Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 64
inn af öllum hlaupunum. Þá lítur þreytt stúlkan á dívangarm þar út við vegg. — Finnst þtr ekki gott að lúra á daginn? segir Uglan. — Nei, á nóttunni. — Þú sefur þarna bara eins og þú vilt, segir Uglan, ég sef allan daginn á priki mínu, og þá mátt þú ekki bæra á þér svo ég hrökkvi ekki upp, ellegar ég steypi þér út um vindaugað. Heyrist þá þytur í glugga, eins og himinninn vilji þrengja sér inn og stúlkan hörfar og fellur í ómegin á dívaninn, þar sem gormamir vagga henni fram eftir degi. Hún vaknar endumærð í ljósaskiptunum við það að Uglan flýgur út, og finnst þá enn verra að vera ein en með illfyglinu, svo hún fer að gráta. Hún grætur í mislöngum hviðum, sumar eru stuttar, aðrar hálfstuttar, nokkrar hálflangar, og enn em langar langar hviður, sogin eru upp og niður, jafnvel til hliða, og sogast hátt upp í hvelfinguna og splundra vefjum svo kóngulær fá nóg að gera í viðhaldinu. Úti sér hún bólstra og grætur við enn meir. Hvorki sjást himintungl né vængjaðri himindýr önnur, ekki sól, hið loðna dagstungl, hinn snoðni næturmáni, ekki fuglar að sauma ský í hvolf. — Ó horfin ertu góða jörð, hvað hef ég gert? Hún tekur nú í óhemjuskap að lemja fætur sína fyrir að hafa borið sig þessa hræðilegu afvegu á skrímslisfund, fætur hennar bregðast illa við og bera hana að vindauganu stóra. — Hættu strax hóran þín, eða við steypum þér þama niður, viltu það, heyrir hún hnéskeljarnar segja. — Nei elsku bestu fæturnir mínir, segir hún og tekur að kyssa þá, seinna kannski, ekki strax, hér er enn margt að sjá og skoða. Við þetta stillast fætumir og hún líka, þeir hlýða henni og ógna ekki meir, enda var þetta ekki alvara þeirra, bara fótrænt sálfræðitrix. Geysi- fagurt símunstur dordingla er á grjótveggjunum. Og eplasalatið á borðinu gimilegt á leirdisknum. Litlu áður en nóttin dettur á finnst henni söngsveit stefna að tumhús- inu mikla sem hefur gleypt hana. Og reynist rétt vera, því vængjablak heyrist brátt og Uglan stekkur reffilega inn um vindaugað, og í stélfar hennar tólf manna hópur af kátum léttölvuðum leðurblökum í kjólfötum. Þær syngja hver sitt lag, í öllum grísku tónstigunum og kínverskum líka 62 TMM 1993:4 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.