Morgunblaðið - 23.12.2014, Page 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
» Bubbi Morthens hef-ur haldið Þorláks-
messutónleika í 29 ár og
hélt eina slíka í Hofi á
Akureyri í fyrrakvöld. Í
kvöld heldur Bubbi tón-
leika í Eldborg í Hörpu
kl. 22 og er uppselt á þá.
Bubbi mun m.a. flytja
lög eftir sig sem hafa lít-
ið heyrst.
Þorláksmessutónleikar Bubba
Hátíðlegt Bubbi Morthens á Þorláksmessutónleikum sínum í menningar-
húsinu Hofi á Akureyri í fyrradag. Bubbi hefur haldið slíka tónleika í 29 ár.
Í Hofi Ragnheiður Runólfsdóttir og
Lísa Björk Gunnarsdóttir fóru á
tónleika Bubba Morthens í Hofi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Mannakorn hafa fyrir löngu sungið
sig inn í þjóðarsálina og má ætla að
plötur þeirra sé að finna á fjölda
heimila um allt land. Í ár eru liðin
40 ár síðan hljómsveitin kom fyrst
saman og hafa spilarar komið og
farið úr bandinu á þeim tíma en fé-
lagarnir Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson hafa frá fyrstu
tíð myndað kjarna Mannakorna og
gera það enn. Þeir eru hvergi hætti
að sögn Magnúsar en nýja platan,
sem nefnist Í núinu, er sú tíunda
sem hljómsveitin sendir frá sér og
ekki sú síðasta ef Magnús fær ein-
hverju ráðið. „Aðdragandinn að
plötu þarf ekki að vera langur en
við ákváðum snemma í sumar að
gefa út þessa enda átti ég eitthvað
af lögum sem mig var farið að
langa að gefa út.“
Ekkert fer fram hjá Pálma
Magnús segist reyna að semja
lög jafnóðum og vill þá ekki geyma
þau á lager. „Mér hefur alltaf þótt
gaman að semja lög og vil gefa þau
út jafnharðan. Þau gagnast fáum í
stafla inn í skáp.“ Textann segir
hann geta komið hvenær sem er og
fari allt eftir þeim aðstæðum sem
hann er í hverju sinni og þeim til-
finningum sem flæði á því augna-
bliki. „Sumir textar eins og í laginu
„Einskisvert“ eru ádeilur meðan
aðrir eru léttari. Þá reglu reyni ég
samt að halda að hafa texta ekki
grimma, slíkir textar eldast illa.“
Þrátt fyrir 40 ára samstarf með
Pálma segist Magnús ekki semja
texta með öðrum. „Yfirleitt sem ég
lögin mín sjálfur en ég hef samið í
samstarfi við aðra eins og KK en
það gerist ekki oft. Pálmi er hins
vegar sían sem allt þarf að fara í
gegnum og ekkert kemst inn á
plötu nema með hans samþykki.“
Margt breyst á 40 árum
Í þau 40 ár sem Magnús hefur
spilað og sungið með Mannakorn-
um hefur tæknin tekið miklum
framförum og útgáfa á tónlist er
ekki eins og hún var. Magnús segir
tæknina ekki þurfa að vera til traf-
ala en hún hafi án nokkurs vafa
breytt tónlistarheiminum. „Það er
orðið auðveldar fyrir fólk að gefa
út efni og það getur jafnvel orðið
gefið út lög með símanum sínum,
sem verður öflugri með hverju
árinu. Það tekur nokkuð frá tón-
listinni en mér finnst mikill munur
á því að hlusta á lag sem gefið er út
á vínil og lag sem er eingöngu gef-
ið út á stafrænu formi. Gæðin á
vínilnum eru miklu meiri að mínu
mati og skýrir það endurkomu vín-
ilsins,“ segir Magnús.
Ekki er þó allt tapað með
tækninni og hún getur verið
bandamaður sem fjandmaður tón-
listarmannsins. Mestu skiptir þó að
sögn Magnúsar að fólk njóti þess
að hlusta á tónlist og haldi áfram
að kaupa þá tónlist sem höfðar til
þess. „Annaðhvort finnst okkur
eitthvað skemmtilegt eða leið-
inlegt, hvort sem er þá skiptir
mestu að fólk finni sitt form til að
hlusta á tónlistina og greiði fyrir
hana.“
Morgunblaðið/Ómar
Vinátta Félagarnir Pálmi Gunn-
arsson og Magnús Eiríksson.
Mannakorn í
núinu eftir 40 ár
Ádeila í bland við létta texta
Systurnar Hólmfríður Ósk og Greta Mjöll Sam-
úelsdætur deila hvoru tveggja áhuga sínum og ástríðu á
tónlist og knattspyrnu en þær hafa skarað fram úr á báð-
um sviðum. Það má því halda því fram að samband
þeirra systra sé einstakt en Greta vill þó ekki meina að
þær séu frábrugðnar öðrum systrum. „Við erum mjög
ólíkar en eigum alltaf fótboltann og tónlistina hvor með
annarri. Æfðum okkur að sparka í bolta saman úti í garði
og sungum svo með græjunum sem Hólmfríður fékk í
fermingargjöf. Ætli við séum ekki bara ósköp venjulegar
systur,“ segir Greta um samband systranna en hún og
Hólmfríður gáfu nýlega út sína fyrstu plötu, SamSam.
Tónlistin tók við af fótboltanum
Fótboltinn tók völdin strax á unglingsárum enda efni-
legar frá unga aldri í boltaíþróttinni. Í dag eru skórnir
komnir á hilluna og segir Greta að rykið verði ekki dust-
að af þeim úr þessu, nú sé kominn tími til að hlusta á lík-
amann og gefa öðrum færi á að spreyta sig á vellinum.
„Við lögðum báðar skóna á hilluna af svipuðum ástæðum.
Líkaminn var búinn að fá að þola nóg af meiðslum,“ segir
Greta í léttum tón en hún spilaði með öllum unglinga-
landsliðum Íslands og A-landsliðinu, líkt og systir henn-
ar Hólmfríður en þær komu báðar upp úr uppeldisstarfi
Breiðabliks, eins og svo margt efnilegt knattspyrnufólk.
Tónlistin fylgdi þeim þó alltaf og er nú í aðalhlutverki.
„Þegar lagið Ó María kom út árið 2006 var ég bara 18 ára
og á fullu í fótboltanum og það var einfaldlega of mikið
að fara á fullt í tónlistina á þeim tíma.“ Hún viðurkennir
þó að hafa verið smásmeyk að hætta í fótboltanum enda
þekkt fátt annað en að gefa sig alla í fótboltann. „Tónlist-
in auðveldaði mér að hætta í fótboltanum og gott að geta
gefið mig alla í hana í dag.“
Frjáls og náttúruleg tónlist
Hólmfríður er lagahöfundur plötunnar SamSam en
hún hefur ekki klassíska menntun í tónlist, líkt og ætla
mætti þegar hlustað er á tónlistina hennar. Hæfileikann
segir hún vera ósköp náttúrulegan. „Ég fann það
snemma að tónlist ætti vel við mig og ég ætti auðvelt
með að tileinka mér tónlistina. Ég get t.d. spilað flest lög
á píanó en hef aldrei getað spilað eftir nótum,“ segir
Hólmfríður og tilhugsunin að skilgreina tónlistina um of
og njörva hana niður í fræði segir hún að hræði sig. „Mér
finnst það taka allan sjarma af lagasmíði og tónlist að
ekki sé hægt að semja lag nema þekkja öll fræðin.“
Lagasmíði sinnir Hólmfríður heima hjá sér en segist
þó finna tón eða tvo í bílnum. „Ég elska að semja lög og
þau koma stundum til mín í bílnum. Fyrir mér er laga-
smíði ekki vinna heldur áhugamál enda sem ég lög með-
fram fullri vinnu sem kennari.“ Textasmíði nálgast hún
með öðrum hætti og leggur áherslu á að lögin hafi þýð-
ingu „Mér finnst mikilvægt að semja texta með innihaldi,
texta sem segir sögu sem fólk getur upplifað sig inn í.
Þannig reyni ég að hafa textann í lögunum almennan svo
allir geti tekið hann til sín og fundið sína sögu í honum.“
Ólíkt lagasmíðinni kemur textasmíðin ekki jafn auðveld-
lega til Hólmfríðar og útilokar hún ekki að láta aðra um
textasmíðina í framtíðinni. „Ég er mjög ánægð með text-
ana mína en það er mikil vinna í þeim og ég í fullu starfi
sem kennari. Ég hef því ekki útilokað það að láta texta-
smíðina í hendur annarra.“
Hljómsveitin og samstarfið
Líkt og inni á knattspyrnuvellinum hafa systurnar
tamið sér fagmennsku í tónlistinni. Undirleikurinn á
diskinum er því allur frá fagmönnum að sögn Hólm-
fríðar. „Þó að ég geti samið lögin finnst mér mikilvægt
að fá fagmenn til að spila þau. Ég geri miklar kröfur og
sökum þess að lögin eru samin á píanó vildi ég fá góðan
píanóleikara. Við vorum því mjög heppnar að fá Guð-
mund Reyni Gunnarsson, fótboltakappann úr Vest-
urbænum, með okkur en honum tókst að framkvæma ná-
kvæmlega það sem við vorum að hugsa.“ Steinþór
Guðjónsson bassaleikari, Marinó Geir Lilliendahl
trommuleikari og Fannar Freyr Magnússon gítarleikari
komu allir að gerð plötunnar og spila með þeim systrum
og segir Hólmfríður samstarfið hafa gengið eins og í
sögu. vilhjalmur@mbl.is
Náttúrulegir tónlistar-
menn og afrekskonur
Söngelskar Systurnar Hólmfríður Ósk og Gréta Mjöll.
SamSam systur gefa út
sinn fyrsta geisladisk
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða