Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Blaðsíða 54
SILVANA PATERNOSTRO
ráðgast við hann, skrifa honum bréf, vilja hafa hann í kallfæri. Allt sem hann
segir, um hvað sem vera skal, er efni í forsíðufrétt. Á síðasta ári rændi
kólumbísk skæruliðahreyfíng bróður íyrrverandi forseta. Þess var krafist að
García Márquez tæki við forsetaembættinu. í yfirlýsingu sinni sögðu skæru-
liðarnir: „Gerðu það fyrir okkur, Nóbelsskáld, bjargaðu föðurlandinu.“
Kólumbíumenn kalla García Márquez Gabo til að eignast hlutdeild í frama
hans og líkt og hreykin fjölskylda viljum við gera ff ægð hans að okkar. í landi
sem er þjakað af ofbeldi, fátækt, eiturlyíjabraski og spillingu er Gabo stolt
fjölskyldunnar, líka þeirra sem eru ekki of hrifnir af vinfengi hans við Fidel
Castro. í Barranquilla (fæðingarborg minni, þar sem Gabo vann sem blaða-
maður 1950 og þar sem hann kynntist Mercedes, konunni í lífi sínu) er hann
dýrkaður. Þar er hann ekki lengur kallaður Gabo, heldur Gabito.
Nafn hans ber jafnoft á góma í fegurðarsamkeppnum okkar og nafn
páfans. Svör þátttakendanna eru oftast áþekk: Hver er eftirlætisrithöfundur
þinn? García Márquez. Hvaða manneskju dáir þú mest? Pabba, páfann og
García Márquez. Hvaða manneskju vildi þú helst kynnast? García Márquez
og páfanum. Ef blaðamaður í Rómönsku Ameríku væri spurður sömu
spurninga yrðu svörin trúlega svipuð, nema hvað páfinn dytti kannski út.
Við segjum gjarna að Gabo hafi verið blaðamaður áður en hann gerðist
skáldsagnahöfundur. Hann segist alltaf hafa verið blaðamaður.
Hershöfðinginn
Gabo byrjar á að tala um bók sína um Símon Bólívar, sem frelsaði fimm lönd
undan yfirráðum Spánverja og dreymdi um sameinaða Ameríku, allt frá
Kaliforníu til Eldlandsins. Á þeim myndum sem hanga í öllum opinberum
byggingum er Frelsishetjan alltaf í hrukkulausum einkennisbúningi, reiðu-
búinn í orrustuna eða í þann mund að stíga á bak hvítum hesti sínum.
- En það er aldrei sagt frá því í ævisögunum að Bólívar hafði unun af söng
eða að hann hafi haft erfiðar hægðir - segir Gabo, og bætir við að mannfólkið
skiptist í tvo hópa: „Þá sem kúka fyrirhafnarlaust og þá sem eiga í erfiðleikum
með hægðirnar; þar er um að ræða tvær mjög ólíkar manngerðir. En sagn-
fræðingarnir segja ekki frá þessu því þeir telja það engu máli skipta.“
Óánægja hans yfir hinni stöðluðu ímynd sem sagnfræðingarnir hafa búið til
af hetjunni hans varð þess valdandi að hann ákvað að skrifa bókina Hers-
höfðinginn í völundarhúsi sínu. Á síðum hennar má finna alla sögu þeirrar
persónu sem svo mjög hefur haft áhrif á pólitíska hugsun hans. Gabo segist
hafa skrifað þá bók í formi blaðafrásagnar.
- Blaðafrásögn er sagan öll, nákvæm endursköpun ákveðins atburðar.
Minnstu smáatriði skipta líka miklu. Á því byggist trúverðugleiki og afl
52
TMM 1997:4