Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 30

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 30
einhverja vinsældalista höfunda út frá þrjátíu símtölum eða þessi stjörnugjöf sem minnir mest á stelpur að leika sér að Barbie-dúkkum og rífast um hver þeirra eigi fallegustu dúkkuna. Þetta er frekar hugarástand en alvarleg bókmenntaumræða, spurningin um að deila og drottna. Einhverjir eru teknir og þeim hossað meðan öðrum er hent niður á botn. Það er til eitthvað á milli þess að vera á snúrunni og vera róni. Nú, síðan er í gangi ákveðin rétttrúnaðarhyggja eins og glögglega birtist í mótmælaskjali gegn sjónvarpsþætti þeirra Sigfúsar Bjartmarssonar og Jóns Halls Stefánssonar. Innan hinnar svokölluðu „bókmenntastofnunar“ er til fólk sem í senn vill vera opinbert gæðaeftirlit og skoðanalögregla. Ef bók- menntirnar eru spilastokkur eru öll spilin tromp, ekki bara hjartadrottning- in, þó hún gildi auðvitað meira en tígulgosinn. Bókmenntirnar eru í eðli sínu öndverðar allri einokunarstarfsemi eða hringamyndun skoðana. Leiðarljós nútímasögunnar er hið gamla viðhorf anarkistanna: vertu raunsær og fram- kvæmdu hið ómögulega." „Heimsbókmenntirnar loga af geðveiki!11 Gagnrýnendur tóku Englum alheimsins fagnandi. „Besta skáldsaga ársins,“ hét umsögn Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem einnig sagði að verkið hitti lesandann „beint í hjartastað“. Og Gísli Sigurðsson segir að persónulýsing Páls sé „með glæsilegustu bókmenntaafrekum síðari ára“. Sagan gerist í sama umhverfi og þríleikurinn, nýju hverfi í austurbæ Reykjavíkur. En tónninn er allt annar, viðkvæmari, sárari. Söguhetjan, Páll Ólafsson, er veikur á geði og sagan lýsir þrautagöngu hans gegnum lífið, ósigrum hans og niðurlægingu og loks dauða. Stíllinn er knappur og bókin er „bráðfýndin á köflum þrátt fýrir þungt efni“, eins og Matthías Viðar Sæmundsson segir í sinni umsögn. En leiðin virðist löngfrá Jóhanni Péturssyni, söguhetju Riddara hringstigans, til Páls. Hvers vegna skrifaðir þú sögu hans? „Ég á erfitt með að nefna neina eina ástæðu fýrir því. Ákveðin atriði í Englunum höfðu leitað lengi á mig og komið frá mér í einhverju formi. Til dæmis koma Pétur bóndi og Viktor líka fyrir í Leitinni að dýragarðinum. Yfirleitt eiga sögurnar mínar allmiklu lengra ferli en ritunartíminn er. Ég er kannski búinn að taka ýmislegt niður og skrifa lengi út í loftið, leggja í fæting við eitthvað sem ég hef ekki ráðið við, leggja það til hliðar og taka það aftur og hugsa upp á nýtt. Með þessu móti held ég að sögurnar verði fleirtóna. Þó að þær virðist vera bein frásögn þá liggja fleiri lög undir textanum. En hvers vegna ég skrifaði hana — það er náttúrlega hægt að tala um það í alla nótt! Fyrst og fremst þekkti ég málin sem fjallað er um í bókinni svo 24 TMM 1995:2 fe
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.