Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 40
F Ö S T U DAG U R 26 . FEB R ÚAR 201040
Borðtennisborð
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10. 2. hæð Reykjavík Sími 568 3920 & 897 1715
Poolborð
Það fylgir því alltaf mikil tilhlökkun að
fermast og eru þessir unglingar úr 8-T í
Rimaskóla í Grafarvogi engin undantekn-
ing á því. DV spurði þau nokkurra spurn-
inga um ferminguna, kreppuna og Icesave.
Fartölvur og iPod
á óskalistanum
HLYNUR ÖRN GESTSSON
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Bara utanlandsferð eða eitt-
hvað.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Kannski kaupi ég mér eitthvað
og set svo restina inn á bankabók.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálfan þig
fyrir fermingu? „Já, ég keypti fín
fermingarföt og svo fer ég í klippingu.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Það er bara misjafnt eftir
því hvað fólk vill.“
Hvers vegna kom kreppan?
„Bara út af þessum útrásarvíkingum
og alþingisdótinu þarna.“
Hvað er Icesave? „Eitthvert rugl í
Bretlandi.“
Veistu hver er forsætisráðherra?
„Hún þarna í Samfylkingunni,
Jóhanna eitthvað, man ekki meira.“
KATRÍN BIRNA JÓHANNESDÓTTIR
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Sæng og úr, og kannski iPod.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Kaupi mér örugglega iPod.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálfan
þig fyrir fermingu? „Ég er búin
að kaupa fötin og svo fer ég bara í
greiðslu.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Ég held að það sé svona
svart og hvítt en ég fylgi henni alla-
vega ekki.“
Hvers vegna kom kreppan? „Af
því að sumir stálu aðeins of miklum
peningum frá bönkunum.“
Hvað er Icesave? „Það er banki í
Bretlandi eða eitthvað.“
Veistu hver er forsætisráðherra?
„Jóhanna Sigurðardóttir.“
ARNA STEINUNN JÓNASDÓTTIR
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Mig langar í ferð til útlanda.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Taka kannski smá til að fara í bíó
eða eitthvað og svo leggja þá svo inn í
banka.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálfan þig
fyrir fermingu? „Ég fer í klippingu
og er búin að kaupa kjól. Annars ekk-
ert meira.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Ég veit ekki neitt um
strákafötin en mér finnst kjólarnir
vera með mikið af blúndum.“
Hvers vegna kom kreppan? „Út
af því að það voru einhverjir að eyða
peningum sem voru ekki til.“
Hvað er Icesave? „Það er banka-
dót.“
Veistu hver er forsætisráðherra?
„Jóhanna, held ég.“
DANÍEL MÁR AÐALSTEINSSON
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Fartölvu og iPod Touch.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Ef ég fæ ekki tölvu eða iPod
Touch mun ég kaupa annað hvort.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálfan
þig fyrir fermingu? „Já, frænka
mín ætlar að setja strípur í mig og svo
kaupi ég föt.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Nei, jakkaföt og vesti
bara.“
Hvers vegna kom kreppan?
„Út af því að bankarnir hrundu.“
Hvað er Icesave? „Það eru ein-
hverjir samningar.“
Veistu hver er forsætisráð-
herra? „Jóhanna Sigurðardóttir.“
BIRNA HEIÐARSDÓTTIR
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Fartölvu.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Fara með mömmu og pabba til
útlanda.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálfan
þig fyrir fermingu? „Fer í klipp-
ingu og litun.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Nei, held ekki.“
Hvers vegna kom kreppan?
„Þessir bankamenn rústuðu þessu.“
Hvað er Icesave? „Það er eitthvert
bankadót í útlöndum.“
Veistu hver er forsætisráðherra?
„Jóhanna Sigurðardóttir.“
SIGURÐUR ERIK HAFLIÐASON
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? „Fartölvu og Playstation 3.“
Ef þú færð peninga í fermingar-
gjöf, hvað ætlarðu að gera við
þá? „Ef ég fæ ekki fartölvu kaupi ég
mér hana örugglega. Eyði kannski
smá pening og legg svo inn á banka.“
Gerir þú eitthvað fyrir sjálf-
an þig fyrir fermingu? „Ég fer í
klippingu og kaupi föt.“
Er einhver sérstök fermingar-
tíska í ár? „Bara flott jakkaföt og
flott slaufa eða bindi og skyrta.“
Hvers vegna kom kreppan?
„Útrásarvíkingarnir settu bara
bankana á hausinn eða eitthvað
þannig.“
Hvað er Icesave? „Það er eitt-
hvert breskt fyrirtæki sem Björ-
gólfur Thor og Landsbankinn
voru með og skuldar fullt.“
Veistu hver er forsætisráð-
herra? „Jóhanna eitthvað. Ég
man ekki fullt nafn.“
M
Y
N
D
IR
S
IG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I
asdisbjorg@dv.is