Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Side 82
BALDUR HAFSTAÐ Hið bólgna orðalag um kosmos verður í bókstaflegum skilníngi hlægilegt ef reynt er að þýða það. (89) Þegar kvæðunum átti að snúa á mál heimspekinnar [þ.e. þýsku] höfðu þau óviðráðanlega tilhneigíngu til að verða marklaust hjal... (90) ... einhverskonar fordild, óskyld skáldskap, rak hann útí iðju sem of oft fólst í því að smíða tröllaukin ílát utanum loft, volduga minnis- varða yfir sosum ekki neitt. (90) Laxness skrifar hér um álit sitt á kveðskap Einars. Um sögurnar ræðir hann ekki á þessum stað eða öðrum vettvangi. Valshreiðrið er sennilega þekktasta og vinsælasta smásaga Einars Bene- diktssonar. Hún birtist í Sögum ogkvæðum (ártalið á bókinni er 1897; hún mun þó ekki hafa komið út fyrr en snemma árs 1898) en hafði fyrst litið dagsins ljós í blaði Einars Dagskrá í fimm hlutum í ágústmánuði árið 1896. Samtímamenn Einars báru strax lof á söguna. Hannes Þorsteinsson ritstjóri Þjóðólfs segir hana langffemsta af sögunum í safninu og fer um hana mörg- um orðum (15. apríl 1898). Þeir Jón Ólafsson og Þorsteinn Gíslason hrósa sögunni einnig í blöðum sínum, Nýju öldinni (23. apríl) og íslandi (18. apríl) en eru ffemur neikvæðir í garð bókarinnar í heild og spara þá ekki stóryrðin. Almennt um smásögurnar segir Matthías Jochumsson í Þjóðólfi (20. maí) að þær séu afbragð og sýni „ekki smáfelda sálarhæfileika".1 Og áttatíu árum síð- ar segir Kristján Karlsson að Valshreiðrið sé „meðal allra bestu smásagna tungunnar" (9). f Valshreiðrinu er sagt frá ungum elskendum. Þau voru nágrannar og kunnug ff á barnæsku. Hann var fátækur en hafði verið kostaður í skóla; hún var falleg og efnuð. Þau höfðu verið trúlofuð í nokkur ár og hann bar silfur- hring frá henni. Hún var viljasterk og bjó yfir sannfæringarkraffi. Hann hafði oft látið undan henni í leik og sætti sig allvel við það enda hreifst hann af kappi hennar og jafhffamt af þeirri blíðu sem hún átti stundum til. En „... smátt og smátt læddist sú meðvitund inn í huga minn, að hún ekki ein- asta stæði ofar en jeg, heldur líka að hún finndi það sjálf...“ (60). Lítið atvik varð svo til þess að leiðir þeirra skildi. Þau höfðu gengið fram á klettabrún sem valur átti hreiður undir: Við litum út yfir hamraflugið og svo hvort á annað. Okkur datt báð- um það sama í hug. „Þorirðu að síga?“ sagði hún, og gægðist fram yfir brúnina, en hjelt sjer þó í handlegginn á mjer. (62) 72 www.malogmennmg.is TMM 2000:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.