Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Qupperneq 52
KARLMENN ÓÁBYRGIR Í stórri nýrri breskri rannsókn kom í ljós að klamedía er algeng- asti kynsjúkdómurinn í Bretlandi. Í rannsókninni kom einnig í ljós að karlmenn stunda mun oftar óábyrgt kynlíf en konur og eru því frekar smitberar sjúkdóms- ins. Um 13% karlmanna sögðust hafa stundað óá- byrgt kynlíf með fleiri en einum aðila síðastliðið árið en aðeins 7% kvenna svörðu þeirri spurningu játandi. Nýleg ítarleg rannsókn gefur til kynna að hjónabandsráðgjöf geti hjálpað jafnvel verstu hjónaböndum svo lengi sem báðir aðilar vilji bæta sambandið. „Einn aðili getur endað hjónaband en tveir verða að leggja sitt af mörkum ef hjónabandið á að ganga,“ segir Andrew Christensen, sálfræðiprófessor í UCLA og höfundur rannsóknarinnar sem birtist í aprílhefti Journal of Consulting and Clinical Psychology. Í rannsókninni voru 134 hjónabönd skoðuð. Flestir þátttakenda voru á þrí- tugs- og fertugsaldrinum og rúmlega helmingur barnafólk. Hjónin flokk- uðust sem „virkilega óhamingjusöm hjón“ en vonuðust til að geta bjargað hjónabandinu. „Við vildum ekki hjón sem gátu ráðið út úr sínum vandamálum sjálf. Við vildum hjón sem voru afar óham- ingjusöm og þurftum að útiloka yfir 100 pör sem stóðust ekki væntingar okkar,“ segir Christensen. Hjónin fengu 26 tíma hjá hjóna- bandsráðgjafa á einu ári. Eftir tím- ana hafði samband tveggja þriðju hluta skánað mikið. Fimm árum síð- ar mældist helmingur hjónanna mun hamingjusamari en í upphafi rann- sóknarinnar, einn fjórði hafði skilið og annar fjórði hluti stóð í sömu sporum. „Líkt og fyrri rannsóknir hafa gefið til kynna hjálpar hjónabandsráðgjöf mörgum en alls ekki öllum. Ástandið í hjónabandinu fimm árum eftir ráðgjöf gefur góða mynd af framhaldinu,“ seg- ir Christensen og bætir við: „Við kom- umst einnig að því að ef hjónaband á að eiga séns verða hjón að leita sér hjálpar þegar vandamálið bankar fyrst upp á. Ef ráðgjöfin er dregin eru miklar líkur á að loksins þegar farið er til ráð- gjafa sé það of seint í rassinn gripið.“ Einn getur endað hjónaband en báðir verða að leggja sitt af mörkum ef það á að ganga: HJÓNABANDSRÁÐGJÖF HJÁLPAR UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is 1UMHVERFIÐ Börn fæðast ekki með meðfæddan smekk á frönskum kartöflum og súkku- laði. Þau læra það sem fyrir þeim er haft. Kenndu barninu þínu að það er hollt og gott að borða epli og hnetur á milli mála. Börn borða það sem er til á heimilinu. Hreinsaðu til í skápunum og vandaðu innkaupin. 2FYRIRMYND Ef þú hvorki hreyfir þig né borðar hollan mat eru líkur á að barnið fylgi í sömu fótspor. Gerðu breytingar nú þegar. Lofaðu að þú verðir betri fyrirmynd barnsins þín með því að borða hollan og næringarríkan mat og mæta reglulega í ræktina. Áður en þú veist af mun barnið breyta um lífstíl líka. 3MEGRUN Þótt þú sért vinsæl mamma þegar þú kaupir pitsu og hamborgara handa barninu getur óhollustan haft alvarlegar afleiðingar í framtíðinni. Megrun er einnig af því slæma. Reyndu frekar að breyta um lífstíl hjá allir fjölskyldunni. RÍFUMST HEIÐARLEGA Lisa Oz, eiginkona hins þekkta ameríska læknis dr. Oz, hefur gefið út bók um sambönd hjóna. Lisa segir nauðsynlegt að hjón ræði tilfinningar sínar við hvort annað á hverjum degi. „Ef eigin- menn ykkar eru eins og minn þá mæli ég með að þið notið tæki- færið og spjallið við þá í göngu- túrnum. Þannig komast þeir ekki undan,“ segir Lisa sem segir einnig að það að hafa rétt fyrir sér sé ofmetið. „Ekki láta ágrein- ing ykkar snúast upp í hvort hafi rétt fyrir sér og ef þið þurfið að rífast gerið það þá heiðarlega. Gott ráð er að taka rifrildið upp á myndband og horfa á það sam- an. Þannig kemur í ljós hvort við hækkum rödd okkar óþarflega eða gerum lítið úr maka okkar.“ 52 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 LÍFSSTÍLL ÓHAMINGJA Andrew Christensen, höfundur rannsóknarinnar og sálfræðingur, segir hjónabandsráðgjöf geta bjargað meira að segja vonlausustu og óhamingju- sömustu hjónaböndum ef leitað er hjálpar nógu snemma. 1. Sá hressi Uppáhaldsorð þessa vinar er einfalt: „Já!“ Ef þig vantar pepp eða þú færð þá góðu hugmynd að gefa læknis- drauminn upp á bátinn til að ger- ast dýralæknir í frumskógi úti í heimi er þessi vinur rétta mann- eskjan til að hringja í. Það þurfa allir á nærveru jafnupplífgandi ævintýrasjúklings annað slagið. 2. Ferðafélaginn Þegar á leiðarenda er komið og í ljós kemur að öll hótel eru full er eitt karaktereinkenni betra en annað: sveigjanleiki. Það er ekk- ert gaman að ferðast með drama- drottningu sem skemmir allt með fýluköstum og frekju. Finndu þinn þægilega ferðafélaga sem held- ur fast í þá trú að allt sé gott ef þið eigið tequila-flösku og spilastokk. 3. Sá hreinskilni Það er munur á uppbyggjandi gagn- rýni og niðurrifi. Hver af vinum þín- um talar hreint út af því að honum þykir vænt um þig en ekki vegna öf- undsýki og afbrýðisemi? Þú skalt læra að meta skoðanir hans. 4. Skemmtanafíkillinn Lífið getur verið leikur af og til. Forð- astu neikvæða heimsendaspámenn og leitaðu uppi upplífgandi vini sem þú getur þess vegna eytt klukkutíma með í Kringlunni að skoða snyrtidót. 5. Ólíklegi vinurinn Passaðu að vinahópurinn sé ekki sam- settur úr fólki á sama aldri í svipuðum störfum. Reyndu að kynnast yngra og eldra fólki, fólki úr öðrum heimsálf- um, fólki með aðra lífsýn og upplifðu það sem það hefur upp á að bjóða. VELDU RÉTTU VININA Vinir eru fjölskyldan sem við veljum okkur sjálf. Eftir því sem vinirnir mynda ólíkari hóp því fjölbreyttara er líf þitt. Hér er listi yfir fimm vini sem gera lífið áhugaverðara og skemmtilegra. 5 LEIÐIR TIL AÐ FITA BARNIÐ ÞITT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.