Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 57

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 57
ALVARLEGAR SAMRÆÐUR Strindberg er einn þeirra. í formála sínum að Giftas leitast hann við að rétta hlut Helmers, sýna hve vel hann hafi alltaf komið ff am við Nóru þrátt fyri að hún sé í reyndinni eyðslukló og lygari. Strindberg spyr hvort ekki sé ofur eðlilegt að Helmer vilji losa bankann við falsarann Krogstad og hvort ástæða sé til að sverta þann metnað Helmers að standa sig óaðfmnanlega í starfi. Strindberg veltir því einnig fyrir sér hvort sanngjarnt sé að hafa í flimtingum gleðina sem Helmer lætur í ljósi er hann hefur skuldabréf Krogstads í hönd- unum og áttar sig á því að ekki stafar lengur hætta ff á þessum samviskulausa lagasnápi. „Leggið hönd við hjartastað, fjölskyldufeður", skrifar Strindberg og spyrjið sjálfa ykkur hvort þið yrðuð ekki glaðir, ef þið fengjuð þau skilaboð, að ykkar heittelskaða eiginkona, móðir barna ykkar, hefði komist hjá því að vera send í tukthúsið. En það er of ódýr tilfmning! Nei, dýrara skal það vera! Alla leið upp í hinn ídealíska lygahimin. Herra Helmer skal refsað. Hann er glæpamaðurinn.14 Varnarræða Strindbergs getur virkað sannfærandi sé litið á Brúðuheimili sem eina allsherjarárás á Borgarann og Fjölskylduföðurinn, á alla þá sem sækjast eftir borgaralegu hjónabandi og borgaralegum frama. Ibsen er hins vegar öllu nákvæmari hugsuður en Strindberg virðist átta sig á. I reyndinni kemur Strindberg ekki auga á vandamálið sem Ibsen er að glíma við með persónu Helmers. Það verður ljóst ef við berum Helmer saman við Krogstad. Krogstad vill ekkert síður en Helmer ná langt í samfélaginu, hann leggur ríka áherslu á að bæta orðspor sitt og vill gjarnan eignast eiginkonu sem er tilbúin að þjóna honum og börnum hans. Krogstad hlýtur þó ekki þau döpru endalok sem urðu örlög Helmers og Strindberg harmar. Öðru nær; síðustu orð Krogstads í leikritinu eru: „Ég hef aldrei fyrr verið svona ótrúlega ham- ingjusamur“ (187) og við höfum fulla ástæðu til að trúa á að honum takist að endurheimta orðspor sitt í samfélaginu, eins og hann segir frú Linde að hann ætli að gera (186). Bankamönnunum Helmer og Krogstad svipar nægilega saman í borgaralegum metnaði sínum til að við getum notað Krogstad okk- ur til glöggvunar á Helmer, eins og ég tel reyndar að Ibsen bjóði okkur að gera. En hver er munurinn á þeim? Að hvaða leyti er Helmer verr settur en Krogstad? Einu er vert að huga að hér, því að Krogstad, en ekki Helmer, hefur fengið að finna fyrir siðferðisvendi samfélagsins, honum hefur verið útskúf- að. Hann þarf því ekki að ímynda sér mátt vandarins, veit allt um áhrif út- skúfunar. Við þekkjum hversu erfitt getur verið að bíða eftir viðbrögðum samfélagsins og hversu auðvelt er að missa stjórn á huglitlu ímyndunaraflinu undir slíkum kringumstæðum. Helmer hefur hins vegar ekki fengið að kenna á refsivendi samfélagsins og í huga hans kann sá vöndur einn daginn TMM 2000:1 www.malogmenning.is 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.