Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Blaðsíða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Blaðsíða 28
ATLl HEIMIR SVEINSSON Mönnum ber að hafa sínar skoðanir, og það er allt í lagi að láta þær í ljós. Það hafa Stockhausen og Darmstadtmennirnir eflaust gert. En þetta gerir ekkert til. Listamenn láta ekki stjórna sér. Aftaníossum eða epígónum er stjórnað og þeir vilja það. Listamenn stjórna sér sjálfir, þótt ýmsum sem vilja skreyta sig með listamannsheiti finnist það ótrúlegt. Og aftaníossar eru alltaf miklu fleiri en listamennirnir, og þess vegna ber meira á þeim. Thor Vilhjálmsson kallar þetta hinn óskrifandi meirihluta. Listamenn fara ekki eftir fyrirskrifuðum reglum, heldur búa til reglur, segir Busoni einhvers staðar. Hitt er svo annað mál að allir listamenn verða fyrir áhrifum því enginn er eyland stendur í miklu kvæði. Ég varð fyrir margvís- legum áhrifum, án þess að bíða tjón á sálu minni, en hins vegar hef ég engan látið segja mér hvað má og hvað má ekki gera. 8 Það er annarra að dæma um minn stíl, en mér finnst hann síbreytilegur. Það er auðvelt að staðna, einkum hér á Islandi. En strax í byrjun fannst mér ótækt að geta ekki notað alla þá hljóma sem til voru. Ég vildi nota dúr og moll hljóma, en á nýjan hátt. Ýmsir töluðu um að með þessum hljómum væri ekkert hægt að segja lengur, efhið væri ofnotað og hætt að virka. Menn eins og Adorno og Metzger töluðu um hina sögulegu tilhneigingu efhisins og fleira í þeim dúr, sem ég skildi aldrei. Og frá upphafi finnast gamlir hljómar í verkum mínum, en vonandi séðir frá nýju sjónarhorni. Rímorð eins og „synd“ er banalt þegar það rímar á móti „mynd“ og „ást sem aldrei brást“ er útjaskaður orðaleppur sem ekki segir neitt vegna of- og misnotkunar. Það er mjög sjaldgæft og á fárra færi að gefa slíkum banalítetum nýja, ferska og sanna merkingu. Láta þau segja eitthvað sem áður var óþekkt. En það má líka segja að blái liturinn í málverkinu sé alltaf ferskur og nýr ef það tekst að láta hann í nýtt og rétt samhengi. Við sköpum ekki listaverk með því einu að afneita möguleikum. Það er ekki gamaldags í sjálfu sér að nota þríhljóm, og ekkert nútímalegt að nota stórar sjöundir eða litlar níundir. Það fer eftir því hvernig unnið er úr efniviðnum. Menn gerast ekki nútímaskáld með því einu að afheita rími og stuðlum. Fleira þarf til. Ég gekk í gegn um tímabil þegar mér fannst ég verða að nota „gamla“ þríhljóma. Aldrei var um neitt afturhvarf að ræða hjá mér. Þvert á móti. Ég notaði gamlan og þekktan efnivið á nýjan hátt. Módernismi er vandmeðfarið hugtak og fyrir mér er hann spurning um gæði fremur en tíma. Það skiftir litlu máli hvort listaverk er skapað nokkrum 26 TMM 1997:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.