Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 49
minnist úr starfi sínu og þótti ansi öflugur í að ná í vini sína. Svo kemur að því að skólarnir fyll- ast og ekki er hægt að taka við fleir- um. „Við erum með of mörg börn núna inni á heimilum okkar miðað við stuðningsaðila einfaldlega af því að við höfum ekki getað gengið fram hjá þeim. Það er auðvelt fyrir okkur að setja reglur um að taka ekki fleiri börn inn en þegar þau koma að dyr- unum hjá þér og þú veist að það er smá skot þarna inni, þá er erfitt að neita,“ segir Guðrún. „Við erum með fjölmörg börn sem vantar stuðning af því að við höfum ekki verið nógu hörð við að segja nei,“ segir Guðrún. „Dyrnar hafa verið opnar í hálfa gátt.“ Tekur á tilfinningarnar Það er óhjákvæmilegt í svona hug- sjónastarfi að upplifa erfiðar tilfinn- ingar, viðurkennir Guðrún. „Maður kemur á einn stað og sér þarfirnar og það er ekki hægt að snúa sér að öðru án þess að mæta þeim. Svo veit mað- ur að það eru þarfir í öllum hinum löndunum líka. Að lokum fer maður svo heim til Íslands í allsnægtirnar,“ segir Guðrún. „Það er mjög erfitt að ganga fram hjá þessum börnum og geta ekki hjálpað þeim. Nema nokkr- um. Börn geta verið í svo skelfilegri stöðu. Í starfi okkar í Kenía höfum við barist rosalega í bökkum og þar eru til dæmis götubörn sem eiga engan að. Þau hafa verið misnotuð, þeim nauðgað og eru bara í hræðilegri stöðu. Þar halda þau bara áfram að vera berskjölduð á götunum, svöng og skítug. Nema við gerum eitthvað,“ segir hún. „Það ætti ekkert barn að þurfa að vera á götunni. Hvers konar heimur er þetta og af hverju ekki að tryggja öllum börnunum heimili?“ segir hún og er alveg ljóst að hún lifir sig mikið inn í starf sitt. Fjárhagsvandi í kjölfar hruns Guðrún segir að alltaf hafi verið reynt að mæta þeim verkefnum sem berast. Nú sé hins vegar róðurinn erfiðari en oft áður. Falli krónunnar er þar um að kenna. „Það sem við höfðum dugir varla lengur. Nú erum við einungis með helminginn af því sem var áður í erlendum gjaldeyri. Fjárhagsvand- inn felst líka í því að of mörg börn eru inni á heimilunum því að það eru ekki enn komnir stuðningsaðil- ar fyrir öll börnin. Það er aðalvand- inn okkar að fá fleiri stuðningsaðila. Þannig að núna höfum við of lítinn pening og erum að berjast fyrir því að geta hugsað almennilega um öll þessi börn,“ segir Guðrún og bæt- ir við að þá þurfi að grípa til sparn- aðaraðgerða. „Við þurfum að spyrja okkur sjálf hvar eigi að skera niður. Eigum við að taka hádegismatinn af eða hvað?“ spyr hún. Á sumum stöð- um borða dagskólabörnin bara einu sinni á dag, skólamáltíðina í ABC- skólanum, og það er ekki auðveld- asta starf í heimi að ákveða að taka máltíðina af þeim. „Það er mjög auðvelt að gerast stuðningsaðili en inni á vefsíðunni okkar, abc.is, eru myndir af börnum sem vantar stuðning. Þar er hægt að skrá sig fyrir barni,“ segir hún. Sjálfboðastarf í 22 ár Guðrún Margrét er menntaður hjúkrun arfræðingur og fjögurra barna móðir. Hún hefur unnið sjálf- boðavinnu síðan barnahjálpin var stofnuð, eða í 22 ár. Það eru ekki allir sem eru tilbún- ir að helga líf sitt svona starfi. „Ég fæ ánægju og náttúrulega lífsfyll- ingu út úr því að gera eitthvað sem skiptir máli,“ segir hún um hugsjón sína. „Þetta er bara mjög mikilvægt starf sem er þess virði að verja lífinu í. Þetta er oft erfitt, þessu fylgir mik- il vinna og á árum áður þegar börn- in mín voru lítil átti ég erfitt með að komast frá. Var samt að vinna enda- laust, dag og nótt, við að reyna að láta starfið ganga. Maður var ekki á launum og oft enginn að klappa á bakið á manni. Svo þegar ég fór utan og sá allt saman sannfærðist ég um að þetta væri þess virði,“ segir hún og líkir þeirri stundu við uppskeru- hátíð. „Til dæmis þegar ég fór til Úganda eitt skiptið og sá barnahafið í skóla- búningum, öll svo fín og sæt. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði átt hlut í að breyta lífi þessara barna. Það var al- veg sérstök tilfinning. Mjög sérstök tilfinning,“ segir hún stolt. Öll börnin dáin „Börnin sem fá þetta tækifæri í lífinu búa að því alla ævi. Að fá húsnæði, menntun, læknisaðstoð ásamt um- önnun og kærleika. Það skiptir sköp- um að geta orðið nýtur þjóðfélags- þegn og þetta er bara spurning um til dæmis hvort einn götustrákur fái að mennta sig og verða eitthvað eða hvort hann verður bara áfram á göt- unni,“ segir hún. Það eru ekki bara börnin sem eru þakklát fyrir þetta tækifæri held- ur líka aðstandendur. „Ég man eft- ir einu dæmi í Úganda en þar kom ég inn á heimili ömmu einnar. Öll börnin hennar voru dáin úr alnæmi og mörg barnabarna hennar voru í ABC-skólanum. Bara það að þau voru þar og fengu að borða létti svo mikið á henni. Ef við hefðum ekki verið þarna væri þetta vonlaus staða fyrir hana,“ segir Guðrún. Konan var gríðarlega þakklát. Það er líka vegna svona aðstæðna að erfitt er að þurfa að skera niður vegna fjárhagsvandans nefnir Guð- rún. „Barn sem komið er í góð mál getur lent í því að vera kippt út úr skólanum til að fara að vinna fyrir fjölskyldunni ef skólamáltíðin er tek- in af. Þannig að þetta er margslung- ið,“ segir hún um starfið sem ekki snýst bara um að byggja og betrum- bæta. Íslendingar að vakna „Ég held að Íslendingar séu að vakna og séu miklu tilbúnari til að hjálpa en áður,“ segir hún aðspurð hvort hún telji íslensku þjóðina hugsjónafólk. „Líka eftir hrunið. Þó að aðstæður fólks séu verri en áður er það samt viljugt að hjálpa. Það virðist ekki allt snúast um efnislegu gæðin lengur. Fólk er farið að hugsa öðruvísi.“ Guðrún segist þó finna fyrir því að fólk vilji frekar hjálpa til hér á landi en sé ekki alveg jafntilbúið að hjálpa lengra í burtu. „Við erum samt af- skaplega þakklát því að framlög hafa ekki dregist saman.“ Flestir styrktaraðilarnir eru fjöl- skyldufólk og fólk í yngra kantinum og segir Guðrún að í könnun sem gerð var hafi komið fram að það voru konur um fertugt með fjölskyldur sem voru stærsti hópurinn. „Kannski er það bara móðureðlið,“ segir hún brosandi og bætir því við að það séu margir sem telji að það hafi góð áhrif á börn að þau eigi svona samsömun í systkini úti í heimi. Kreppa, hvað? Guðrún segir að það sé erfitt að svara fyrir sig þegar hún ræðir kreppuna í útlöndum. „Við erum í rauninni alls- nægtaland. Það býr enginn í köldu húsi eða hefur ekkert að borða. Það er alltaf hægt að leita eitthvert. Marg- ir þarna úti borða ekki einu sinni á hverjum degi. Sumir borða kannski eina máltíð annan hvern dag. Þeg- ar maður ræðir kreppuna á þessum stöðum er erfitt að svara. Fólk spyr: Hafið þið nóg að borða? Getið þið sent börnin ykkar í skóla? Er ykkur kalt? Og þegar maður svarar þá segir það bara: Hvað er þá að?“ segir Guð- rún. „Það er rosalega erfitt að koma þessum aðstæðum til skila og mig langar oft að fólk grípi hugsjónina með mér. Það mun kannski aldrei gera sér almennilega grein fyr- ir þessu fyrr það prófar að setja sig í spor fólks sem býr í fátækrahverfi þar sem engar skólplagnir eru, ekk- ert klósett og þarf að sofa á moldar- gólfi með lek þök og kannski rottur í kringum sig.“ Brýnasta verkefnið fram undan Nýlega er farin af stað söfnun sem heitir Börn hjálpa börnum en pen- ingana hyggjast þau nota í uppbygg- ingu á skóla í Indlandi en starfið þar er komið á ystu nöf og hættu á að við missum skólaleyfið þar í landi. „Við erum búin að vera að undirbúa bygg- ingu skólans í þrjú ár og nú höfum við ekki tíma lengur. Þarna er heimili sem er mjög gott og við höfum rekið skólann inni á heimilinu. Það stríðir á móti reglum yfirvalda og því þurf- um við að fara næst í það verkefni að byggja skólahús. Það kostar um níu milljónir króna.“ Einnig er ABC barnahjálpin að ljúka fyrsta starfsári ABC-skólans en þar stunda um þrjátíu manns nám. Skólinn er undirbúnings- og þjálf- unarskóli fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í hjálparstarfi. Kennslan hefur gengið mjög vel að mati Guð- rúnar og eru einungis nokkrar vikur þangað til hópurinn fer í vettvangs- ferð til Afríku. Ljóst er að hér er á ferð kona með stórt hjarta og miklar hugmyndir. „Hugsjónin er stór. Við viljum koma þaki yfir öll götubörn og gefa þeim tækifæri og ég trúi að við eigum eftir að gera mikið í þeim málum. Þó að staðan sé svona í dag þá horfum við lengra.“ asdisbjorg@dv.is HELGARBLAÐ 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 49 Guðrún Margrét er nýkomin frá Líberíu Hér er hún áamt samstarfskonum sínum og börnum í ABC-skólanum í Líberíu. Matartími í Líberíu Í mörgum tilfellum er skólamáltíðin í ABC-skólanum eina máltíð dagskólabarnanna. Þau fá þá ekkert að borða heima hjá sér. Glaður drengur lærir ensku Það er erfitt til þess að hugsa að þessi drengur gæti verið á götunni. Með hjálp ABC hefur hann fengið tækifæri til að mennta sig. Fólk kemur og biður um hjálp. Við fáum umsóknir sem við vinnum úr. Svo förum við og leitum að traustum samstarfsaðil- um til að vinna með. Þá getur starf í viðkomandi landi hafist. Þegar maður ræðir kreppuna á þessum stöðum er erfitt að svara. Skólastúlkur í Pakistan Börnin eru yfirleitt í skólabúningum í ABC-skólum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.