Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Page 71
Ég hugsa um skírnarkjólinn minn og trúi nokkur viðtalsbil á krafta- verkið þegar ég tala við pabba og mömmu. Og því ekki það? Og samt — litlu lygarnar mínar, — kannski eru þær ekki svona litlar. Nei, burt með þetta allt, ýta því frá því tíminn líður. Ég lít á klukkuna yfir ísskápnum: hádegi. Og hann þarf að fá svar bráðum, maðurinn úti við girðinguna, þarf að fá svar fljótt. Fá skuld sína greidda. Grá kakískyrtan hans er orðin dökk undir höndunum og aftur á bakið. Sólin velgir honum bersýni- lega ekki síður en mér. Og svo er hann feitur, það gljáir á fellingarnar aftan á hálsinum á honum. Bíður samt, sveittur og heitur, bíður. Ég horfi á víxl út um gluggann hans, á klukkuna sem pabbi gaf mér þegar ég byrjaði að búa — vandræðalegur og tilbúinn að forða sér um leið og hann hefði rétt mér hana, því pabbi kann ekki að fara í búðir að velja og kaupa gjafír handa börnum sínum, það tilheyrir verkahring mömmu, — á gamla eldhúsborðið mitt sem einhvern veginn hefur staðist allt brúk, flutning og flæking í tuttugu ár. Ég leggst fram á borðið og skelf af táralausum ekka. Tuttugu ár! Rúmur fjórðungur mannsævi. Og hvað hefur gerst þessi tuttugu ár? Ekkert — allt. Og ég sit við sama borðið og veit að ekkert hefur breyst. Einungis er það liðið. Liðið og búið. Tómt. Hundrað ár í viðbót og það er allt gleymt, og eftir önnur hundrað ár skiptir það engu neins staðar. Eða hvað? Þú setur kartöfluna í mold. Hún spírar og á spírunum vaxa nýjar kartöflur sem þú setur í mold svo þær spíri... Þú spyrð ekki kartöfluna neins. Hún er bara þarna í moldinni, spírar, nærir og eyðist að lokum og enginn spyr neins. Enginn krefur hana svara né ábyrgðar. Því hvers ætti að spyrja og hver gæti svarað? Kannski er heldur einskis að spyrja og því ekkert svar. Veistu að kartaflan blómstrar áður en hún deyr? Ég vildi að ég ætti eitt blóm til að gefa honum, bjargvættinum mínum, bara eitt blóm, svo hann geti séð með eigin augum hve fögur kartaflan getur orðið þegar hún fær að vaxa eins og náttúran ætlast til. Að hún er ekki bara fyrirbrigði sem hægt er að breyta í þetta og þetta mörg tonn af frönskum og skífum og flögum, gleyptum, gleymdum og öllum eins. TMM 1995:2 65 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.