leggi
líkn að þraut.
Ekki þarf tölvpósta til, svo menn komi upp um sjálfa sig.
Gömlu karlarnir eru, með öllum undantekningum og fyr-
irvörum, öðrum líklegri til að afgreiða samskipti sín við
fólk með misjafnlega smekklegum stóryrðum. Svona
frekjukarlar eiga það líka til að vera dónalegir og koma af
hranaskap fram við börn og fáu finnst mér öm-
urlegra að verða vitni að. Og hér förum við að
nálgast kjarna málsins, ég minnist þess varla
að sjá menn yngri en 40-50 ára koma öðruvísi
fram við fólk og þá sérstaklega börn en sem
jafninga sem þeir sýna fulla virðingu. Áður
fyrr þótti ekkert tiltökumál að krakkar væru
atyrtir og sýnd allskonar leiðindi, enda var við-
horfið að þau þroskuðust af slíku. Nú þykir
slíkt nánast höfuðsynd og þjóðfélagið gerir líka
ráð fyrir virkri þátttöku feðra í uppeldi barna
sinna. Í foreldraorlofinu eiga þeir gæðastundir
með krílunum, sem mótar þá og mildar. Gerir
þá til lengri tíma að betri mönnum; heiðar-
legum og flottum gaurum.
Orlof feðra við fæðingu barns hefur verið við
lýði í rúmlega áratug og því er orðið á reynslu
byggjandi. Rannsóknarniðurstöður eru gjarn-
an þokukennd þvæla, eða ætli nokkurstaðar standi að
samskipti fólks séu orðin manneskjulegri en var og ein-
kennist – heilt yfir – af meiri háttvísi og því að við séum
betri hvert við annað, en áður var. Sagt er að trú þurfi til
að flytja fjöll, eins og nú hefur sannarlega gerst. Ósýni-
legir hólar, hæðir og dalir hafa færst úr stað. Fólk af nýrri
kynslóð lifir samkvæmt öðrum og mannvænlegri gildum,
en áður voru alsiða. Nýir siðir eru ríkjandi og af þeim mót-
ast börnin. Og stundum er sagt að hátíðin sem nú gengur í
garð sé fyrst og síðast barna og ungra fjölskyldna – fólks
sem sakir breytts tíðaranda á öðrum fremur gleðileg jól.
sbs@mbl.is
Sigurður Bogi
Sævarsson
Pistill
Jól nýrrar kynslóðar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sjávarútvegsráðuneytið hefurgefið út reglugerð um veiðará kolmunna á næsta ári. Íhlut íslenskra veiðiskipa
koma rúmlega 192 þúsund tonn og er
þá búið að taka tæplega 11 þúsund
tonn frá vegna skiptingar í potta lög-
um samkvæmt. Við ákvörðunina var
miðað við að hlutdeildin yrði 17,63%
af hámarksafla, sem er í samræmi við
eldri samning strandríkja um kol-
munnaveiðar. Búast má við að ein-
hver íslensk skip reyni fyrir sér á kol-
munna suður af Færeyjum strax eftir
áramót áður en loðnuvertíð hefst.
Á fundum í síðustu viku settu
strandríkin sér 1.260 þúsund tonna
aflamark á næsta ári, en samkomulag
náðist ekki um skiptingu á milli þjóða.
Vonir standa til að skipting sam-
kvæmt eldri samningi verði virt.
Samkvæmt honum fá skip Evrópu-
sambandsins að veiða 354 þúsund
tonn, Færeyingar 303 þúsund og
Norðmenn 299 þúsund tonn. Þá eru
rúmlega 100 þúsund tonn tekin frá
fyrir rússnesk og grænlensk skip.
Norður af Skotlandi
og suður af Færeyjum
Kolmunni hrygnir í mars vestur
af Írlandi og leggur síðan fljótlega af
stað í ætisgöngur norður á bóginn.
Mest er veitt af kolmunna norður af
Skotlandi og suður af Færeyjum í
apríl og maí, en á þessum tíma er
hann þéttastur. Rannsóknir á stofn-
stærð eru gerðar í marsmánuði af
ESB, Norðmönnum og Rússum.
Síðustu ár hafa Íslendingar veitt
langmest af kolmunna syðst í fær-
eyskri lögsögu, en einnig á alþjóðlegu
hafsvæði vestur af lögsögu Evrópu-
sambandsins við Írland. Lítið hefur
veiðst af kolmunna í íslenskri lögsögu
síðustu ár og reyndar lítið verið reynt
þar sem skipin eru að mestu upptekin
yfir hásumarið við veiðar á makríl og
norsk-íslenskri síld.
Kolmunna hefur þó víða orðið
vart og ljóst þykir að talsvert sé af
honum í íslenskri lögsögu yfir hásum-
arið og fram á haust. Þegar Hafrann-
sóknastofnun fer í síldarleiðangur að
vori er kolmunni ekki kominn í lög-
söguna og rannsóknir á makríl og síld
síðsumars eru ekki hannaðar til mæl-
inga á kolmunna og þær eru ekki
markmiðið.
Kolmunnastofninn er mjög stór
og talinn einn af tíu mest veiddu fisk-
tegundum í heimi. Eins og sést á
meðfylgjandi töflum hafa miklar
sveiflur einkennt veiðarnar síðustu
ár, en eftir hlé á veiðum í allmörg ár
hófu Íslendingar aftur miklar veiðar
á kolmunna árið 1998, mest í íslenskri
lögsögu. Afli Íslendinga fór mest í um
500 þúsund tonn, en heildarafli úr
stofninum var þá hátt í tvær milljónir
tonna.
Samningar 2005
Eftir nokkurra ára samningavið-
ræður gerðu Íslendingar, Norðmenn,
Færeyingar og Evrópusambandið
samkomulag 2005 um veiðar úr stofn-
inum. Veiðar Íslendinga höfðu þá
aukist um nokkurra ára skeið og
kröfurnar samhliða, en niðurstaðan
varð að 17,63% kæmu í hlut Íslend-
inga.
Í haust kom fram í fréttatilkynn-
ingu að loknum fundi ráðgjafar-
nefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES) að á árunum 1996-2004 var
mjög góð nýliðun í kolmunnastofn-
inum, sem stækkaði verulega í kjöl-
farið. Hrygningarstofninn stækkaði í
um sjö milljónir tonna á árunum 2003
og 2004, en fór síðan minnkandi til
ársins 2010 vegna lélegrar nýliðunar.
Árgangar 2005 til 2008 eru allir metn-
ir nálægt sögulegu lágmarki, en ár-
gangar 2009 til 2013 eru metnir vera
um og yfir langtímameðaltali. Mjög
lítill afli árið 2011 og góð nýliðun
undanfarin ár hefur orðið til þess að
stofn og afli hafa farið vaxandi.
Samkvæmt nýjasta mati er
hrygningarstofninn talinn vera um
5,5 milljónir tonna árið 2014, sem er
töluvert lægra en spá um stærð hans
frá úttekt síðasta árs, sagði í tilkynn-
ingunni.
Veiðum mest af kol-
munna við Færeyjar
Kolmunni
Dekkstu svæðin sýna mestan afla*
* tonn/sjm2 Heimild: hafro.is
Landaður afli í NA-Atlantshafi frá árinu 1970
Ísland Aðrar Þjóðir
Þú
s.
to
nn
1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2013
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
Heimild: hafro.is