Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 64
64 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
✝ Karl ElíasKarlsson
fæddist 10. nóv-
ember 1922 á
Stokkseyri. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Ási í Hver-
garði 26. desem-
ber 2014.
Foreldrar hans
voru Sesselja
Jónsdóttir, f. 26.
febrúar 1892, d. 8.
september 1977, og Guð-
mundur Karl Guðmundsson, f.
28. maí 1892, d.10. júlí 1929.
Systkini Karls voru Sigmund-
ur, f. 1912, d. 1994, Jón Svav-
ar, f. 1914, d. 1964, Ársæll, f.
1915, d. 1990, Olga, f. 1917, d.
1976, Laufey Sigríður, f. 1919,
og lifir hún bróður sinn, Anna,
f. 1921, d. 1942, Jens Þór-
arinn, f. 1925, d. 1985, og
Baldur, f. 1927, d. 1989. Sam-
feðra var Eygló María Guð-
mundsdóttir, f. 5. júní 1923, d.
september 1968.
Karl Elías kvæntist 4. októ-
ber 1946 Sigríði Jónsdóttur
frá Stokkseyri, f. 4. október
inkona hans var Lára Jóna
Helgadóttir. Erla, f. 16. apríl
1957. Eiginmaður hennar er
Þórður Eiríksson og eiga þau
þrjá syni og fimm barnabörn.
Kolbrún, f. 24. janúar 1959.
Sigríður, f. 23. maí 1961. Eig-
inmaður hennar er Jóhann
Magnússon og eiga þau þrjá
syni og fjögur barnabörn.
Halldóra Ólöf, f. 29. júní 1962.
Eiginmaður hennar Svavar
Gíslason og eiga þau þrjá syni
og þrjú barnabörn. Jóna
Svava, f. 8. desember 1963.
Eiginmaður hennar er Sveinn
Jónsson og eiga þau fjögur
börn og tvö barnabörn.
Drengur, f. 21. febrúar 1965,
d. 22. febrúar 1965.
Karl og Sigríður hófu bú-
skap á Stokkseyri en fluttu til
Þorlákshafnar 1954 og settust
að á B-götu 6 og voru þar með
ein af frumbyggjum þessa
unga samfélags sem Þorláks-
höfn var á þeim tíma. Seinna
byggðu þau sér einbýlishús að
Heinabergi 24. Karl var einn
af fyrstu skipstjórum sem hið
nýstofnaða fyrirtæki Meitillinn
réð til sín. Hann var aflasæll
skipstjóri árum saman og
gerðist útgerðarmaður sjálfur
og fiskverkandi.
Útför Karls Elíasar verður
gerð frá Þorlákskirkju í dag,
3. janúar 2015, kl. 14.
1928, d. 22. mars
2004. Foreldrar
hennar voru Jón
Magnússon, f. 9.
september 1891, d.
30. janúar 1982,
og Halldóra Ólöf
Sigurðardóttir, f.
30. júní 1893, d.
14. júlí 1963. Sig-
ríður og Karl
eignuðust 11 börn
en 10 þeirra kom-
ust á legg. Ástríður, f. 16. apr-
íl 1946, d. 27. júlí 2011. Eig-
inmaður hennar var Jón Arvid
Tynes og eignuðust þau tvær
dætur og þrjú barnabörn.
Seinni maður Ástríðar var
Ingimundur Pálsson. Guð-
finnur, f. 9. ágúst 1947. Eig-
inkona hans er Jóna Kristín
Engilbertsdóttir og eiga þau
þrjú börn og tíu barnabörn.
Jón, f. 2. október 1949, Karl
Sigmar, f. 19. september 1951.
Eiginkona hans er Guðrún
Sigríks Sigurðardóttir og eiga
þau tvö börn og fjögur barna-
börn. Sigurður, f. 6. desember
1954, d. 10. október 1999. Eig-
Það fækkar í þeim hópi sem
fyrst setti niður tjaldhæla sína í
Þorlákshöfn. Í dag kveðjum við
Karl Elías Karlsson, skipstjóra
eða Kalla Karls eins og hann
var jafnan nefndur.
Hluti af þessum hópi voru
þau Sigga og Kalli, sem hófu
búskap sinn á B-götu 6. Þau
áttu og komu upp stórum hópi
barna, tíu urðu börnin, af þessu
hópi eru tvö fallin frá, þau Ásta
og Siggi, en flest önnur búa
enn í Þorlákshöfn og er stór
ættbogi komin frá þeim hjón-
um. Kalli byrjaði sinn for-
mannsferill sem kornungur
maður á Ægi frá Stokkseyri
þar sem menn urðu að kunna
þá list að sigla á milli skers og
báru. Kalli var strax aflasæll,
en þar kom að útgerðin var
seld og þá hófst skipstjórnar-
ferill hans hjá Meitlinum. En
hugur hans stóð fljótt til að
fara í eigin útgerð og upp úr
1960 kaupir hann Hrönn, en sú
útgerð varði ekki lengi, því í
foráttubrimi slitnaði Hrönnin
upp, rak upp í fjöru og bar þar
beinin. En Kalli lagði ekki árar
í bát og skömmu síðan kaupir
hann bát sem fékk nafnið
Reynir. Er hér var komið sögu
voru strákarnir hans, þeir
Finni og Simmi, komnir um
borð, Finni sem stýrimaður og
Simmi sem vélstjóri . Þetta
þríeyki; Kalli í brúnni, Finni
allsráðandi á dekkinu og Simmi
í vélarúminu átti farsæla og
góða útgerðarsögu. Þetta var
fyrir tíma kvótakerfisins, hart
var sótt og mikil keppni á milli
manna og þurftu því skipstjór-
ar að vera kjarkaðir sem klókir.
Tvær stuttar sögur lýsa því vel.
Það var komið fram í mars
og þorskurinn gekk hratt á Sel-
vogsbankann og fljótt dreif að
mikinn fjölda báta og togara.
Kalli var búinn að setja trossur
sínar á góðan blett og fiskaði
vel. En þær fengu ekki að vera
í friði, togararnir voru sífellt að
fara í þær og þar kom að hon-
um var nóg boðið. Hann kallar
togarann upp og tjáir togara-
skipstjóranum að það gangi
ekki, að það sé sífellt verið að
toga utan í trossurnar og úr
þessu spannst mikil rimma,
sem endar með því að Kalli
segir í lokin: „Ef þú lætur
trossur mínar ekki í friði þá
sigli ég þig niður.“ Fyrir þá
sem ekki þekkja til þá má geta
þess að bátur Kalla var um 50
tonna eikarbátur, en togarinn
var 10 sinnum stærra stálskip.
En skipstjórar þurftu einnig
að vera klókir. Það var ein-
hverju sinni að Kalli var nýbú-
inn að leggja trossu á Sann-
leiksstöðum og er þeir fóru að
draga, reyndist hún vera bunk-
uð af fiski. En er skammt var
liðið á dráttinn sá Kalli að
Stokkseyrabátarnir voru að
koma út. Hann sagði strákun-
um að slaka netariðlunum aftur
út og er bátarnir sigldu
framhjá drógu karlarnir trossu
sem var steindautt í.
Er Kalli kom í land gaf hann
kost á sér á lista sjálfstæð-
ismanna í hreppsnefndarkosn-
ingum árið 1974 og var oddviti
eitt kjörtímabil. Undirritaður
átti mikið samstarf við hann á
seinni hluta kjörtímabilsins og
það var gott að vinna með
Kalla, hann var sem fyrr kapp-
samur en á sama tími vildi
hann ekki flana að neinu.
Við Birna sendu þeim Finna,
Nonna, Simma, Erlu, Kollu,
Siggu, Dóru og Svövu og fjöl-
skyldum þeirra okkar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Kalla
Karls.
Þorsteinn Garðarsson.
Karl Elías
Karlsson
Elsku drengur-
inn okkar er farinn
frá okkur og ekk-
ert getur breytt
því. Þú komst inn í þennan
heim svo fallegur, með dökk
augu. Mikið vorum við oft stolt
af þér, því þú varst svo ein-
stakur með svo mikla hæfileika.
En þú hafðir miklar birgðir að
bera, elsku hjartað okkar. En
afrekaðir samt svo miklu. Hafð-
ir einstakan húmor og áttir létt
með að laða fólk að þér. Þú
valdir þér metnaðarfullan há-
skóla sem gerði þig hamingju-
saman.
Við kveðjum þig með miklum
söknuði.
Mamma og pabbi.
Elsku Haraldur okkar, við
eigum mjög erfitt með að trúa
því að þú sért farinn frá okkur.
Það voru svo mikil forréttindi
að fá að kynnast þér. Þú hafðir
mikinn persónusjarma og gast
hrifið alla með þér á þínum
góðu tímum. Þú varst svo
skemmtilegur, vissir margt og
kenndir okkur svo mikið. Hæfi-
leikar þínir í listinni leyndu sér
ekki og þú skildir eftir þig
mörg flott verk. Þú elskaðir að
borða góðan mat og þá er okk-
ur sérstaklega minnisstætt
þegar við þrjú sátum í eldhús-
inu, ég, þú og bróðir þinn að
Haraldur
Ólafsson
✝ HaraldurÓlafsson fædd-
ist 20. nóvember
1987. Hann lést á 6.
desember 2014. Út-
för Haraldar fór
fram 19. desember
2014.
borða egg og beik-
on, svo datt eitt
beikonið í gólfið og
við ætluðum að
gefa hundinum
okkar það en þú
sagðir nei ekki
séns og varst fljót-
ur að grípa það
upp úr gólfinu og
borða það, svo
sagðirðu þetta
styrkir bara
ónæmiskerfið. Við söknum þess
nú þegar að fara með þér í bíó,
á tónleika og þá sérstaklega
þeirra stunda þegar við sátum
saman í stofunni að hlusta á
góða tónlist og spjalla um allt
milli himins og jarðar. Þú varst
svo góður strákur og vildir öll-
um vel. Við erum svo þakklát
fyrir þann tíma sem við fengum
með þér, þó að hann hafi verið
allt of stuttur. Við eigum enda-
laust mikið af minningum um
þig sem munu aldrei gleymast.
Hvíldu í friði.
Eva Dögg og Arnar Ingi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum.)
Við leiðarlok kveð ég minn
elskulega frænda með sárum
söknuði og ríku þakklæti fyrir
þann tíma sem ég átti með hon-
um. Hann var ljúfur og góður
drengur en viðkvæmur. Ég
sendi foreldrum hans og
bræðrum samúðarkveðjur frá
mér og fjölskyldu.
Kristín, Magnús
og dætur.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
SIGURBJÖRG RAGNARSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum að kvöldi
fimmtudagsins 18. desember.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 5. janúar kl. 13.00.
Ragnar Aðalsteinsson, Jónína Magnúsdóttir,
Eggert Aðalsteinsson,
Kristín Aðalsteinsdóttir,
Svanlaug Aðalsteinsdóttir, Sigurjón Kristinsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSGEIR HJÁLMARSSON
frá Djúpavogi,
Álfaskeiði 72,
Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans 17. desember. Útförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 5. janúar kl. 13.00.
.
Halldóra Kristín Jónsdóttir,
Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir, Sigmar Sigurðsson,
Hjörtur Ásgeirsson, Bríet Pétursdóttir,
Harpa Ásgeirsdóttir, Jónas Guðmundsson,
Ásgeir Ævar Ásgeirsson,
Hallur Kristján Ásgeirsson, Tinna Rut Guðmundsd.,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI GUÐMUNDSSON
bifreiðasmíðameistari,
Berjarima 2,
lést á Landspítalanum þann 28. desember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 9. janúar kl. 13.
.
Hulda Ragnarsdóttir,
Guðmundur Gíslason, Margrét Þorvaldsdóttir,
Sólveig Gísladóttir, Einar I. Einarsson,
Ingveldur Gísladóttir, Ómar F. Dabney,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT LÁRUSSON
verslunarmaður,
Tjarnarási 7a,
Stykkishólmi,
lést mánudaginn 29. desember
á St. Franciskusspítala í Stykkishólmi.
Kristín Björnsdóttir,
Eyþór Benediktsson, Unnur H. Valdimarsdóttir,
Ingibjörg H. Benediktsdóttir, Gretar D. Pálsson,
Bryndís Benediktsdóttir, Birgir Jónsson,
Björn Benediktsson, Árþóra Steinarsdóttir,
Lára Benediktsdóttir,
Anne Bau,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA CHR. HANSEN,
lést á Droplaugarstöðum
mánudaginn 29. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.00.
Guðrún Birna Ólafsdóttir, Kristinn Hörður Grétarsson,
Ólafur M. Ólafsson, Chona H. Ólafsson
og ömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVEINBJÖRN INGIMUNDARSON,
Álfaskeiði 43,
Hafnarfirði,
áður bóndi á Yzta-Bæli,
Austur-Eyjafjöllum,
lést þriðjudaginn 30. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 9. janúar
kl. 13.00.
Örn Sveinbjarnarson, Guðrún Ó. Guðmundsdóttir,
Sigurður Ingi Sveinbjarnarson,
Markús G. Sveinbjarnarson, Selma Filippusdóttir,
Ingimundur Sveinbjarnarson,
Hrafn Sveinbjarnarson, Anna Dóra Pálsdóttir,
Ester Sveinbjarnardóttir, Magnús Sigurðsson,
Helga Sif Sveinbjarnardóttir, Haukur Örn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTJANA EINARSDÓTTIR
frá Borgum á Skógarströnd,
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
áður til heimilis í Vogatungu 51,
lést þriðjudaginn 23. desember.
Jarðarför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 7. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
Herdís Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
Jónía Jónsdóttir, Hreiðar Björnsson,
Þorbjörn E. Jónsson, Magdalena Axelsdóttir,
Vigfús F. Jónsson,
Erla Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann