Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Side 108
annað, á milli þeirra er stöðugt flæði eða um- breyting, menn verða að dýmm, dýr öðlast mannlega eiginleika og andar, draugar og líf- mögn ráfa um á hversdagslegu sögusviði sem við fyrstu sýn virðist snautt af furðum. Lífgerv- ingin takmarkast því ekki einvörðungu við tungumálið heldur færist hún yfir á allan vem- leikann, jafnvel yfir á ýmis efnisleg fyrirbæri sem okkur er allajafna ekki tamt að telja líf- mögnuð en em það kannski þegar allt kemur til alls. I nýjasta sagnasafni Gyrðis, Tregahorninu, er áfram unnið með þennan lífheim, möguleikar hans kannaðir og hugmyndir sem hafa komið fyrir áður í bókum hans spunnar áfram, eigin- lega svo langt að þær virðast ná endamörkum sínum. Þetta eru 24 sögur, allar mjög stuttar og sparsamar og teygja þá niðurskurðarstefnu sem höfundurinn hefur fylgt á undanfömum ámm enn lengra. Þannig er enn minna um myndmál í textanum en áður, enn færri bindiþræðir sem halda honum saman og skurðpunktamir sem við vöndumst í skóla að allar góðar smásögur ættu að hafa, æðin þar sem merkingin átti að spretta upp eins og blóðgusa, horfnir veg allrar veraldar en í stað þeirra kominn illhöndlanlegur gmnur, brot sem lesandinn verður að tyggja með skynjuninni og melta síðan í lítt notuðum afkima vitsins svo hann geti fest þau saman. Það furðulega er hins vegar að því naktari og tálg- aðri sem textamir verða, því meiri verður dýpt þeirra, þeir öðlast í sínu berstrípaða ástandi eitilhörku sem miðlar dulhyggjulegri sýn á við- fangsefnin og gerir þau sleip og hál fyrir skiln- inginn. Ég er hins vegar ekki frá því að í a.m.k. þrem sagnanna („Milli landa“, „Sumar“, „Þrjár myndir úr Kópavogi“) hverfi festan úr textanum og eftir standi aðeins splundruð mynd sem engu að síður orkar furðulega sterkt á mann þó svo að það sé ekki hægt að fá brotin til að falla saman. Þannig má velta fyrir sér hvort list Gyrðis sé list endimarkanna, í ætt við Beckett og Kafka (eins og Astráður Eysteinsson gerði í grein sinni: „Myndbrot frá barnæsku“, Skírnir 1990, bls. 470—494) og hvort vissum áfanga í leit að merkingarríkri „þögn“ innan textans sé náð þegar venjulegar hugmyndir um heild og formfestu gilda ekki lengur heldur verður að hugsa þær upp á nýtt og út frá nýjum forsend- um. En svo haldið sé áfram með lífheiminn, þá má ljóslega sjá í Tregahorninu þau atriði sem fyrr var minnst á eins og til dæmis umbreytinguna í sögunni „Hundarnir" þar sem maður er búinn þeim hæfileika að geta leikið margar kynslóðir af hundum úr Vopnafirði. Og skemmtileg út- færsla er hér á hugmyndinni um lífmögnun efnislegra fyrirbæra í sögunni „Bókasafnið", þar sem lagt er út af litlu bókasafni sem sögu- maðurinn hefur í gluggakistunni og hefur ekki einungis fólgið í sér andlegt líf bókstafanna heldur ekki hvað síst efnislegt líf sem útheimtir öndun og næringu: „Mig grunar að bækur þurfi að anda einsog fólk...“ (bls. 82) segir hann og opnar gluggann til þess að þær fái frískt loft. Um leið eru bækumar gæddar óljósu minni um upprunann, um skyldleika sinn við trén sem eru utan við gluggann líkt og bandormurinn í jörð- inni og bandormurinn í iðrum mannfólksins, allt á sér samsvörun í öðru: tré verða að bókum sem verða að hugsunum og öfugt. Þessar sögur em þannig gæddar samhengi sem er sannfærandi í furðum sínum, samlifun allra hluta er þama fyrir hendi en það er eins og til að koma auga á það verði eiginlega að segja sig úr lögum við samfélagið, finna sér stað sem er á mörkum þess, þar sem pláss er fyrir íhugun mitt í flóðinu. Dvölin á þessu eylandi hlýtur óhjákvæmilega að vekja upp gagnrýni á heim- inn sem rennur framhjá, á það sem hefur rofið þetta samhengi og gerir það kannski ómögulegt að koma því á aftur nema með mikilli áreynslu, nema með hugsun sem er spennt til hins ítrasta þótt tjáning hennar sé kannski lágróma. Því þó svo að lífheimurinn sé til staðar er honum stöðugt ógnað, hann er í raun horfinn og endur- fundir hans í skáldskapnum eru undir stöðugri árás þeirrar hugsunar eða kannski fremur hugs- unarleysis sem böðlast áfram án þess að skeyta um umhverfíð. Það er ekki ósennilegt að af þessari aðkrepptu stöðu, þessari jaðardvöl skáldsins, spretti treginn sem gegnsýrir bókina og fylgir lífheiminum eftir eins og hin dimma hlið hans, ógnvænleg og myrk. Þessi tregi býr við nánari athugun í öllu. í sögunni „Hundarn- ir“ sem var minnst á hér fyrir ofan festist mað- 106 TMM 1993:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.