Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Blaðsíða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Blaðsíða 99
LITLU VARÐ VÖGGUR FEGINN skiptu hleypidómar, hégómadýrð, þrákelkni og persónulegar illdeilur ekki minna máli, í stuttu máli sagt, það rigndi í upplýsingarsólinni. Upplýsingar- menn virðast hins vegar hafa blindast í herferðum sínum um skuggaheima „fáfræðinnar“, dýramörsbirta þeirra átti að útrýma því sem í spónasvælunni bjó, rökkurdimmu alþýðlegrar reynsluþekkingar, en „ef satt skal segja“, ritaði Jón forseti (1860), „þá skildu þeir harðla lítið, sem von var, þeir vissu ekki enn, heldur en Nikodemus, hvaðan vindurinn kom eða hvert hann fór. Til hvers á þá að láta sér svo drembilega, eins og maður þykist vita allt og skilja allt, og ekki vilja heyra annað nefht“7. Framsókn „upplýstrar skynsemi“ hérlendis mótaðist af „andskynsamlegum“ öflum, ef svo má að orði kveða, áróðri, ritskoðun, valdbeitingu og hagsmunaátökum, enda er skynsemin einungis ein aðferðafræði af mörgum, hefur verið skrifað, hvorki betri né verri en aðrar sem ýmist eru góðar eða slæmar, heiðarlegar eða óheiðarlegar, flóknar eða frumstæðar, mannúðlegar eða mannfjandsamlegar frá sjónar- miði annarra hefða.8 Vísindabylting upplýsingarmanna náði auk þess ekki nema til lítils hluta þjóðarinnar, eins og sjá má af átökum um skáldskap og útgáfumál á seinni hluta nítjándu aldar (upplýsingaröld hinni seinni). Til- gátan um annað tveggja, fullkomin umskipti myrkurs og ljóss, hjátrúar- fáfræði og skynsamlegrar þekkingar, hefur samt sem áður smitað út frá sér innan íslenskra fræða, enda gleymdist mörgum að upplýsingin var stefnu- skrá en ekki eigind raunveruleikans. Við þurfum því ný hugtök til að lýsa hugsunum hinna dauðu, nýtt málfar sem útilokar ekki ákveðnar spurningar fýrir fram; einfaldar andstæður trúar og skynsemi, töfra og vísinda, dul- hyggju og upplýsingar ná ekki utan um þekkingarheim sem var „samsett kerfi ólíkra og jafnvel andstæðra trúarviðhorfa“, eins og Hjalti Hugason hefur orðað það, „þar sem hugmyndir frá forkristnum tíma, kaþólsk miðaldavið- horf og lútersk trúartúlkun hafa ofist saman í fjölþætt munstur“9; við þurfum í þessu samhengi að tileinka okkur fræðilega hugsun sem kenna má við róttæka fjölhyggju og er andstæð kerfishugsun Foucaults í Orðum og hlutum. Bókmenntasaga III ber vitni um slíka viðleitni, en um Einar Má gildir líkt og marga fleiri að ósmiðnum verður allt að úrkasti, þannig að rétt er að reyna þolinmæði lesenda eftir því sem rými vinnst til, svo hver og einn geti metið um hvað málið snýst. Með það í huga verður hér á eftir haldið austur fýrir fjall líkt og í upphafi Bókmenntasögu III. 3 Með „þekkingargerðum“ er hvorki átt við ómeðvituð, alltumlykjandi þekk- ingarkerfi, vísindaleg viðtök eða lögmálafléttur né meðvitaðar lífsskoðanir og opinber trúaratriði, heldur er miðað við vitsmunaleg form sem tengdust TMM 1997:4 97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.