Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Side 18
H
arðorð umsögn Lands-
sambands íslenskra
útgerðar manna um nýtt
frumvarp ríkisstjórnar-
innar að breyttri fiskveiði-
stjórnun var unnin og birt áður en
frumvarpið var birt í heild sinni
opinberlega. Í viðtali Steingríms J.
Sigfússon sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra við DV segir hann
LÍÚ ekki hafa verið afhent frum-
varp ríkisstjórnarinnar til vörslu á
sérstökum kynningarfundi. DV hef-
ur þar að auki fengið þetta staðfest
víða innan úr stjórnsýslunni.
Þegar blaðamaður DV bar mál-
ið undir Adolf Guðmundsson, for-
mann LÍÚ, sakaði hann blaðamann
um tilraunir til yfirheyrslu en sagði
þó að frumvarpið hafi verið afhent
á fundi ráðherra með stjórn LÍÚ
klukkan átta á sunnudagskvöldi og
trúnaður hafi ríkt um innihald þess
til fjögur á mánudag. Adolf bað
blaðamann að athuga að „frétta-
leki“ hafi verið á frumvarpinu.
Kynnt en ekki afhent
„Ég er búinn að kynna þetta fyrir
helstu hagsmunaaðilum og ég
sýndi mönnum frumvarpið á skjá,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon á
mánudag þegar blaðamaður DV
spurðist fyrir um með hvaða hætti
aðgengi LÍÚ hafi verið að frum-
varpinu og þá hvort það hafi verið
afhent þeim til vörslu.
Fundargestum var samkvæmt
heimildum DV ekki heimilt að taka
eintök af frumvarpinu með sér út
af fundinum. Ekki verður séð af út-
reikningum DV á áhrifum frum-
varpsins, sem fjallað er um á opnu
framar í blaðinu, hvernig LÍÚ komst
að þeirri niðurstöðu að sjötíu pró-
sent hagnaðar af útgerð hér á landi
renni til ríkissjóðs, verði frumvarp-
ið að lögum. Forsendur útreikning-
anna koma ekki fram í tilkynning-
unni á vef LÍÚ.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði við DV við sama
tækifæri að hún vissi ekki til þess að
LÍÚ hefði frumvarpið undir hönd-
um en það hafi verið kynnt fyrir
þeim. „Ég geri mér von um að við
getum náð frekar breiðri sátt um
málið á Alþingi þótt ég haldi að við
getum aldrei náð fullum stuðningi
um málið. Þetta er mál sem hefur
verið deilt um í áratugi og klofið
þjóðina í herðar niður. Ég held að
þarna sé mjög stórt skref stigið í átt
til sáttar um fiskveiðistjórnunar-
kerfið.“
Þjóðnýting, eignaupptaka og
ofursköttun
„Í nýju frumvarpi er horfið frá kröf-
um um hagkvæman sjávarútveg,
aflaheimildir gerðar upptækar til
pólitískrar endurúthlutunar og of-
urskattar lagðir á greinina,“ segir
í tilkynningu LÍÚ sem birtist á vef
samtakanna klukkan 15.43.06, á
mánudag, örfáum mínútum áður
en blaðamannafundur þar sem
frumvarpið var kynnt hófst. Blaða-
menn fengu þó aðeins kynningu á
frumvarpinu en fengu ekki að sjá
það í heild sinni.
Á kynningarfundi ráðherra
með fulltrúum LÍÚ var frumvarp-
ið opnað og farið yfir það. Það var
þó samkvæmt heimildum DV ekki
afhent til vörslu enda hafði það
ekki verið kynnt fyrir þingflokkum
ríkisstjórnar flokkanna og ekki
verið lagt fyrir þingið. Á mánu-
dagsmorgni var svo annar álíka
kynningarfundur haldinn fyrir
hagsmunaaðila en samkvæmt
heimildum DV var frumvarpið ekki
afhent til vörslu þeirra sem fundinn
sóttu. Trúnaður ríkti um það sem
fram fór á fundinum til klukkan
16.00, á mánudag þegar kynn-
ingarfundur var haldinn fyrir fjöl-
miðla. Frumvarpið var kynnt fyrir
þingflokkum Samfylkingar og VG á
þingflokksfundum um klukkan eitt
á mánudag.
Í sömu tilkynningu á vef LÍÚ er
frumvarpið sagt tilraun til að ríkis-
væða útgerð í gegnum skattkerfið.
Það kallað ofurskattlagning sem
dragi úr hvata til hagkvæmra veiða
og að með því verðir arðurinn af
sjávarútveg færður frá landsbyggð-
inni til pólitískrar úthlutunar í
stjórnarráðinu.
„Heyr á endemi“
„Ja, heyr á endemi, ég segi
bara það,“ sagði Jóhanna þegar
umfjöllun LÍÚ var borin undir hana
í lok blaðamannafundar. „Þeir
eiga ekki rétt á því að sitja einir að
arðinum og rentunni sem kem-
ur af þessari auðlind.“ Forsætis-
ráðherra sat ekki kynningarfund
sjávarútvegsráðuneytisins með
hagsmunaaðilum. „Ég býst við að
sjávar útvegsráðherra hafi staðið að
kynningunni með svipuðum hætti
og hann gerði á blaðamannafund-
inum. Ég veit ekki til þess að þeir
hafi fengið frumvarpið – en ég segi;
ég veit ekki til þess,“ sagði Jóhanna.
„Ertu að yfirheyra mig?“
„Við fengum frumvarpið í hendurnar
klukkan átta á sunnudagskvöldið og
við máttum ekki birta eitt eða neitt
eða senda það út til okkar aðila fyrr
en eftir 16.00 þegar blaðamanna-
fundurinn hófst. Þá vorum við laus-
ir undan trúnaði,“ segir Adolf Guð-
mundsson, formaður LÍÚ, í samtali
við DV. Þegar blaðamaður bar und-
ir hann ummæli Steingríms og Jó-
hönnu um að LÍÚ hafi í raun ekki
fengið frumvarpið heldur aðeins
kynningu á svipuðum nótum og
blaðamenn sagði hann: „Við feng-
um glærukynningu.“ Hann bætti
við að frumvarpið hafi verið af-
hent með trúnaði um innihald þess
til klukkan fjögur á mánudag. „Þú
verður bara að meta þetta sjálfur. Ég
get ekki ábyrgst orð Steingríms og
Jóhönnu,“ svaraði Adolf aðspurður
hvort hann kynni skýringu á mis-
ræmi í málflutningi útgerðarmanna
og ráðherra ríkisstjórnarinnar.
Spurður hvort hann gæti ábyrgst
að umsögnin sem birtist á vefnum
hafi verið unnin með frumvarpið
undir höndum sagði hann LÍÚ
vera með frumvarpið og að um það
hafi verið fjallað í fjölmiðlum. „Þú
verður að athuga að það hefur verið
fréttaleki og leki á frumvarpinu,“
sagði Adolf. Bæði RÚV og Frétta-
blaðið fjölluðu um vinnu við frum-
varpið með einhverjum hætti áður
en það var kynnt. Þar komu ekki
fram endanlegar upplýsingar um
innihald frumvarpsins.
„Bíddu, ætlar þú að fara að yfir-
heyra mig?“ svaraði formaður LÍÚ
aðspurður hvort það gætu talist góð
vinnubrögð hjá LÍÚ að gefa út svo
harkalega umsögn á frumvarpi sem
samtökin hefðu ekki formlega und-
ir höndum. Hvað þá að taka ekki
fram í slíkri umfjöllun að ekki sé
hér vitnað í frumvarpið sjálft held-
ur leka og eða glærukynningu. „Ég
er löngu búinn að svara þessu. Við
fengum það í trúnaði og við mátt-
um bara ekki gera það opinbert fyrr
en klukkan fjögur.“
„Skrýtið að þetta sé eitthvert
atriði“
„Hvaða máli skiptir það?“ svaraði
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sömu spurningu
um hvort frumvarpið hafi verið í
höndum LÍÚ þegar fréttatilkynning-
in var unnin og þá hvenær það hafi
verið afhent. „Mér finnst það skrýtið
18 Fréttir 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað
n „Ég sýndi mönnum frumvarpið á skjá,“ segir Steingrímur n LÍÚ segir frumvarpið afhent þeim á sunnudagskvöldið
LÍÚ fordæmdi óbirt frumvarp
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„ Ja, heyr á endemi,
ég segi bara það.
Jóhanna Sigurðardóttir
Friðrik J. Arngrímsson Framkvæmda-
stjóri LÍÚ undraðist að máli skipti hvenær
eða hvernig LÍÚ fékk frumvarpið.
Adolf Guðmundsson Segir LÍÚ hafa
verið afhent frumvarp ríkisstjórnar-
innar á fundi með sjávarútvegsráðherra á
sunnudag.