Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 41

Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 41
FRÉTTIR 41Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Kringlunni 4 | Sími 568 4900 ÚTSALAN er hafin Sérfræðingar frá Frakklandi og Singapúr aðstoðuðu í gær við leit að farþegaþotu flugfélagsins AirAsia sem hrapaði í hafið í óveðri undan strönd Indónesíu á sunnudaginn var. Franskir sérfræðingar notuðu hljóðsjárbúnað við leitina að far- þegaþotunni og flugritum hennar, svörtu kössunum svonefndu. Slæmt veður er á svæðinu og hefur torveld- að leitina. Á 25 til 32 metra dýpi Þrjátíu lík höfðu fundist í sjónum í gær. Alls voru 162 í vélinni sem var af gerðinni Airbus A320-200 og á leiðinni frá indónesísku borginni Su- rabaya til Singapúr þegar hún hvarf. Flestir þeirra, eða 155, voru frá Indónesíu. Af 145 farþegum þotunn- ar voru átján börn. 29 skip og 17 flugvélar hafa tekið þátt í leitinni og 40 rússneskir kaf- arar komu á svæðið í gær. Leitað var á 1.575 fersjómílna svæði í Jövuhafi og talið er að þotan liggi á 25 til 32 metra dýpi. Nokkur brot úr þotunni hafa fundist, en ekki skrokkurinn. Ofreis þotan? Ekki er vitað um orsök slyssins. Fréttaveitan Reuters hafði eftir rannsóknarmanni að ratsjárgögn bentu til þess að þotan hefði ofrisið skömmu áður en hún hvarf af ratsjá. Heimildarmaðurinn lagði þó áherslu á að rannsókninni á ratsjárgögnun- um væri ekki lokið og of snemmt væri að fullyrða nokkuð um hvað olli slysinu. Áður en farþegaþotan fór á loft hafði flugstjórinn óskað eftir leyfi flugumferðarstjóra til að fljúga hærra en gert var ráð fyrir í flug- áætlun til að sneiða hjá óveðri sem var á þessum slóðum. Beiðninni var synjað vegna mikillar flugumferðar á svæðinu. Eftir að þotan var komin á loft bað flugstjórinn um að fá að hækka flug- ið og breyta flugstefnunni vegna óveðursins. Þotan fékk að breyta stefnunni en beiðni um að hækka flugið úr 32.000 fetum í 38.000 fet var ekki samþykkt vegna hættu á árekstri við aðrar flugvélar. Tveimur eða þremur mínútum síðar hugðist flugumferðarstjóri heimila þotunni að hækka flugið í 34.000 fet en þá hafði sambandið við þotuna rofnað, um 40 mínútum eftir flugtak, að sögn flugumferðarstjórnar Indónesíu. bogi@mbl.is AFP Sorg Ættingjar farþega sem fórust í slysinu gráta á sjúkrahúsi í Surabaya. Þotan kann að hafa ofris- ið áður en hún hrapaði  Farþegaþotu leitað í Jövuhafi  Orsök slyssins enn ókunn Flest tilfelli krabbameins eru vegna hreinnar óheppni frekar en óheil- brigðs lífsstíls eða erfða. Handa- hófskenndar stökkbreytingar í DNA-erfðamengi þegar frumur skipta sér eru ástæðan í um tveim- ur þriðja krabbameinstilfella, en þriðjungur orsakast af ytri áhrif- um, umhverfisáhrifum eða erfðum. Þetta kemur fram í nýrri rann- sókn sem vísindamenn við John Hopkins-háskólasjúkrahúsið í Bandaríkjunum gáfu út nýlega. Þeim mun oftar sem frumur skipta sér, þeim mun líklegra er að DNA- erfðakeðjan ruglist, sem getur leitt til aukinnar áhættu á krabbameini. Í rannsókninni kemur fram að þessi handahófskennda stökkbreyting eigi sér stað í 65% krabbameins- tilfella. „Öll tilfelli krabbameins eru til- komin vegna blöndu af óheppni, umhverfinu og erfðum,“ segir Bert Vogelstein á John Hopkins- háskólasjúkrahúsinu. Meðhöfundur að rannsókninni, Cristian Tom- asetti, einnig frá John Hopkins, segir að með þessu sjáist að um þriðjungur krabbameinstilfella sé vegna umhverfisþátta, sem geti m.a. verið lífsstíll og mataræði. Niðurstaða rannsóknarinnar sé sú að heilbrigt líf geti minnkað lík- ur á sjúkdómnum en aðrar aðferðir geti verið áhrifaríkari í baráttunni gegn honum. „Við ættum að ein- beita okkur meira að því að finna leiðir til að finna krabbamein snemma, þegar það er á læknan- legu stigi,“ segir Tomasetti. Óheppni aðalástæða krabba  Krabbamein oftast háð tilviljun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.