Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Side 43
Eins og allir mega heyra sat hér Einar skáld Benediktsson að sumbli og kvæðið „Gamalt lag“ birti hann í þriðja ljóðasafni sínu Hrönnum haustið 1913.1 Hann breytti enda ekki um kveðskaparstíl. Allt um lof hans til hins alþýðlega, einfalda og ljóðræna, er birtist hér og víðar í kvæðum hans og greinum, virtist sá skáldskapur sem suð flugna borið saman við flug hauks- ins. Þegar hér var komið skynjaði samt auðvitað skáld eins og Einar Benedikts- son „áttaríg“ svo að vitnað sé til orða Davíðs Stefánssonar í „Bréfi til uppskafningsins“.2 Áður en Einar gæfi út næsta kvæðasafn sitt hafði líka birst á prenti 1919 sú bók, sem hvað mestum áttaskilum olli í íslenskri Ijóðagerð á fyrsta þriðjungi aldarinnar, Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson. Rúmum mannsaldri síðar, þegar Davíð varð sextugur, rifjaði hann upp bókmenntalegt andrúmsloft þessara ára og sagði þar: Á æskuárum mínum þótti mörgum sá bragur ljósasti vottur vizku og náðar, sem var kaldhamraður og torskilinn og virtist myrkvaður af mannviti. [--] Það var engan veginn ætlun mín né áform að hefja með kveð- skaparhætti mínum atlögu gegn ákveðnum skáldum eða stefnum, heldur kvað ég aðeins, eins og mér var eðlilegast og lét bezt. Tónn þjóðvísunnar hafði snortið mig, lög, sem sungin voru við vöggu mína, urðu mér minnisstæð og hjartfólgin og gáfu mér byr undir báða vængi.3 Hverjir voru svo þeir höfðingjar andans sem hæst bar á hinu íslenska bókmenntasviði við lok heimsstyrjaldarinnar fyrri? Ætli það sé á nokkurn ranglega hallað þó að nefndir séu af ljóðskáldum Stephan G. Stephansson og Einar Benediktsson, en af sagnaskáldum Einar H. Kvaran. Allir voru þeir hugmyndalega mótaðir af viðhorfum 19. aldar, framar öðru af vísindahyggju og framfaratrú pósitívismans. Ljóðstíll þeirra Steph- ans G. og Einars var þungur og lotulangur, meitlaður vitsmunalegu viðhorfi og djúpri alvöru í þjóðfélagslegum og heimspekilegum efnum. Einnig voru þessir höfundar mótaðir af þeim yfirborðsstrangleik í siðferðisefnum, sem einatt er kenndur við drottninguna Viktoríu á Englandi, þó að þar gengi Einar H. Kvaran fram með eindregnasta hreinlífiskröfu. Enda þótt Davíð segði það ekki hafa verið ætlun sína að hefja atlögu gegn ákveðnum skáldum með kveðskaparhætti sínum virðist okkur nú að Svartar fjaðrir séu næsta meðvituð uppreisn eða bylting gegn listrænni aðferð og lífsviðhorfum þeirra þriggja höfuðskálda af eldri kynslóð sem nefnd voru. TMM 1995:2 37
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.