Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 13
FRÉTTIR 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 13
Milljarðurinn sem eignarhaldsfé-
lag Pálma Haraldssonar, Fons, lagði
inn á tékkareikning Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar fjárfestis sem lán
þann 18. júlí 2008 var afskrifaður í
bókhaldi Fons tæpum sjö mánuð-
um síðar, í febrúar 2009. Lánið var
afskrifað þrátt fyrir að þrjú ár væru
þar til það var á gjalddaga. Þetta
kemur fram í stefnu þrotabús Fons
gegn Jóni Ásgeiri sem þingfest var
á fimmtudaginn. Þrotabúið vill láta
rifta millifærslunni.
Um var að ræða tvær millifærsl-
ur inn á reikning Jóns Ásgeirs, aðra
upp á 100 milljónir króna og hina
upp á 900 milljónir. Á kvittunum
fyrir millifærslunum kemur fram
að fjármunirnir séu millifærðir
„samkvæmt beiðni“, að því er segir
í skýrslunni.
Skiptastjóri Fons, Óskar Sigurðs-
son, telur að millifærslan á millj-
arðinum hafi verið gjöf en ekki lán
til Jóns Ásgeirs og vill hann að fjár-
festirinn greiði peningana til baka.
Lán til málamynda
Í stefnu þrotabúsins gegn Jóni Ás-
geiri kemur fram að við skýrslutök-
ur skiptastjóra yfir Pálma hafi hann
borið því við að milljarðurinn sem
lagður var inn á reikning Jóns Ás-
geirs hafi verið lán til félags í hans
eigu sem heitir Þú Blásól ehf. Fé-
lag Jóns Ásgeirs átti því, samkvæmt
þessu, að hafa tekið við peningum
frá Fons fyrir hönd Þín Blásólar ehf.
Lánið átti Þú Blásól að nota til
að greiða fyrir hlut félagsins í enska
Formúlu 1 liðinu Williams. Samn-
ingur var gerður þess efnis á milli
Fons og Þín Blásólar ehf. þann 31.
júlí, tæpum tveimur vikum eftir að
Fons hafði lagt peninga inn á per-
sónulegan reikning Jóns Ásgeirs.
Skilningur skiptastjóra Fons er
hins vegar sá að ekkert í bókhaldi
Fons bendi til að félag Pálma hafi
greitt milljarðinn til Þín Blásólar en
hins vegar liggi fyrir Jón Ásgeir hafi
fengið peninginn greiddan til sín
persónulega. Niðurstaða þrotabús-
ins er sú að ekkert í gögnum búsins
sé til marks um samningssamband
á milli Fons og Þín Blásólar sem
réttlætt geti greiðsluna. „Skjölin við
Þú Blásól virðast því hafa verið gerð
til málamynda,“ segir í stefnunni og
er þar átt við að millifærslan hafi
verið dulbúin sem lán til að réttlæta
að Fons greiddi milljarðinn til Jóns
Ásgeirs. Aðrar ástæður hljóti því
að vera fyrir millifærslunni en þær
sem gefnar voru upp í samkomu-
laginu á milli Fons og Þín Blásólar.
Lánið var svo afskrifað sjö mán-
uðum síðar, eins og áður segir. Orð-
rétt segir um afskrift lánsins í stefn-
unni: „Í viðskiptamannabókhaldi
þrotabúsins er Þú Blásól ehf. til-
greint sem skuldari og samkvæmt
hreyfingarlista er skuldabréfið fært
þann 18. júlí 2008 en krafan síð-
an afskrifuð þann 12. febrúar 2009
tæpum sjö mánuðum síðar, þrátt
fyrir að þá væru enn rúm tvö ár í
gjalddaga skuldarinnar.“
Vilja riftun
Í stefnunni kemur fram að þrotabú
Fons vilji rifta millifærslunni á þeim
forsendum að um gjafagerning hafi
verið að ræða.
Krafan um riftun er meðal ann-
ars byggð á því að greiðslan hafi ver-
ið Jóni Ásgeiri til hagsbóta á kostn-
að kröfuhafa Fons. Til stuðnings
þeirri staðhæfingu er minnst á þau
rök að mikil og náin tengsl hafi ver-
ið á milli Jóns Ásgeirs og Fons, að
greiðslurnar séu gríðarlega háar, að
enginn samningur hafi verið gerð-
ur á milli Fons og Jóns Ásgeirs, að
ekkert fylgiskjal um viðskiptin hafi
fundist í bókhaldi Fons og samn-
ingarnir vegna „meintra“ viðskipta
Fons og félags Jóns Ásgeirs virðast
hafa verið til málamynda.
Jón Ásgeir hefur enn ekki svar-
að bréfi sem skiptastjóri Fons sendi
honum þar sem fram kom að rifta
ætti millifærslunni og að hann ætti
að greiða hana til baka. Í stefnunni
segir: „Stefndi hefur ekki orðið við
kröfum skiptastjóra og er þessi mál-
sókn því nauðsynleg.“
Sjónarmið Jóns Ásgeirs í málinu
eru því ekki kunn að svo stöddu. DV
náði ekki í Jón Ásgeir á fimmtudag
til að ræða við hann um málið.
Sigurður G. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður gætir hagsmuna
Jóns Ásgeirs í málinu.
AFSKRIFAÐI MILLJARÐS
LÁN TIL JÓNS ÁSGEIRS
Skiptastjóri Fons telur að lánasamningur um milljarð króna milli Fons og félags í
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar árið 2008 hafi verið málamyndagerningur. Talið
er að milljarðurinn hafi runnið beint til Jóns Ásgeirs. Lánið var afskrifað skömmu
eftir millifærsluna. Jón Ásgeir hefur ekki svarað þrotabúi Fons um millifærsluna.
LÉT FONS BORGA BRÚSANN
voru færslur sérstaklega merktar
stefnda Pálma meðal annars vegna
farseðla, veitinga, gistinótta á hót-
elum, knattspyrnuleikja erlendis og
fleira.“ Um er að ræða útgjöld hans
á árinu 2008.
Í stefnunni er tilgreint nákvæm-
lega í hvað Pálmi eyddi þessum níu
milljónum. Þar er meðal annars að
finna 500 þúsund króna greiðslu
vegna leigu á þyrlu, margar greiðsl-
ur til hótela upp á fleiri hundr-
uð þúsund krónur – hæsti reikn-
ingurinn er tæplega 500 þúsund
frá Gramercy Park-lúxushótelinu í
New York – og fjölmargar himinhá-
ar greiðslur til veitingahúsa.
Hæsta greiðslan í yfirlitinu er
til Sarl Le Bistrot en hún hljóðar
upp á samtals rúmlega 2,7 milljón-
ir króna. Ekki er vitað hvað Sarl le
Bistrot en orðið bistrot þýðir veit-
ingahús á frönsku. Sarl er hins veg-
ar skammstöfun á eignarhaldsfélag
í frönskumælandi löndum, líkt og
ehf. á Íslandi, og er því líklegra að
um sé að ræða einhvers konar við-
skipti tengd eignarhaldsfélagi frek-
ar en greiðslu vegna matarkaupa á
veitingahúsi.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Pálmi lét því Fons borga
eignarhaldsfélagi sem
hann átti sjálfur leigu
fyrir íbúð sem hann
átti sjálfur.
n Hluti af samkomulaginu á milli Fons og
Þín Blásólar ehf. sem reifað er í stefnunni:
„Hinn 18. júlí sl. greiddi Fons til Blásólar kr. 1.000.000.000 og var gefið út
skuldabréf í tengslum við greiðsluna. Nú hafa aðilar komið sér saman um að
fjárhæðin verði notuð til greiðslu Blásólar á hluta af enska Formúlu kappakst-
ursliðinu, Williams, en Blásól hefur unnið að kaupum á liðinu. Forsvarsmaður
Blásólar fær einnig heimild til að nota fjármunina til staðfestingar í öðrum
viðskiptatækifærum, sem hann skal þó upplýsa Fons um áður en ákvörðun er
tekin.“
n Orðrétt um afskriftina á láninu:
„Í viðskiptamannabókhaldi þrotabúsins er Þú Blásól ehf. tilgreint sem skuldari
og samkvæmt hreyfingarlista er skuldabréfið fært þann 18. júlí 2008 en krafan
síðan afskrifuð þann 12. febrúar 2009 tæpum sjö mánuðum síðar, þrátt fyrir að
þá væru enn rúm tvö ár í gjalddaga skuldarinnar.“
Samkomulagið um lánið Skjölin við Þú Blásól ehf. virð-
ast því hafa verið gerð
til málamynda.
Lánið afskrifað Lánið til Jóns Ásgeirs
upp á milljarð var afskrifað nokkrum
mánuðum eftir að það var veitt. Þetta
er talið renna stoðum undir að milli-
færslan til hans hafi ekki verið lán. Pálmi
Haraldsson var eigandi Fons.
Frá Pálma til Pálma Pálmi Haraldsson
lét Fons borga leigu fyrir íbúð sem hann
átti sjálfur í gegnum félag á Tortóla.
Honum hefur verið stefnt til að greiða
leiguna til baka inn í þrotabú Fons.