Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Page 62
RÓBERT H. HARALDSSON gjálfrið svo vel að samhenginu, því sem hér er nefnt yfirborðsviðfangsefni verksins, að við veitum því litla athygli. Að mínum dómi ynni engin túlkun jafn mikið gegn markmiði Brúðuheimilis og sú sem gerði Helmer að hlægilegri skopmyndapersónu. Vandamálið sem gegnumlýst er með persónu hans er vissulega spaugilegt en um leið er það grafalvarlegt og stendur hverjum ein- staklingi of nærri til að hægt sé að eigna það einni skoplegri persónugerð. Þegar yfirlýsingar Helmers eru skoðaðar í því ljósi sem hér hefur verið varpað á þær er freistandi að álykta að Helmer sé falskur, að hann tali þvert um hug sér. Létum við undan þeirri freistingu kæmum við hins vegar aldrei auga á höfuðgagnrýni verksins á Helmer. Engin ástæða er til að ætla að þau ummæli Helmers sem hér hefur verið vitnað til séu sögð gegn betri vitund. Raunar eru fá dæmi í Brúðuheimili um að Helmer sé falskur eða óeinlægur,17 - a.m.k. virðist hann aldrei einlægari en einmitt þegar hann lætur falla þau ummæli sem eru í hvað skoplegasta ósamræmi við getu hans og gerðir. Við höfum fulla ástæðu til að ætla að enginn yrði jafn undrandi og einmitt Hel- mer sjálfur ef einhver persóna verksins benti honum á gjána milli orða hans og gerða. Á vissan hátt má segja að vandi hans væri minni og viðráðanlegri ef hann talaði viljandi gegn betri vitund því þá gæti hann e.t.v. ákveðið að hætta því! Brúðuheimili Ibsens er oft borið saman við Kúgun kvenna (1869) eftir John Stuart Mill enda margt líkt með þessum góðu verkum. Þó tel ég að kafli úr annarri bók Mills varpi ekki síður athyglisverðu ljósi á Brúðuheimili, eink- um þann vanda sem Ibsen gegnumlýsir með persónu Helmers. Kaflinn sem ég hef í huga er í Frelsinu, sem út kom árið 1859, réttum tuttugu árum á und- an Brúðuheimili. Þar gagnrýnir Mill kristna samtímamenn sína (og Ibsens) og tekur kristna kenningu sem skýringardæmi um dauða kenningu. Kenningar, sem í eðli sínu eru til þess fallnar að hafa djúptæk áhrif á sálir manna, eiga ákaflega hægt með að umhverfast í dauðan bókstaf, sem orkar hvorki á hugarflug, tilfinningalíf né skynsemi. Þetta birtist einkar glöggt í þeim hætti, sem allur þorri kristinna manna hefur á um kristna kenningu. Með kristinni kenningu á ég þá við það, sem allar kirkjur og trúflokkar játa: boðorð og lífsreglur Nýja testamentisins.18 Mill tekur síðan nokkur dæmi af vel þekktum skoðunum, boðorðum og lífs- reglum sem kristnir menn játa virðingu sína: Allir kristnir menn trúa því, að sælir séu fátækir og lítillátir, einnig þeir, sem ofsóttir eru. Þeir trúa því, að auðveldara sé fýrir úlfalda að ganga í gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að ganga inn í guðs- ríki, að menn skuli ekki dæma, til þess að þeir verði ekki dæmdir, og alls ekki sverja. Maður skuli elska náunga sinn eins og sjálfan sig, og 52 www.malogmenning.is TMM 2000:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.