Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Síða 26
26 Fréttir 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað
S
tóru málin sem ríkisstjórn
Vinstri grænna og Samfylk-
ingar lagði upp með eru flest
enn í óvissu eða óleyst. Mál-
efnasáttmáli ríkisstjórnar
sem kynntur var vorið 2009 í Nor-
ræna húsinu og markaði upphaf-
ið að stjórninni sem kennir sig við
norræna velferð, er metnaðarfull
stefnuyfirlýsing upp á 21 blaðsíðu.
Fjölmörg loforð hafa verið efnd og
eru þau flest óumdeild. Álitsgjafar
DV benda hins vegar á að það séu
stóru málin sem ríkisstjórnin hef-
ur hikstað á og ekki náð að koma í
gegn. Þannig er Icesave-málið í full-
kominni óvissu tæpum fjórum árum
eftir hrun.
Enn er óvissa um skuldavanda
heimilanna og breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða hafa gengið mjög
hægt. Á sama tíma er stjórnarskrár-
frumvarpið hins vegar komið í far-
veg, en efnahagsbatinn hefur verið
hægari en vonir stóðu til. Óeining
innan ríkisstjórnarinnar tefur fram-
gang margra mála, að mati álitsgjafa.
„Ná aftur jafnvægi í rekstri
ríkissjóðs, endurreisa
fjármálakerfið.“
Að hluta staðist: Fjárlagahalli
fyrstu þrjú ár kjörtímabilsins er um 350
milljarðar króna, en verulega hefur verið
dregið úr útgjöldum ríkisins.
„Ná þjóðarsátt um lykilmark-
mið og viðamiklar efnahags-
ráðstafanir og sátt við
nágrannalönd eftir hrun
íslenska fjármálakerfisins. “
Ekki staðist: Icesave-deilan er á leiðinni
fyrir EFTA-dómstólinn. Engin þjóðarsátt
hefur náðst um skuldaniðurfellingar eða
uppgjör við hrunið að öðru leyti.
Skipulagsbreytingar í
stjórnkerfinu til að efla traust
á fjármálamarkaðnum meðal
annars með stofnun sérstaks
efnahags- og viðskiptaráðuneytis.
Að hluta staðist: Efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti var stofnað árið 2010 en traust á
fjármálakerfinu hefur ekki aukist.
„Skuldastaða heimila,
greiðslu- og framfærslugeta
verði til stöðugs endurmats
sem og nauðsynlegar aðgerðir
til að koma til móts við heimili í vanda.“
Að hluta staðist: Úrlausnir ríkisstjórnar-
innar á skuldamálum heimilanna eru langt
frá því að vera óumdeildar og ríkir lítil sam-
staða um þær.
„Heildarmat á þörf fyrir frekari
aðgerðir og tillögur í því efni
verði unnar í kjölfar úttektar
Seðlabanka Íslands á skuldum
og tekjum heimili … Ákvarðanir um frekari
aðgerðir og tillögur verði teknar í samráði við
aðila vinnumarkaðarins.“
Staðist: Eftir langt ferli kynnti ríkisstjórnin
110% leiðina sem felur í sér afskriftir á
fasteignaskuldum sem hækkuðu verulega í
kjölfar hrunsins.
„Áætlun um að skapa skilyrði
fyrir afnámi gjaldeyrishafta og
hraða lækkun vaxta.“
Ekki staðist: Engar vís-
bendingar eru um að gjaldeyrishöft
verið afnumin. Stýrivextir lækkuðu framan
af kjörtímabili en eru nú farnir að hækka
aftur.
„Ríkisstjórnin mun gera það
sem í hennar valdi stendur til
að tryggja öfluga og skilvirka
efnahagsbrotarannsókn og að
bæði henni og niðurstöðum
rannsóknarnefndar Alþingis um banka-
hrunið verði fylgt eftir af fullum heilindum.“
Staðist: Sérstakur saksóknari hefur fengið
aukið fjármagn og hafa nokkrar ákærur
vegna hrunsins litið dagsins ljós. Landsdóm-
ur kom saman til að rétta yfir Geir Haarde.
„Marka skýra eigendastefnu
þar sem fram komi fram-
tíðaráherslur ríkisins sem
eiganda bankanna og hvernig
henni verður framfylgt. Markmið
þess er að styrkja faglegan, gagnsæjan og
traustan grunn undir aðkomu hins opinbera
að atvinnulífinu. Meðal annars verði kveðið á
um hvernig eignarhaldi bankanna verður
hagað, hugsanlegri eignaraðild erlendra
kröfuhafa og sýn á dreift eignarhald á
bönkunum til framtíðar. Þá yrði kveðið á um
auglýsingar á stöðum bankastjóra og
faglega yfirstjórn þeirra. Þá þarf að gæta
þess að yfirtaka ríkisbanka á einstökum
fyrirtækjum skekki ekki samkeppnisstöðu á
markaði. Tryggt verður að unnið verði eftir
faglegu og gagnsæju ferli við sölu þeirra.“
Að hluta staðist: Erlendir kröfuhafar eiga
stærstu hlutana í Íslandsbanka og Arion
banka. Staða bankastjóra var auglýst, en
bankarnir hafa verið harðlega gagnrýndir
fyrir að hygla vandamönnum við endursölu
á verðmætum fyrirtækjum sem þeir hafa
tekið yfir.
Örva innlendar fjárfestingar í
atvinnulífinu.
Ekki staðist
Stuðla að beinum erlendum
fjárfestingum.
Ekki staðist: Þvert á móti
hefur ríkisstjórnin lagst
gegn erlendri fjárfestingu meðal
annars með því að synja Huang Nubo um
að kaupa Grímsstaði og leggja stein í götu
álfyrirtækja.
Koma á eðlilegum lánavið-
skiptum við erlenda banka.
Staðist
„Hagstæð rekstrarskilyrði fyrir
fyrirtæki þannig að störf verði
varin og aðstæður skapaðar
fyrir fjölgun þeirra á ný.“
Ekki staðist: Gjaldeyrishöft
eru hert. Atvinnulausir í febrúar 2009
voru 13.276 talsins en í febrúar 2012 voru
atvinnulausir 11.621. Inni í þessum tölum er
ekki fólk sem fór í nám eða fluttist af landi
brott eftir hrun.
„Lykilatriði er að aukin
skattheimta leggist frekar á
þá sem betur eru í stakk búnir
til að bera auknar byrðar.“
Staðist: Skattar á tekjuhærra fólk hafa
verið hækkaðir.
„Ekki verði beitt flötum
niðurskurði en þess í stað
teknar markvissar ákvarðanir
um sparnað og hagræðingu.“
Staðist
„Þóknanir fyrir nefndir verði
lækkaðar eða lagðar af,
hömlur verði settar á aðkeypta
ráðgjafarþjónustu og sú stefna
mörkuð að engin ríkislaun verði
hærri en laun forsætisráðherra. Settar verða
samræmdar reglur allra ráðuneyta um
niðurskurð á ferða-, risnu- og bifreiðakostn-
aði. Sjálfstæðum hlutafélögum í eigu ríkisins
verði settar skýrar reglur um launastefnu og
útgjaldastefnu í þessum anda.“
Ekki staðist: Fjölmargir opinberir starfs-
menn eru með hærri laun en forsætis-
ráðherra. Ríkisendurskoðun snupraði for-
sætisráðherra á síðasta ári fyrir rýr svör við
fyrirspurn um aðkeypta ráðgjafarþjónustu.
„Frumvarp um eignaumsýslu-
félag verður lagt fyrir Alþingi
að nýju á vorþingi. Ríkisstjórnin
mun jafnframt beita sér fyrir því
að ríkisbankarnir móti samræmda áætlun
um hvernig brugðist verði við skuldavanda
fyrirtækja.“
Ekki staðist: Frumvarp um eingaumsýslu-
félag var ekki afgreitt á Alþingi. Aðeins einn
banki er í eigu ríkisins og engin samræmd
áætlun varð til.
„Ráðgjafarstofa heimilanna
verði efld enn frekar ef þörf
krefur til að eyða biðlistum
eftir viðtölum og aðstoð við
endurskipulagningu á fjárhag heimila og
fólks í vanda.“
Staðist: Embætti umboðsmanns skuldara
var stofnað og fjárveitingar til málaflokksins
auknar.
„Frumvarp um stjórnlagaþing
– þjóðfund – verður lagt fram
á vorþingi. Kosið verði til
þingsins í síðasta lagi samhliða
sveitarstjórnarkosningum 2010.“
Staðist: Kosið var til stjórnlagaþings
sem síðar varð að stjórnlagaráði eftir að
Hæstiréttur Íslands úrskurðaði kosningarnar
ólögmætar.
„Lög um skipan hæstaréttar-
dómara og héraðsdómara
verði endurskoðuð.“
Staðist: Ný lög um skipan
dómara tóku gildi árið 2010.
„Heildstæð lög um fjölmiðla
verði sett þar sem ritstjórnar-
legt sjálfstæði og réttur
blaðamanna eru tryggð.“
Staðist: Ný fjölmiðlalög voru samþykkt
2011, sérstök fjölmiðlastofa sem hefur
eftirlit með fjölmiðlum hefur verið sett á
laggirnar.
„Fyrir lok kjörtímabilsins er
gert ráð fyrir því að lögfest
verði sameining samgöngu- og
sveitarstjórnaráðuneytis og
mannréttinda- og dómsmálaráðuneytis í
nýju innanríkisráðuneyti.“
Staðist
„Ísland verður friðlýst fyrir
kjarnorkuvopnum og íslensk
stjórnvöld munu beita sér fyrir
kjarnorkuafvopnun á
alþjóðavettvangi.“
Í vinnslu: Frumvarp hefur verið lagt fram
en það hefur ekki verið samþykkt sem lög
á Alþingi.
„Hlutverk sveitarfélaga í
velferðarþjónustu við börn,
fatlað fólk, aldraða og
fjölskyldur verði aukið með
flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga.“
Staðist: Málefni fatlaðra voru færð frá ríki
til sveitarfélaga í byrjun þessa árs.
„Staðinn verði vörður um
Íbúðalánasjóð, sjálfseignar-
félög og frjáls félagasamtök
sem tryggja hagstætt
húsnæði.“
Staðist
„Dregið verði úr vægi
verðtryggingar í lánaviðskiptum
samhliða auknu framboði
óverðtryggðra íbúðalána.“
Staðist: Ríkisbankinn Landsbankinn býður
upp á óverðtryggð lán til íbúðakaupa.
„Ríkisstjórnin mun vinna með
hagsmunaaðilum að
undirbúningi á viðurkenningu
n Ríkisstjórninni gengur hægt að afgreiða stærstu málin
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Loforð ríkisstjórnarinnar
táknmálsins á kjörtímabilinu.“
Staðist: Lög þess efnis voru samþykkt á
Alþingi.
„Framfærslugrunnur LÍN verði
endurskoðaður með það að
markmiði að hækka hann í
áföngum og núverandi
ábyrgðarmannakerfi afnumið strax á sumar-
þingi.“
Staðist
„Meginverkefni ríkisstjórnar-
innar í atvinnumálum verður
að draga úr atvinnuleysi með
markvissum aðgerðum, útrýma
langtímaatvinnuleysi og skapa
traustari grundvöll fyrir íslenskt atvinnulíf til
framtíðar.“
Ekki staðist: Markvissar aðgerðir til að
útrýma atvinnuleysi hafa að minnsta kosti
ekki skilað viðunandi árangri.
„Umhverfi sprota- og
nýsköpunarfyrirtækja verði
bætt með lagfæringu á
skattalögum til þess að ívilna
megi vegna rannsókna og þróunar.
Auk þess verði tímabundið veittur frádráttur
frá skatti vegna fjárfestinga í sprota- og
nýsköpunarfyrirtækjum.“
Að hluta staðist: Þingsályktunartillaga
þess efnis hefur verið samþykkt á Alþingi.
„Sköpuð verði ný atvinnutæki-
færi fyrir ungt fólk t.d. með því
að efla Nýsköpunarsjóð
námsmanna og ýta úr vör
sumarverkefnum fyrir framhalds-
skólanema.“
Staðist: Ríkisstjórnin ákvað að verja 250
milljónum króna vegna sumarvinnuverkefna
námsmanna.
„Ráðist verði í markaðssókn
erlendis á sviði lista,
menningar, hönnunar og
hugvitsgreina. Stutt verði við
bakið á nýsköpunarverkefnum.“
Staðist: Samkomulag um þetta var undir-
ritað í utanríkisráðuneytinu.
„Stuðlað verði að betri
orkunýtingu, svo sem með
uppbyggingu iðngarða og
iðjuvera, garðyrkjustöðva,
endurvinnslu og annarrar starfsemi sem
nýtir gufuafl sjálfbærra jarðvarmavirkjana.“
Að hluta staðist: Fyrirhuguð er bygging
risastórs gróðurhúss við Nesjavallavirkjun
þar sem rækta á tómata til útflutnings.
„Með sérstöku ákvæði í
stjórnarskrá verði undirstrikað
að fiskistofnarnir umhverfis
landið séu sameign þjóðarinnar.
Úthlutun aflaheimilda er tímabundinn
afnotaréttur og myndar ekki undir neinum
kringumstæðum eignarrétt eða óaftur-
kallanlegt forræði einstakra aðila yfir
heimildunum.“
Í vinnslu: Stjórnlagaráð hefur sett slíkt
ákvæði inn í frumvarp sitt til stjórnarskrár en
ekkert hefur verið samþykkt um það. Ríkis-
stjórnin hefur reynt að breyta fyrirkomulagi
um stjórn fiskveiða en án árangurs. Nú
stendur til að leggja nýtt frumvarp fyrir
Alþingi.
„Bregðast þarf frekar við áliti
Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna, m.a.
með því að gæta atvinnufrelsis
og að tryggja að jafnræðis verði gætt við
úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að
hinni sameiginlegu auðlind.“
Í vinnslu
„Takmarka framsal á
aflaheimildum, auka
veiðiskyldu og endurskoða
tilfærslur á heimildum milli ára.
Stofna auðlindasjóð sem fer
með ráðstöfun fiskveiðiréttinda í eigu
þjóðarinnar. Arður af rekstri sjóðsins renni til
atvinnuuppbyggingar.“
Í vinnslu: Ríkisstjórnin er í þann mund
að leggja fram nýtt frumvarp um stjórn
fiskveiða eftir að hafa verið gerð aftur-
reka með fyrra frumvarp. Í millitíðinni var
sjávarútvegsráðherra látinn fjúka.
„Heimila frjálsar handfæra-
veiðar smábáta yfir
sumarmánuðina.“
Staðist: Frjálsar handfæra-
veiðar hafa verið stundaðar við strendur
landsins undanfarin þrjú sumur.
„Lög um stjórn fiskveiða verði
endurskoðuð í heild með það
að markmiði að stuðla að
vernd fiskistofna, stuðla að
hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar, treysta
atvinnu og efla byggð í landinu, skapa sátt
meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu
auðlinda sjávar.“
Í vinnslu: Jón Bjarnason bjó til frumvarp
þess efnis sem almennt var talið hrákasmíð.
Hann var látinn fara og nýtt frumvarp er nú
að líta dagsins ljós.
„Leggja grunn að innköllun og
endurráðstöfun aflaheimilda
á 20 ára tímabili í samræmi við
stefnu beggja flokka.“
Að hluta staðist: Nýtt frumvarp um stjórn
fiskveiða er að líta dagsins ljós.
„Íslendingar áskilja sér hér
eftir sem hingað til rétt til
nýtingar sjávarauðlinda
„Óeiningin lamar ríkisstjórnina“
Ríkisstjórnin
Hefur haft þrjú ár
til þess að vinna í
mjög metnaðar-
fullum stjórnar-
sáttmála sínum.
„Þannig er Icesave-
málið í fullkom-
inni óvissu tæpum fjórum
árum eftir hrun.