Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 FRÉTTIR
KEYPTU UNDIRGEFNI
STJÓRNMÁLAMANNA
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum eru Guðlaugur Þór Þórðarson og stuðningsmenn
hans mestu fjáraflamenn íslenskra stjórnmálamanna vegna prófkjara og kosninga-
baráttu á árunum 2005 til 2007. Steinunn Valdís Óskarsdóttir þáði alls 3,5 milljónir
króna úr sjóðum Landsbankans á sama tímabili. Rannsóknarnefnd Alþingis gagn-
rýnir siðferði íslenskra stjórnmála harðlega.
Árið 2006 var ásókn frambjóðenda
og stjórnmálamanna í fjárframlög
vegna prófkjara og kosningabaráttu
mikil. Í byrjun ársins 2007 tóku gildi
ný lög um fjármál stjórnmálaflokka
og einstakra frambjóðenda sem í
senn takmörkuðu frjáls framlög frá
fyrirtækjum og einstaklingum og
skylduðu flokka og frambjóðendur
til þess að gera grein fyrir fjármálum
sínum á gagnsæjan hátt.
Skýrsla rannsóknarnefndar Al-
þingis tekur sérstaklega á framlögum
frá bönkum árið 2006. Sjálfstæðis-
flokkurinn þáði samtals 43 milljón-
ir króna, Samfylkingin 26 milljónir
og Framsóknarflokkurinn tæpar 17
milljónir. Samtals eru þetta um 86
milljónir króna.
Árin 2006 og 2007 létu Kaupþing
og Landsbankinn umtalsvert fé af
hendi rakna til einstakra frambjóð-
enda. Landsbankinn útdeildi 23,5
milljónum króna og Kaupþing 10,5
milljónum króna. Glitnir hafði fyrir
reglu, að minnsta kosti í bankastjóra-
tíð Bjarna Ármannssonar, að styrkja
ekki einstaka frambjóðendur heldur
aðeins flokka.
Með þeim fyrirvörum að gögn
rannsóknarnefndar Alþingis hafi
ekki með öllu verið tæmandi er ljóst
að bankarnir styrktu þrjá stjórnmála-
flokka; Sjálfstæðisflokkinn, Sam-
fylkinguna og Framsóknarfokkinn
og einstaka frambjóðendur þess-
ara flokka um samtals 120 milljónir
króna yfir áðurgreint tímabil.
Vert er að taka fram að í skýrsl-
unni er einvörðungu fjallað um
framlög og styrki frá bönkunum en
ekki öðrum fyrirtækjum.
„Helsjúkt kerfi“
„Það er alvarlegt mál í lýðræðisríki
þegar almannaþjónar mynda fjár-
hagsleg tengsl með þessum hætti
við fjármálafyrirtæki,“ segir í skýrslu
siðfræðihóps rannsóknarnefndar Al-
þingis. Hópurinn tók skýrslu meðal
annars af Styrmi Gunnarssyni, fyrr-
verandi ritstjóra Morgunblaðsins.
Styrmir hefur að nokkru leyti gert
grein fyrir því hvernig persónuleg-
ar skuldir hans voru notaðar til að
sveigja hann til hlýðni við forystu
flokksins skömmu fyrir þúsaldamót-
in, meðal annars af þáverandi for-
manni Sjálfstæðisflokksins Davíð
Oddssyni. DV hefur einnig greint frá
því hvernig Kjartan Gunnarsson, þá-
verandi framkvæmdastjóri flokksins,
Björn Bjarnason og fleiri tóku undir í
andróðri gegn ritstjóranum.
Styrmir Gunnarsson sagði í
skýrslutöku hjá siðfræðihóp rann-
sóknarnefndarinnar að þingmenn-
irnir hefðu fæstir skilið hvað var að
gerast. „Svo má ekki gleyma því að
þessir menn þeir þurftu að leita til
þessara peningamanna um stuðning
í prófkjörum. Og flokkarnir þurftu
að leita til þeirra um stuðning fyr-
ir kosningar. Þetta er auðvitað rosa-
lega stór partur af öllu dæminu og
þess vegna stóðu þingmenn ekkert
upp. Þess vegna komu þeir ekkert í
þinginu og fluttu ræður í þinginu um
að það væru einhver vandamál um
bankana eða vandamál í efnahags-
málum. Ég held að þetta sé partur af
skýringunni. Þetta er náttúrlega hel-
sjúkt kerfi þetta prófkjörskerfi, þetta
er bara hneyksli.“
Tugmilljóna kosningabarátta
einstaklinga
Styrkjakóngurinn í því yfirliti sem
hér er birt er Guðlaugur Þór Þórð-
arson, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Á árunum 2005 til 2007 aflaði
hann nærri 25 milljóna króna. Þótt
hann haldi því sjálfur leyndu fyrir
Ríkisendurskoðun hvaða fyrirtæki
hafi styrkt hann á umræddu tíma-
bili kemur fram í samkeyrslu gagna
á vegum rannsóknarnefndar Alþing-
is að hann þáði að minnsta kosti 1,5
milljónir króna frá Landsbankan-
um. Þá hefur einnig verið upplýst
að hann tók við 2 milljónum króna
frá Baugi árið 2006. Þess má geta að
Guðlaugur Þór háði dýra prófkjörs-
baráttu gegn Birni Bjarnasyni í okt-
óber 2006 þar sem hann hafði betur
og lenti í sætinu á eftir Geir H. Haar-
de. Björn þáði sjálfur 1,5 milljónir
króna frá Landsbankanum.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Samfylkingunni, aflaði samtals nærri
13 milljóna króna hjá fyrirtækjum á
umræddu tímabili, annars vegar fyr-
ir borgarstjórnarkosningarnar árið
2006 og síðar fyrir alþingiskosning-
arnar vorið 2007. Steinunn Valdís er
jafnframt sá stjórnmálamaður sem
aflaði mestra fjármuna hjá bönkun-
um, samtals 3,5 milljóna króna hjá
Landsbankanum. Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
er fast á hæla henni með 3 milljónir
króna sem skiptast jafnt milli Kaup-
þings og Landsbankans.
Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðis-
flokki, og stuðningsmenn hans öfl-
uðu nærri 15 milljóna króna á um-
ræddu tímabili, þar af er að sjá sem
aðeins 1 milljón króna sé tengd
bönkunum eða Samson ehf.
Gísli Marteinn Baldursson er
fjórði aflahæsti styrkþeginn á tíma-
bilinu með um 10,5 milljónir króna.
Hann lætur ekkert uppi um hvaðan
peningarnir eru komnir. Í gögnum
sem hann skilaði til Ríkisendurskoð-
unar kemur fram að fjögur fyrirtæki
styrktu hann um 1 milljón króna eða
meira hvert. Heimildir eru fyrir því
að Gísli Marteinn hafi þegið styrk frá
Landsbankanum.
Æ sér gjöf til gjalda
Í skýrslu siðfræðihóps rannsóknar-
nefndar Alþingis segir að svo virðist
sem íslenskir stjórnmálamenn hafi
ekki þegið boðsferðir frá bönkunum
í miklum mæli. Þess er þó getið að
Gísli Marteinn hafi sem borgarfull-
trúi þegið laxveiðiferð til Rússlands í
boði Glitnis sem farin var árið 2007
eins og DV hefur greint frá.
Í gögnum rannsóknarnefnd-
arinnar kemur fram að Björn Ingi
Hrafnsson hafi þegið 2 milljóna
króna styrk frá Kaupþingi fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar 2006. DV
upplýsti í fyrra að Björn Ingi þáði
einnig 2 milljóna króna styrk frá
Baugi. Þá fer sögum af háum fram-
lögum til hans frá félögum í eigu
Pálma Haraldssonar á þessum
Nafn Flokkur Heildarupphæð Greinargerð frambjóðanda Greinargerð rannsóknarnefndar Alþingis o.fl.
Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokkur 24,8 millj. Nafnleynd fyrirtækja Kaupþing 1,0 millj.
Landsbanki 1,5 millj.
Baugur 2,0 millj. sbr. DV 2009
Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokkur 14,5 millj. Exista 3,0 millj.
FL Group 1,0 millj.
Samson 1,0 millj.
Atorka 1,0 millj.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir Samfylking 12,8 millj. Landsbanki Íslands 3,5 millj.
Baugur 2,0 millj.
FL Group 2,0 millj.
Nýsir 1.0 millj.
Gísli Marteinn Baldursson Sjálfstæðisflokkur 10,4 millj. Nafnleynd fyrirtækja Engar nánari upplýsingar
Dagur B. Eggertsson Samfylking 5,6 millj. Enginn hærri en 0,5 millj.
Gefur upp styrkveitendur
Ragnheiður E. Árnadóttir Sjálfstæðisflokkur 5,3 millj. Nafnleynd fyrirtækja Kaupþing 250 þús.
Landsbanki 300 þús.
Baugur 250 þús. sbr. DV 2009
Þorgerður Katrín Gunnarsd. Sjálfstæðisflokkur 5,0 millj. Exista 1,5 millj.
Kaupþing 1,5 millj.
Landsbankinn 1,5 millj.
Sigurður Kári Kristjánsson Sjálfstæðisflokkur 4,6 millj. Nafnleynd fyrirtækja Landsbankinn 750 þús.
Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokkur 4,2 millj. Nafnleynd fyrirtækja
Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokkur 4.0 millj. Landsbanki Íslands 0,5 millj. Kaupþing 100 þús.
Helstu fjáraflamenn í röðum stjórnmálamanna 2005 til 2007
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Niðurstöður siðfræðihóps rannsóknarnefndar Alþingis:
1 Styrkja þarf faglegt bakland stjórnkerfisins til að auðvelda stjórnmálamönn-um að sækja sér hlutlæga ráðgjöf og fá áreiðanlegar upplýsingar. Þar með
væri jafnframt dregið úr líkum á illa grunduðum ákvörðunum stjórnvalda.
2 Setja þarf skýrar reglur um styrki til stjórnmálamanna og um gegnsæi í bókhaldi stjórnmálaflokka.
3 Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármálalífs og stjórn-mála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda
einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdraganda bankahrunsins.
4 Stjórnmálaflokkar þurfa að vanda mun betur til stefnumótunar svo kjósend-ur átti sig betur á þeim valkostum sem þeir standa frammi fyrir.
Úr siðfræðihluta skýrslunnar
Styrkjakóngurinn Guðlaugur Þór
Þórðarson og stuðningsmenn hans
öfluðu um 25 milljóna í kosningasjóði
hans. Nær fimmtungur kom frá Baugi,
Kaupþingi og Landsbanka.
Styrkjakóngurinn Guðlaugur Þór
Þórðarson og stuðningsmenn hans
öfluðu um 25 milljóna í kosningasjóði
hans. Nær fimmtungur kom frá Baugi,
Kaupþingi og Landsbanka.