Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 76

Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt frá 1.495 Snjósköfur margar gerðir Dráttartóg, ýmsar gerðir Bensínbrúsar Plast/Blikk 5, 10, 20L Vasaljós og lugtir, yfir 30 gerðirÍseyðir-spray á hélaðar rúður frá 125 frá 1.495 frá 495 Strekkibönd Bílrúðusköfur frábært úrval Snjóskóflur margar gerðir frá 1.999 frá 1.495 Startkaplar Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Árni Ágúst Brynjólfsson Indriði Jónsson Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is Við óskum landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju ári með árlegum sveiflualdartón- leikum sem haldnir verða í Silf- urbergi í Hörpu á morgun kl. 17. Flutt verða lög frá gullöld sveifl- unnar sem stóð yfir frá 1930 til 1945 eða þar um bil, mörg af þekktustu lögum stórsveita sveifl- ustílsins og þá m.a. lög Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab Calloway, Charlie Barnet, Les Brown, Glenn Miller, Duke Ell- ington og Count Basie. Systkinin Páll Óskar og Sigrún Hjálmtýsbörn verða gestasöngvarar á tónleikunum ásamt söngkvartettinum Nútíma- mönnum og stjórnandi stórsveit- arinnar verður sem fyrr Sigurður Flosason. Tjaldað til einnar nætur „Ég hef tekið með þeim lagið af og til en ekki þetta prógramm. Þetta sem við erum að fara að gera á sunnudaginn er tengt við afmark- aðan tíma og við erum að fara að spila upprunalegar útsetningar af ákveðnum lögum sem voru vinsælar á þessum tíma. Ég hef aldrei flutt neitt af þessu áður og hér er bara tjaldað til einnar nætur, þetta verð- ur ekki endurtekið,“ segir Páll Ósk- ar um tónleikana. „Ég myndi ekki segja að þessi lög væru of oft flutt en eftir að hafa stúderað þau og lært skil ég mætavel af hverju þau voru smellir á sínum tíma. Það er gaman að stórsveitin bjóði manni svona í heimsókn og maður þiggur boðið,“ segir Páll Óskar. – Syngið þið Diddú saman eða í sitt hvoru lagi? „Við erum í sitt hvoru lagi en röddum síðan með hvort öðru því í þessum lögum er alltaf söngkvartett sem er stöðugt að grípa frammí fyrir söngvaranum,“ segir Páll Óskar og hlær. Nútímamenn verða með prakkaraleg frammíköll á borð við þau sem stunduð voru á gullöld sveiflunnar. Dressar sig upp en ekki niður – Þetta verða galatónleikar. Þú dregur væntanlega fram þín fínustu föt? „Jú, jú, maður dressar sig upp en ekki niður fyrir svona, það er alveg ljóst,“ segir Páll Óskar. Hvað æfing- ar varðar fyrir tónleikana segir Páll Óskar að söngvarar og hljómsveit hafi æft sig í sitt hvoru lagi. „Svo smellur þetta allt saman á lokametr- unum,“ segir Páll Óskar að lokum. Prakkaraleg frammíköll Morgunblaðið/Kristinn Sveifla Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum. Hún flytur lög frá gullöld sveiflutímabilsins í Silfurbergi á morgun.  Páll Óskar og Diddú í syngjandi sveiflu með Stórsveit Reykjavíkur Páll Óskar Hjálmtýsson Strengjakvartettinn Siggi kemur á morgun, sunnudag, klukkan 20, fram á tónleikum tónleikarað- arinnar Hljóðön í Hafnarborg. Tón- leikarnir bera yfirskriftina „Sam- hljómur 16 strengja“ og á þeim fá áheyrendur að kynnast hugrenn- ingum um kvartettformið með sam- einingu strengjahljóðfæranna fjög- urra og hljóðheiminum sem þau skapa saman. Hljóðön er tónleikaröð tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Á þessum tónleikum verða frum- flutt tvö tónverk; Strengjakvartett nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson og Þykkt, nýtt verk eftir Unu Svein- bjarnardóttur. Einnig verða leikin verk eftir Giacinto Scelsi og Naomi Pinnock. Kvartettinn Siggi er skipaður fiðluleikurunum Unu Sveinbjarn- ardóttur og Helgu Þóru Björgvins- dóttur, Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara og Sigurði Bjarka Gunnarssyni sellóleikara. Þau hafa öll komið víða við í íslenskum tón- listarheimi en strengjakvartettinn Siggi kom fyrst fram á tónleikum samnorrænu tónlistarhátíðarinnar UNM sem haldin var árið 2012. Þar strauk kvartettinn strengi, jafnt sem statíf og hljóðfærabúka. List- rænn stjórnandi Hljóðanar er Þrá- inn Hjálmarsson. Samhljómur Strengjakvartettinn Siggi tekst á við ný tónverk í Hafnarborg. Strengjakvartettinn Siggi í Hafnarborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.