Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Síða 60
NÝIR
MEISTARAR
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
60 FÖSTUDAGUR 23.apríl 2010
MARC OVERMARS Hollendingurinn fljúgandi
var í gullaldarliði Ajax áður en hann mætti til leiks í enska boltann með Arsenal árið 1997. Hann lék á
Englandi í þrjú ár áður en hann var seldur til Barcelona fyrir metfé. Hjá Barcelona stóð hann aldrei
alveg undir væntingum enda mikið meiddur á hægra hné. Hann hætti á endanum knatt-
spyrnuiðkun alltof ungur, aðeins 31 árs. Hann fór þá aftur til síns fyrsta liðs, Go Ahead Eag-
les, í Hollandi og gerðist yfirmaður knattspyrnumála. Overmars tilkynnti óvænt að hann
ætlaði að spila með liðinu tímabilið 2008-2009, sem hann og gerði. Hnéð angraði hann
samt alltaf og spilaði hann miklu færri mínútur en hann vildi og æfði sama og ekkert.
Hann hætti því strax aftur eftir tímabilið en starfar enn hjá félaginu.
HVAR ER HANN Í DAG?
UM HELGINA
Um alla Evrópu eru skemmtileg-
ir hlutir að gerast. Marseille er á
hraðri leið með að endurheimta
Frakklandsmeistaratitilinn eft-
ir átján ára eyðimerkurgöngu og
í Sviss er Young Boys, liðið sem
Grétar Rafns Steinsson lék með,
líklegur kandídat til að hampa
meistaratitlinum. Það er þó í Tyrk-
landi og Frakklandi sem hlutirn-
ir eru að gerast. Steve McClaren,
fyrrverandi stjóri enska landsliðs-
ins, hefur fylgt eftir frábærum ár-
angri sínum með Twente og getur
landað Hollandsmeistaratitlinum
um helgina. Í Tyrklandi er það hið
lítt þekkta Bursaspor sem er að
stela senunni.
Hin fjögur stóru í Tyrklandi
Í Tyrklandi hefur aldrei annað eins
sést og er að gerast með Bursas-
por. Það gæti orðið fyrsta liðið
til þess að brjóta niður einokun
þeirra fjóru stóru, eins og þau eru
kölluð í Tyrklandi. Liðin eru Gal-
atasaray, Fenerbache, Besiktas og
svo Trabzonspor sem var stærsta
liðið seint á áttunda áratugnum og
í byrjun þess níunda. Bursaspor
er í sömu stöðu og Sivasspor var í
fyrir fáeinum árum. Í góðri stöðu
til að landa titlinum en hingað
til hafa minni liðin alltaf fallið á
lokaprófinu. Bursaspor á gífur-
lega mikilvægan leik um helgina
sem mun líklega ráða úrslitum um
það hvort liðið verði meistari. Það
leikur gegn Galatasaray sem sit-
ur í þriðja sæti. Bursaspor hefur
65 stig á toppnum en Fenerbache
stigi færra í öðru sæti.
Trúin mikil
Þjálfari Bursaspor er fyrrverandi
landsliðsmiðvörður - og stundum
framherji - Tyrklands, Ertugrul
Saglam, sem er að vinna mikið
af hlutlausum aðdáendum tyrk-
neska boltans yfir á sitt band. „Ég
segi aldrei neitt nema ég trúi því
sjálfur. Ég trúi því algjörlega þegar
ég segi að Bursaspor verði meist-
ari í ár,“ sagði hann í síðustu viku.
„Hvernig leikmenn mínir stóðu sig
í seinni hálfleik í síðasta leik var
frábært og styrkir trú mína á að við
verðum meistarar.“
Árangur Bursaspor er sérstak-
lega athyglisverður þar sem liðið
var ekki stofnað fyrr en árið 1963.
Blandan í liðinu er góð. Fyrrver-
andi tyrkneskir landsliðsmenn
keyra liðið áfram á meðan inni á
milli eru nokkrir efnilegstu leik-
menn landsins. Leikmenn á borð
við Volkan Sen og Ozan Ipek,
framtíðarmenn tyrkneska boltans.
Það er þó langur vegur frá því að
titillinn sé kominn í hús en mögu-
leikinn er til staðar á að nýr meist-
ari verði krýndur í Tyrklandi.
Tímabil Twente
Í fyrra stóð AZ Alkmaar, annað
lið sem Grétar Rafn Steinsson lék
með, uppi sem Hollandsmeistari
eftir langa bið. Á eftir því voru ekki
stórliðin Ajax eða PSV, heldur FC
Twente undir stjórn fyrrverandi
landsliðsþjálfara Englands, Steves
McClaren. Árangur hans með liðið
frá komu hans til Hollands hefur
verið undraverður. Í staðinn fyr-
ir að kalla það gott eftir að landa
silfrinu virðist liðið hungra í að
landa titlinum. Því dugar sigur á
útivelli gegn NAC Breda um helg-
ina til að svo verði.
Fjórtán ár eru síðan annar Eng-
lendingur varð meistari í Evrópu
en Bobby Robson gerði Porto að
meisturum í Portúgal árið 1996.
Stóru liðunum í Hollandi líkar illa
þessi upprisa Twente-manna því
þeir eru taldir dreifbýlisplebbar og
bændur af stuðningsmönnum liða
eins og Ajax og Feyenoord.
Stjörnuljómi McClarens
Hollenskur blaðamaður sem skrif-
ar um Twente segir helsta vopn
liðsins vera þjálfarann. Hann sé
vissulega vel hæfur og allt það
þrátt fyrir mistök með enska lands-
liðið en það er ekki aðalatriðið.
Hversu mikil stjarna þjálfarinn er
hjálpar leikmönnum liðsins mik-
ið. Í Hollandi keppast menn við
að fá viðtöl og ræða við McClar-
en á með leikmennirnir geta ein-
beitt sér eingöngu að fótboltan-
um, ekki ósvipað þeirri tækni sem
Jose Mourinho beitir mik-
ið. Þó að Steve McClar-
en sé „persona non
grata“ á Englandi er
hann ein skærasta
stjarna hollenska
boltans.
„Bændurnir“
svokölluðu eru
afar duglegir að
styðja við bakið á
liði sínu og mæta
reglulega 24.000
manns á völlinn
hjá Twente. Stuðn-
ingsmenn liðs-
ins láta vel í sér
heyra, þá sérstak-
lega þegar Kosta-
ríkumaðurinn Bry-
an Ruiz fær boltann.
Sá ágæti maður hefur
farið á kostum með lið-
inu og skorað 23 mörk í 33
leikjum. Talinn bestu kaup
tímabilsins. Hann leiðir fram-
línuna í 4-3-3 kerfi McClarens
sem hann tók upp við komuna
til Hollands.
„Ég ákvað að ég þyrfti að spila
4-3-3. Ef það er nógu gott fyr-
ir þúsundir Hollendinga er
það nógu gott fyrir mig. Í Hol-
landi snýst boltinn um að spila
vel. Stuðningsmenn eru oft sátt-
ir þegar lið þeirra tapar, svo lengi
sem það spilar fallega,“ segir Steve
McClaren, þjálfari Twente.
Svo gæti farið að nýir meistarar verði krýndir í Tyrklandi og
Hollandi. Eilíf einokun stóru liðanna þar í landi hefur loks
verið brotin niður. Steve McLaren er að gera ótrúlega hluti
með lið Twente en gamall landsliðsmaður stýrir liði Bursasp-
or sem leiðir tyrknesku deildina þegar lítið er eftir.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
ÓVÆNT Á TOPPNUM Bursaspor getur brotið niður einokun þeirra fjóru stóru í
Tyrklandi.
TÖFRAMAÐUR Í HOLLANDI
Steve McClaren hefur gengið í
endurnýjun lífdaga hjá Twente.
VERÐANDI
MEISTARAR?
Twente verður
meistari með sigri
gegn NAC Breda
um helgina.