Morgunblaðið - 29.05.2015, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
✝ ErlingurHelgason
fæddist á Ísafirði
24. maí 1931.
Hann lést á
lungnadeild Land-
spítalans 19. maí
2015.
Foreldrar Er-
lings voru Helgi
Þorbergsson, vél-
smíðameistari á
Ísafirði, f. 1895 í
Otradal, Arnarfirði, d. 1964,
og Sigríður Jónasdóttir hús-
móðir, f. 1898 í Reykjarfirði í
Arnarfirði, d. 1981. Systkini
Erlings: Júlíus, f. 1921, d.
1983, Ása, f. 1923, d. 2002,
Jóna, f. 1924, Jónas, f. 1926, d.
1998, Þórarinn, f. 1929, d.
1981, Sverrir, f. 1937.
Árið 1954 kvæntist Erlingur
Þórunni Beinteinsdóttur, f.
1932. Foreldrar hennar voru
Árni Beinteinn Blöndal
Bjarnason, útgerðarmaður í
Hafnarfirði, f. á Siglufirði
1897, d. 1981, og kona hans
Sigríður Flygenring Bjarna-
son, f. í Hafnarfirði 1903, d.
1990. Börn Erlings og Þór-
unnar eru: 1) Drengur, f.
1955, d. 1955, 2) Árni Bein-
teinn, f. 1956. Kona hans var
Auður Einarsdóttir og eiga
þau sex börn. Þau skildu.
Sambýliskona hans er Lilja
Gissurardóttir. 3)
Anna Sigríður, f.
1957. Eiginmaður
hennar er Óskar
Svavarsson og
eiga þau þrjár
dætur og tvö dótt-
urbörn. 4) Björn,
f. 1960. Eiginkona
hans er Að-
alheiður Gunn-
arsdóttir og eiga
þau tvö börn en
áður átti hún son. 5) Gunnar
Örn, f. 1971. Hann var kvænt-
ur Ásgerði Guðmundsdóttur
og eiga þau tvo syni. Þau
skildu. Sambýliskona hans er
Brynja Gunnarsdóttir.
Erlingur lauk prófi úr
Gagnfræðaskóla Ísafjarðar en
fór síðan í Verslunarskóla Ís-
lands og eftir útskrift þaðan,
1950, hóf hann störf hjá Eim-
skipafélagi Íslands. Þar starf-
aði hann í 15 ár en fékk tæp-
lega árs leyfi til náms í
London. Árið 1966 stofnaði
Erlingur fyrirtækið Kraft hf.
með umboð fyrir MAN-
vörubifreiðir frá Þýskalandi.
Þetta fyrirtæki byggði hann
upp og rak til ársins 1996 þeg-
ar Björn sonur hans tók við
rekstrinum.
Útför Erlings fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 29. maí
2015, kl. 15.
Við andlát tengdaföður míns
er fallinn frá yndislegur maður.
Það voru mín gæfuspor þegar ég
kynnist tengdaforeldrum mínum,
þeim Erlingi og Þórunni, þegar
við Bjössi fórum að vera saman
fyrir tæpum 30 árum. Mér var
tekið opnum örmum frá fyrsta
degi. Ég minnist svo óteljandi
gleðistunda með þeim, á Lindar-
flötinni, í sumarbústaðnum, á
Strandveginum, í MAN-ferðum
erlendis, í veiðiferðum í Norðurá
og Laxá í Aðaldal. Alltaf voru Er-
lingur og Þórunn höfðingjar heim
að sækja og eins var svo gaman
að fá hann og tengdamömmu á
okkar heimili, alltaf svo mikil
gleði og hlátur. Það var alltaf
gaman að spjalla við Erling, hann
var uppfullur af fróðleik og átti
svar við flestu. Hann hafði unun
af að fá okkur stórfjölskylduna í
heimsókn, stjana við okkur og
ekki vantaði nú kræsingarnar
sem bornar voru fram öllum
stundum. Börnin okkar Bjössa
dýrkuðu afa sinn, enda var hann
þeim alltaf afskaplega góður.
Fyrir þetta allt er ég afskaplega
þakklát, minnist svo glæsilegs
manns, hann var svo flottur karl.
Ég kveð tengdapabba með sökn-
uði og þakklæti. Þín tengdadótt-
ir,
Heiða.
Mig langar að minnast tengda-
föður míns með nokkrum orðum.
Hann lést 19. maí sl. eftir
fremur stutt veikindi. Kynni okk-
ar hafa varað yfir 30 ár. Þegar ég
hitti Erling fyrst var hann orðinn
of seinn í veiðiferð og var því fátt
um kveðjur í það skipti en það
átti sannarlega eftir að breytast.
Minningarnar hrannast upp
og af nógu er að taka. Dugnaðar-
forkur kemur fyrst upp í hugann
þegar hugsað er til Erlings hvort
sem það var rekstur fyrirtækis-
ins, garðyrkja, veiðiskapur eða
annað. Hann var óvenju laghent-
ur, virtist geta gert við allt sem
bilaði. Matargerð var eitt af hans
áhugamálum. Allt þetta lék í
höndum hans. Hann gat verið
svolítið hvassyrtur ef honum mis-
líkaði eitthvað og þoldi illa slugs
og hangs og lét þá viðeigandi at-
hugasemdir frá sér fara. En und-
ir niðri var hann ein sú mesta
gæðasál sem ég hef kynnst.
Gaman er að minnast allra
okkar ferða saman, innanlands
sem utan, auk óteljandi ferða í
Kiðagil, sumarbústaðinn á Laug-
arvatni. Það var hans líf og yndi
seinni árin að vinna við gróður-
húsið, sem hann hafði komið sér
upp þar.
Minnisstætt er þegar við fór-
um saman út í Hellisey til lunda-
veiða. Ekki vantaði veiðiáhugann
og var Erlingur fljótur upp í
lundabyggð með háf að vopni. En
þegar hann kom upp í kofa eftir
dágóða stund með engan fugl
brosti hann til okkar veiðifélag-
anna og sagði að lundarnir væru
ekki í tökustuði í dag. Vakti orða-
tiltækið mikla kátínu. Ekki dvín-
aði gleðin þegar Erlingur reiddi
fram dýrindis veislumáltíð í lok
veiðidags.
Erlingur taldi það sitt gæfu-
spor þegar hann kvæntist yndis-
legri tengdamóður minni, Þór-
unni Beinteinsdóttur. Þau hjón
höfðu sameiginlegan áhuga á tón-
list, útiveru, skíðaferðum og golfi,
ferðuðust um víða veröld og áttu
saman hamingjurík 60 ár.
Ég er óendanlega þakklátur
fyrir kynni mín af Erlingi og lær-
dómsríka samveru í rúmlega 30
ár.
Elsku Þórunn mín, missir þinn
og okkar allra er mikill.
Góður drengur er fallinn frá.
Óskar Svavarsson.
Elsku afi.
Ég trúi ekki að þú sért farinn
frá okkur og er í raun ekki búin
að átta mig á því. Ég kvíði því að
vakna einn daginn og átta mig á
að ég muni aldrei sjá þig aftur því
þá verður söknuðurinn mikill.
Elsku afi, við eigum svo margar
yndislegar minningar og þegar
ég hugsa um þig sé ég þig fyrir
mér svo hressan og glaðan, að
spyrja mig hvað ég sé að gera í
lífinu þessa stundina. Það eru all-
ar þessar góðu minningar sem ég
mun reyna að ylja mér við og
deyfa söknuðinn þegar ég hugsa
um þig. Elsku afi, þú hugsaðir um
ömmu í rúm 60 ár og ég lofa að ég
mun gera mitt besta til að hugsa
vel um hana, halda henni upptek-
inni og gleðjast yfir minningum
um þig. Afi minn, það mun eng-
inn fylla þitt skarð, ég mun alltaf
sakna þín og alltaf elska þig.
Hvíldu í friði, afi minn.
Þín afastelpa,
Andrea.
Elsku afi. Ég á erfitt með að
sætta mig við að þú sért farinn,
en á sama tíma er ég þakklátur
fyrir að hafa átt þig fyrir afa öll
þessi ár. Þú varst frábær afi, vin-
ur og fyrirmynd. Takk fyrir allar
dýrmætu stundirnar sem við átt-
um saman.
Afi var mikill stuðbolti og
hrókur alls fagnaðar fram á síð-
ustu stundu. Það var heiður og
mikil skemmtun að fá sér einn
kaldan með afa, hlusta á sögurn-
ar hans og ræða málin.
Alveg frá því ég var smákrakki
fannst mér alltaf æðislegt að
heimsækja ömmu og afa og
hlakkaði ég ætíð til næstu heim-
sóknar. Það breyttist ekkert eftir
að ég fullorðnaðist.
Við afi brölluðum margt
skemmtilegt á síðustu árum. Við
keyrðum um Vestfirði, m.a. í
Dýrafjörð, þar sem hann var í
sveit í gamla daga og til Ísafjarð-
ar þar sem hann ólst upp. Hann
sýndi ætíð sveitinni og öllu sem
ég tók mér fyrir hendur mikinn
áhuga.
Við afi vorum báðir miklir mat-
gæðingar. Í gegnum tíðina var
mér oft boðið í veislur og mat-
arboð heim til afa og ömmu og
jafnan í frábæran mat, enda var
afi meistarakokkur. Það er m.a.
afa að þakka að ég hef síðustu ár
lagt mikla áherslu á matargerð
og ætíð var einstaklega gaman
þegar afi hrósaði matnum okkar
Kristínar í hástert. Vonandi var
hann stoltur af okkur.
Það er ekki langt síðan við vor-
um saman uppi í bústað að moka
mold og sandi og keyra drekk-
hlaðnar hjólbörur – og afi gaf
ekkert eftir, enda ætíð vinnusam-
ur og duglegur. Við reistum sam-
an gróðurhúsið uppi í bústað en
þar hafði afi alltaf gaman af því
að gróðursetja ýmislegt og fylgd-
ist fram á síðasta dag með upp-
skerunni.
Afi átti mikinn þátt í því að
kveikja hjá mér skotveiði- og
skotfimiáhuga en í seinni tíð fór-
um við reglulega í skotkeppni.
Þvílík forréttindi að fá að njóta
samveru og leiðsagnar þessa ein-
staka manns.
Það var alltaf yndislegt að
njóta samverunnar með ömmu og
afa á Spáni hvort sem við tókum
golfhring, göngutúr á ströndinni,
slökuðum á úti á svölum eða grill-
uðum steik. Afi var alltaf hress.
Fyrir tæpu ári fékk ég mér
húðflúr með andlitsmynd af afa í
víkingabúningi. Ég mun stoltur
bera húðflúrið til æviloka, til
heiðurs afa og nú til minningar
um þennan frábæra mann sem
var ætíð traustur klettur í mínu
lífi.
Afi og amma voru glæsileg fyr-
irmyndarhjón og í fyrrasumar
fögnuðu þeirra nánustu með
þeim 60 ára brúðkaupsafmæli.
Elsku afi, minningu þinni
verður haldið á lofti um ókomin
ár.
Einar Beinteinn Árnason.
Móðurbróðir minn, hann Er-
lingur, var sterkur persónuleiki,
hann var vel giftur, á góð börn,
barnabörn og tengdabörn. Hvers
meira getur maður óskað sér í líf-
inu?
Ég er næstum viss um að hann
upplifði sig sem mikinn gæfu-
mann og aldrei efaðist ég um að
honum liði ekki vel.
Dáðist alltaf að því hvað hann
virkaði hress eftir gleðskap sem
kom öðru hvoru fyrir. Og ekki
hægt að sjá á honum nein þreytu-
merki er hann mætti nýjum degi,
vatnsgreiddur eins og honum
einum var lagið. Ég hef alltaf ver-
ið stolt af honum frænda mínum
þó hann hafi sjálfsagt ekki verið
fullkominn frekar en ég og fleiri.
En við fjölskyldan á Akureyri
áttum alltaf hann að, því eftir að
faðir minn lést aðeins rúmlega
fimmtugur að aldri þá reyndist
hann móður minni, Ásu Helga,
eins og hún var alltaf kölluð, sem
besti bróðir. Þegar ég svo full-
orðnaðist kom að því að ég og
væntanlegt mannsefni mitt, hann
Stefán Veturliðason, ákváðum að
ganga í hjónaband. Þá var frændi
fenginn til að vera svaramaður
minn. Þetta hjónaband sem hann
var þátttakandi í þann 3. ágúst
1974 stendur enn traustum fót-
um.
Svo hafa árin liðið og við höf-
um hist við ýmis tækifæri. Minn-
isstætt er mér er hann bauð okk-
ur hjónum ásamt mömmu í
heilmikla veislu, kynna átti nýja
línu af Man-bílum. Ég hef aldrei
fyrr né síðar farið í jafn fjöl-
menna og flotta veislu.
En Örninn eins og sumir
nefndu hann kunni að gleðjast við
ýmis tækifæri.
Við Mjallargötufjölskyldan er-
um um margt mjög lík, við höfum
sterkar skoðanir, tölum frekar
hátt og læðumst ekki með veggj-
um. Makar okkar þurfa því að
vera nokkuð sterkir persónuleik-
ar til að þola allt þetta.
Þórunn hafði allt það til að
bera sem prýtt gat eina mann-
eskju, góð, hafði mikla réttlætis-
kennd, hláturmild og skemmtleg.
Og hún hefur verið rósin í
hnappagati frænda míns í gegn-
um lífið.
Kæri frændi minn, takk fyrir
að hafa átt þig og þína að.
Helga Kristjánsdóttir.
Móðurbróðir okkar Erlingur
Helgason gekk undir nafninu
„Örninn“ meðal okkar systkin-
anna.
Örninn er konungur íslenskra
fugla og við upplifðum Erling
frænda jafn tignarlegan og kon-
ung, jafnframt því að vera traust-
an og góðan mann.
Erlingur frændi kom oft við
hjá foreldrum okkar í Helga-
magrastræti á Akureyri þegar
hann var að byrja að stunda sín
viðskipti eða við veiðar í Laxá í
Aðaldal.
Örninn kunni öll trixin í bók-
inni þegar kom að þeim „bus-
iness“ að selja MAN-bílana og
byggði hann upp fyrirtækið sitt
Kraft ehf. þar sem gæði voru alla
tíð höfð í fyrirrúmi.
Það hefði ekki farið honum að
selja annað en gæði því gæði voru
honum í blóð borin og stór hluti af
því sem sem hann sjálfur stóð
fyrir.
Heimsóknir hans í Helga-
magrastrætið urðu því margar
enda var honum umhugað um að
viðhalda tengslunum við systur
sína og hennar fjölskyldu fyrir
norðan.
Samband þeirra frú Ásu og
Erlings var mjög náið, gagn-
kvæm virðing ríkti á milli þeirra
og reyndist hann mömmu og fjöl-
skyldunni mjög vel eftir að faðir
okkar lést á besta aldri.
Mamma naut þess að eiga
bróður sem sýndi það og sannaði
að honum þótti vænt um hana og
hennar fólk. Hún leit mikið upp
til bróður síns og á milli þeirra
Erlingur
Helgason
HINSTA KVEÐJA
Dýpsta sæla og sorgin þunga,
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf frá Hlöðum)
Tinna Ósk og
öll hin afabörnin.
Lokað
verður í dag föstudaginn 29. maí frá kl. 13.00 vegna
jarðarfarar ERLINGS HELGASONAR.
Kraftur hf.
Vagnhöfða 1-3.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
BÆRING GUNNAR JÓNSSON
bakarameistari
frá Sæbóli í Aðalvík,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 30. maí kl. 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð
Staðarkirkju í Aðalvík. Reikningsnúmer er 0114-15-381858,
kt. 480182-0149.
.
Hans Georg Bæringsson, Hildigunnur Lóa Högnadóttir,
Elvar Bæringsson, Inga Lára Þórhallsdóttir,
Guðrún Arnfinnsdóttir,
Hildur Bæringsdóttir, Valgeir Guðmundsson,
Jón Sigfús Bæringsson, Steinunn Ósk Indriðadóttir,
Henry Júlíus Bæringsson, Jóna Benediktsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
PÁLHEIÐUR EINARSDÓTTIR,
Gyðufelli 8,
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 24. maí.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 2. júní kl. 13.
Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Félag
aðstandenda Alzheimersjúklinga, Slysavarnadeild kvenna í
Reykjavík eða önnur líknarsamtök njóta þess.
.
Kristján Þórarinsson,
Hafdís Ósk Kristjánsdóttir, Eggert Friðriksson,
Einar Kristjánsson, Anna María Ríkharðsdóttir,
Anna María Kristjánsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndisleg eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HJÖRDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
Markarvegi 15,
Reykjavík,
sem lést á Spáni 19. maí,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 3. júní kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd.
.
Ásgeir Hjörleifsson,
Sigurður Þór Ásgeirsson, Fríða Kristín Gísladóttir,
Hjörleifur Ásgeirsson, Maria Purificacion Luque,
Kristinn Ingi Ásgeirsson, Linda Hrönn Einarsdóttir,
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir,
Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir, Xavier Rodriguez,
barnabörn og barnabarnabarn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR EGGERTSSON,
fyrrverandi póstfulltrúi,
Fornhaga 15,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
miðvikudaginn 27. maí.
.
Halldór G. Pétursson, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir,
Eggert Pétursson, Hulda Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg kona mín og systir okkar,
FRÍÐA ÓSKARSDÓTTIR,
Írabakka 10,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 19. maí.
Útför hennar fer fram frá Bústaðarkirkju
mánudaginn 1. júní kl. 13.
.
Kolbrún Gunnarsdóttir,
Karl Óskarsson,
Kolbeinn Magnússon, Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Sigrún Óskarsdóttir,
Esther Terrazas, Joe Terrazas,
Óskar Óskarsson, May Margrét Zapanta,
Erna Arnardóttir,
Elsa Óskarsdóttir, Sæmundur Þór Jónsson,
Hjörtur Jacobsen, Sylvía Marta Borgþórsdóttir,
Helga Óskarsdóttir, Guðmundur Friðriksson.