Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1997, Page 29
LIST AMANNSLÍF árum fyrr eða síðar. Það eitt gerir ekki útslagið hvort listaverkið er nútímalegt eða gamaldags. I tónlistinni eru uppi ýmsir höfundar sem halda að þeir séu klassískir og hefðbundnir, jafnvel þjóðlegir, en eru bara gamaldags, útjaskaðir og úreltir. 9 Þegar heim kom tóku við erfið ár. Það tók mig nokkurn tíma að finna mér farveg, þar sem ég gat moðað úr þeim áhrifum sem ég hafði tekið inn í mig. Ég átti í kreppu í nokkur ár, bæði listrænni og persónulegri. En eítir að ég var kominn af stað var ég óstöðvandi. Mér var illa tekið af tónlistarliðinu, krítíkerunum og menningarvitunum. En áheyrendur tóku mér vel og við nokkra fordómalausa og forvitna spilara átti ég góða samvinnu. Menningarkommarnir voru á móti tónlist minni því hún var algjörlega andstæð stefhu rússneska kommúnistaflokksins og dólgamarxisma hinna íslensku áhangenda hans. Og hinir borgaralegu sem réðu lögum og lofum á hægri kantinum hræddust og fordæmdu miðevrópska framúrstefnu. Þeir sáu í henni einhvers konar kommúnisma, en á þessum árum voru margir grunaðir um að vera laumukommar. Framsóknarmönnum allra flokka var alltaf illa við verk mín. Sá eini úr tónlistarklíkunni gömlu sem ég kunni að meta var Páll ísólfsson. Ég kynntist honum vel, útsetti fyrir hljómsveit tvö verka hans. Páll var fyrst og fremst prýðilegur organisti, skipuleggjari og alþýðuffæðari í orðsins bestu merkingu. Hann hafði upphaflega góða tónsmíðagáfu sem hann ræktaði ekki sem skyldi. Starfskraftar hans fóru í uppbyggingarstarf en ekki í nýsköp- unarstarf í tónsmíðum. Menningarheimurinn hér heima var innilokaður og íhaldssamur. Menn voru ánægðir með sjálfa sig, hældu hver öðrum upp í hástert,undu glaðir við sitt. Mér fannst mottóið vera: þursi ver sjálfum þér nægur. Þegar ég kom heim frá námi kynntist ég vel Bohdan Wodiszco hljómsveit- arstjóra, sem þá var að byggja upp Sinfóníuhljómsveitina. Heimamenn losuðu sig við hann á leiðinlegan hátt eins og fleiri afburðamenn sem hér hafa skarað ffam úr. Sagt var að Bohdan hefði móðgað einhvern tónlistar- stjóra í Útvarpinu. En Bohdan varð mér andlegur faðir og las yfir fyrir mig flest það sem ég samdi á þessum árum. Hann var hámenntaður snillingur með mikla yfirsýn. Hann hafði verið í þrælabúðum nasista, var ástríðufullur pólskur föðurlandsvinur og hafði komist í kast við þjóna Stalíns og hafði farið illa út úr því. Hann kom mér í kynni við pólska samtímatónlist og marga af mestu TMM 1997:4 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.