Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 81
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef alltaf borið gerðar-legan kvíðboga fyrir svo-kölluðum ársuppgjörum í
tónlist, þar sem manni er gert að
setja saman númeraðan lista yfir
það sem hæst bar á plötuárinu.
Stöðu minnar vegna þurfa listarnir
nefnilega að líta út fyrir að ég sé
nú með puttann á púlsinum og í
raun mikilvægara að þar væri
plata með „samþykktum“ lista-
manni heldur en einhverjum sem
ég kynni að meta „upp á mitt ein-
dæmi“. Sólóplata Marks Knopflers
viki því ætíð fyrir einhverjum eit-
ursvölum hipsterum.
Fyrir nokkrum árum breyttist
þetta hins vegar. Hvað veldur veit
ég ekki nákvæmlega. Aldur,
reynsla, þroski. Mér fór einfald-
lega að standa mjög svo þægilega á
sama og eyði litlum tíma í vanga-
veltur hvað þetta varðar í dag. Og
boginn er á bak og burt. Þegar ég
er beðinn um þetta í dag hendi ég
því fyrsta sem mér dettur í hug inn
á listann, í hæfilega úthugsaðri röð
getum við sagt. Hlustunin er þó
sem fyrr gegndarlaus árið um
kring (og eykst ef eitthvað er) en
ég hef einfaldlega hent
„excel“-hugsunarhættinum út. Ég
sendi meira að segja tvo mismun-
andi lista frá mér á tvö mismun-
andi blöð þetta árið. Og það er
pottþétt að þar gleymdi ég ein-
hverri merkisplötunni. Svona er
maður nú orðinn flippaður á gam-
als aldri.
Hlustunarátak
Að þessu öllu sögðu langar
mig til að fara aðeins yfir erlenda
tónlistarárið. Plássins vegna ætla
ég að einbeita mér að þremur svið-
um ef svo má segja og við byrjum á
því kvenlæga. Á þessu ári fór ég
nefnilega í meðvitað hlustunarátak
(sjá grein mína „Hitt kynið“, 4.
október 2014 og „Hinn karllægi
tónlistarheimur“, 7. desember
2013, báðar í Morgunblaðinu).
Hvort árið var óvenjugott að því
leytinu til eða bara vegna þess að
ég þreif testósterónið úr eyrunum,
var margt af því besta sem ég
heyrði í ár úr ranni kvenna. Ef
byssu væri beint að mér og ég
krafinn um plötu ársins myndi ég
segja Are We There með Sharon
Van Etten, já, það allra besta sem
ég heyrði í ár. Platan óx innra með
mér hægt en örugglega (eins og
meistaraverkin gera einatt) og
þetta er frábær plata, tilfinn-
ingaþrungin og sláandi, svo ég fari
með lýsingarorðin í hæstu hæðir.
Þá vil ég nefna samnefnda
plötu Warpaint sem kom út
Erlenda
plötuárið 2014
Best Plata Sharon Van Etten, Are We There, er sannkallað þrekvirki.
snemma á síðasta ári en það er eins
og hún hafi hreinlega dottið á milli
þilja í ársuppgjörunum. Heilsteypt
og um hana leikur öryggi þess sem
veit upp á hár hverju hann vill ná
fram. Lykke Li og Angel Olsen
áttu líka stórgóð verk, sem og Kate
Tempest, rapparinn/orðlistamað-
urinn knái frá Lundúnum.
Fagurgróinn drungi
Færum okkur yfir á hið sveim-
kennda, dumbungslega, nánast
gotneska svið dægurtónlistarinnar
sem hefur verið nokkuð móðins að
undanförnu. Sumarið 2013 skrifaði
ég um þessa ljúfsáru bylgju og tal-
aði um listamenn eins og James
Blake og þá allra helst Majical Clo-
udz, sem velta sér upp úr fagur-
grónum drunga. Frábært verk af
þessum toga, Loor, var gefið út á
síðasta ári af Kemper Norton. Plat-
an verkar eins og sveimskotin
vögguvísa og hangir einhvers stað-
ar á milli svefns og vöku. Svipaða
sögu má segja um Ruins, tíundu
plötu listakonunnar Grouper; ný-
gotneskt, handanheims-meistara-
stykki. Ein af allra bestu plötum
síðasta árs var svo Too Bright með
Perfume Genius, mögnuð plata þar
sem fara epískar en um leið ein-
lægar rafballöður sem éta sig inn
að beini. Arthur Russell, Billy Mac-
Kenzie og John Grant eru sálar-
bræður þessa mjög svo hæfileika-
ríka drengs.
Að lokum nefni ég endurkomu
„hangsaranna“, en plötur Mac
DeMarco og The War on Drugs
voru algjört fyrirtak, hljóma eins
og litlu bræður J. Mascis hafi
ákveðið að henda í plötur (skjótum
líka Ty Segall og Ariel Pink hér
að, þó þeir séu ekki á nákvæmlega
sama spori). Þessar plötur
T.W.O.D. og Demarco ferðast um
sama svið og plata Kurts Vile frá
árinu 2013 (sem var ein merkasta
plata þess árs) og ég á erfitt með
að útskýra hvað það er nákvæm-
lega sem er svona heillandi við
þessi verk. Á stundum er þetta svo
kæruleysislegt og bakgrunnslegt
að þetta er eiginlega of auðvelt en
að sama skapi rúllar þetta svo full-
komlega að maður er varnarlaus.
Og það er auðvitað galdurinn. Ef
þetta er gott þá er þetta gott.
Sjáumst hress á þessu ári, gott
fólk, og takk fyrir að lesa. Meiri
tónlist, meiri gleði, nú sem endra-
nær!
»Þegar ég er beðinnum þetta í dag hendi
ég því fyrsta sem mér
dettur í hug inn á listann,
í hæfilega úthugsaðri
röð getum við sagt.
Að setja saman ársuppgjör er kvíða-
valdur hinn mesti En það er til lausn!
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Þú átt alltaf erindi til okkar
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
12
16
L
THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11
NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 2 - 5 - 8
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 1:50
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
7
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU