Morgunblaðið - 03.01.2015, Side 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16
ÚT
SA
LA10 - 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUMHÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU
Skákþing Reykjavíkur semhefst á morgun, hinn 4.janúar, er tileinkað Frið-riki Ólafssyni, fyrsta stór-
meistara Íslendinga, sem verður
áttræður hinn 26. janúar næst-
komandi. Friðrik hefur alla tíð
verið félagsmaður í Taflfélagi
Reykjavíkur, en hann tók þátt í
sínu fyrsta opinbera móti fyrir
tæplega 70 árum. Það hlýtur að
gleðja Friðrik og aðra velunnara
elsta taflfélags landsins hversu vel
er haldið á málum hjá TR um
þessar mundir. Félagið hefur auð-
vitað farið í gegnum hæðir og
lægðir á langri ævi en félagsleg
staða þess er sterk í dag. Það var
stofnað aldamótaárið 1900 og hef-
ur ávallt verið ein aðalkjölfestan í
skáklífi Íslendinga. Núverandi
Skákmeistari Reykjavíkur er Jón
Viktor Gunnarsson, sem er skráð-
ur til leiks ásamt mörgum sterk-
um skákmönnum á borð við Björn
Þorfinnsson, Omar Salama, Þor-
varð Fannar Ólafsson og Sævar
Bjarnason.
Tveir gamlir TR-ingar eiga
einnig stórafmæli í þessum mán-
uði; Ólafur H. Ólafsson og Bragi
Kristjánsson verða báðir 70 ára
hinn 8. janúar næstkomandi. Ólaf-
ur og Bragi áttu stóran þátt í
vexti og viðgangi TR á löngu
tímabili, ekki síst eftir að TR
eignaðist sitt eigið húsnæði við
Grensásveg. Ólafur fór fyrir mikl-
um breytingum á starfsemi TR,
sem fólust í mögnuðu barna- og
unglingastarfi frá því um miðjan
áttunda áratuginn. Bragi beitti sér
fyrir skákkennslu og þjálfun
ungra skákmanna og kvenna og
var um tíma skólastjóri Skákskóla
Íslands. Ólafur var býsna sterkur
skákmaður og átti t.d. sæti í liði
Íslands á heimsmeistaramóti stúd-
enta ári 1971, en það ár varð hann
í 2. sæti í meistaraflokki á Skák-
þingi Íslands. Hann dró mjög úr
taflmennsku eftir að hann settist í
stjórn TR. Bragi Kristjánsson var
einn af fremstu skákmönnum Ís-
lands á sjöunda áratugnum; átti
sæti í ólympíuliði okkar árin 1964
og 1968, varð Skákmeistari
Reykjavíkur árið 1968 og tefldi á
nokkrum af fyrstu Reykjavíkur-
skákmótunum, Meðfram sat hann
oft í stjórnum þessara móta.
Skipulag Reykjavíkurmótsins 1968
var þannig til mikillar fyrir-
myndar, en þar réðst TR í útgáfu
vandaðs bæklings á ensku um
mótshaldið. Bragi stóð sig vel á
þessu Reykjavíkurmóti, sem hald-
ið var vorið 1968 í minningu Will-
ards Fiske, og var sérstaklega
hættulegur þegar hann fékk að
beita Sikileyjarvörn. Hann vann
þennan ágæta fulltrúa Bandaríkj-
anna á sannfærandi hátt:
William Addison – Bragi
Kristjánsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7.
f4 Be7 8. Bf3 0-0 9. 0-0 Dc7 10.
Kh1 Rc6 11. Rde2 b5 12. a3 Bb7
13. g4 d5!
Árás á væng skal svarað með
árás á miðborði! Þó að Scheven-
ingen-afbrigði Sikileyjarvarnar-
innar hafi ekki verið mjög þróað á
þessum tíma teflir Bragi
óaðfinnanlega
14. exd5 Had8 15. g5 Rxd5 16.
Rxd5 exd5 17. Rc3 Ra5 18. f5
Rc4!
Lætur sér fátt um finnast þó að
f-peðið virki ógnandi.
19. f6 Bc5 20. fxg7 Hfe8!
Menn svarts standa allir vel til
sóknar og hvítur er sérstaklega
veikur fyrir á hornlínunni a8-h1.
21. Re2 d4 22. Bf4 Bxf3 23.
Hxf3 Dc6 24. Rg1
24. … Re3!
Góður leikur en aðrir vænlegir
kostir voru 24. … d3 og
24. …Rxb2.
25. Dd3 Hd5 26. He1 Bb6 27. c3
Opnar stöðuna enn meira. Eitt-
hvert hald var í 27. h4.
27. … dxc3 28. Dxc3 Hc5 29.
Db3 Hf5!
– og hvítur gafst upp. Engin
vörn fyrirfinnst við hótuninni 30. ..
Hxf4 o.s.frv.
Stórafmæli Taflfélagsmanna
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.isc
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Erkifjendur Friðrik Ólafsson og danski stórmeistarinn Bent Larsen háðu marga hildi á skákborðinu.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni
forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á
lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein-
ingar fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið er
nóg að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið. Hægt er
að senda greinar allan sólarhring-
inn.