Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Page 2
2 Fréttir 20.–22. apríl 2012 Helgarblað
Á milljarða
í skattaskjóli
Rannsókn
eftirlits
aðila á Íslandi á
meintum brotum
útgerðarfélags
ins Samherja á
lögum um gjald
eyrismál teygir
anga sína meðal
annars til dóttur
félaga Samherja á aflandseyjunni
Kýpur. Þetta kom fram í DV á mið
vikudag. Eignarhaldið á nokkrum
evrópskum dótturfélögum Samherja
er í gegnum þessi félög, meðal ann
ars nýstofnað færeyskt dótturfélag
Samherja sem og pólskt dótturfélag
þess. Mörg alþjóðleg fyrirtæki notast
við eignarhaldsfélög á aflandseyjum
eins og Kýpur og Tortóla vegna þess
skattalega hagræðis sem af því getur
hlotist.
Læst úti í frosti
yfir nótt
Þórhildur Berglind er 27 ára.
Hún er fötluð, hypotonia og
spastísk, með
þroskahöml
un og þarfn
ast mikillar
aðstoðar við
daglegt líf.
Saga Þór
hildar var sögð í DV á miðvikudag
en frá árinu 2007 hafa aðstandendur
hennar barist hart fyrir því að henni
verði útvegað búsetuúrræði við hæfi
hjá Hafnarfjarðarbæ með litlum ár
angri, enda telja bæði þau og fagað
ilar sem hafa umgengist hana, algjör
lega útilokað að hún geti búið ein og
séð um sig sjálf. Í umfjölluninni kom
fram að Þórhildur, sem býr ein, hafi
þurft að standa úti heila nótt í frosti
og snjókomu eftir að hún læsti sig úti
í vetur.
Nota dóp
á meðgöngu
Á milli 30
og 40 konur
koma árlega á
mæðravernd
Landspítalans
vegna vímuefna
vanda þeirra. Á
mánudag var rætt
við Valgerði Lísu
Sigurðardóttur,
hjúkrunarfræðing og ljósmóður á
Landspítala háskólasjúkrahúsi, sem
sinnir mæðravernd kvenna sem telj
ast vera í sérstökum áhættuhópi á
meðgöngu. Til þeirra teljast meðal
annars þær konur sem eru í neyslu
eiturlyfja þegar þær uppgötva þung
un. Valgerður segir að af þessum 30
til 40 konum séu líka konur sem eru
nýlega hættar í neyslu en þurfi aukið
eftirlit. Ólétta sé þó mikill hvati fyrir
konur til þess að hætta neyslu.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Leiðrétting
Í miðvikudagsblaði var frétt
sem bar fyrirsögnina „Hálf
gerður skrípaleikur“ sem
fjallaði um skrif Edwards Há
konar Huijbens um Akureyri
vikublað. Þar mátti lesa að
Edward hefði sjálfur í sínum
skrifum sakað ritstjórn blaðs
ins um rangfærslur. Það er ekki
rétt. Edward vitnaði aðeins til
slíkrar gagnrýni. DV biðst vel
virðingar á þessari rangfærslu.
Stútar við stýri
Menn kvöddu veturinn með
ýmsum hætti þetta árið. Það voru
þó nokkrir sem eiga eftir að sjá
eftir því að hafa ekki tekið leigubíl
heim eftir gleðskapinn. Aðfaranótt
sumardagsins fyrsta hafði lögregl
an á höfuðborgarsvæðinu afskipti
af átta ökumönnum sem voru
annaðhvort undir áhrifum áfengis
eða fíkniefna. Milli klukkan fjögur
og fimm aðfaranótt fimmtudags
voru fimm stöðvaðir vegna slíks
háttalags.
Þá var nokkuð um pústra í mið
borginni og hávaðaútköll en fjöl
margir skemmtu sér í miðborginni
þessa nótt.
Skipverjar
með dóp
Sex skipverjar á togaranum Manu
frá Grænlandi voru síðastliðið
miðvikudagskvöld teknir vegna
gruns um fíkniefnamisferli að því
er segir í tilkynningu frá lögregl
unni. Um lítið magn af ætluðum
fíkniefnum var að ræða. Voru
mennirnir fluttir á lögreglustöðina
á Hverfisgötu 113 þar sem málið
var afgreitt með sektargreiðslu. Að
því loknu fóru skipverjarnir aftur
um borð í togarann og lét hann
síðan úr höfn.
Fangar rödd
þjóðarinnar
n Ætlar fyrir hönd Fjallabræðra að taka upp raddir 30 þúsund Íslendinga
Þ
egar ég steig út úr bílnum á
Neskaupstað heyrði ég óm
út úr skólanum þar sem
krakkarnir voru að æfa sig.
Það hefur verið sama ánægj
an og sama gleðin á öllum stöðum,“
segir Halldór Gunnar Pálsson kór
stjóri Fjallabræðra. Hann er þessa
dagana á hringferð um landið með
það metnaðarfulla verkefni að fanga
söng tíu prósenta þjóðarinnar.
Þegar DV náði tali af Halldóri var
hann búinn að hljóðrita söng 1.441
Íslendings en hver og einn ritar nafn
sitt og netfang í stóra gamaldags
fundargerðarbók.
30 þúsund raddir
Halldór byrjaði á því að mæla sér
mót við Vestfirðinga og honum telst
til að hann hafi náð að fá 9,62 prósent
Vestfirðinga til að syngja bút úr lagi
sem Fjallabræður ætla að gefa út.
„Þegar við sáum hversu háu hlutfalli
við náðum á Vestfjörðum ákváðum
við að athuga hvort við næðum tíu
prósentum þjóðarinnar,“ segir hann í
samtali við DV. Markmiðið hjá þeim
er sem sagt að skeyta saman söng um
30 þúsund Íslendinga. Úr því ætlar
hann að mynda eina „stóra“ rödd.
Þegar DV náði tali af honum á
Austurlandi var næsti viðkomustað
urinn Seyðisfjörður. „Ég lagði af stað
frá Hvolsvelli og er búinn að þræða
alla Austfirðina. Ég er búinn að heyra
fólk syngja í Fjarðabyggð, á Stöðvar
firði, Neskaupstað, Eskifirði, og víð
ar. Ég er að nálgast Norðurlandið,“
segir hann glaður í bragði. Á laug
ardaginn verður hann í Hofi á Akur
eyri og hann vonast til að fylla húsið.
„Ég veit að það komast 500 manns í
sæti og svo er mér sagt að það komist
aðrir 500 á sviðið. Ég ætla að vona að
við fyllum húsið,“ segir hann.
Þarf ekki bjartsýni
Viðtökurnar hafa að sögn Halldórs
verið framar vonum. Hann segir
að honum hafi alls staðar verið vel
tekið og að fjölmargir hafi haft sam
band sem vilji leggja verkefninu lið;
þar á meðal skólar, íþróttafélög og
meira að segja áhafnir á bátum.
Hann á von á því að þegar þeir
verði búnir að þræða landsbyggð
ina muni þeir verða á þeytingi um
höfuðborgarsvæðið í nokkra daga.
Spurður hvort hann reikni með
að ná markmiði sínu segir hann
að hann þurfi ekkert á bjartsýni
að halda. Hann viti að hann muni
klára verkefnið. Hann renni hins
vegar algerlega blint í sjóinn hvað
útkomuna varðar, enda hefur þetta
aldrei verið gert áður. „Þetta hljóm
ar vonandi eins og ein rödd. Ég er
alltaf að bæta við þetta og hlusta.
Þetta er orðið risastórt en hversu
lengi heldur þetta áfram að stækka?
Það er spurningin. Hljóma fimm
þúsund raddir eins og þrjátíu þús
und?“ spyr hann en blaðamaður
hefur ekki svarið.
Hann viðurkennir aðspurður að
þetta sé ansi bratt verkefni. „Þetta er
mikil keyrsla. Ég fer seint að sofa og
vakna snemma. En ég kvarta ekki,“
segir hann jákvæður.
Halldór gerir ráð fyrir því að lagið
verði fyrst hægt að hlusta á á heima
síðu verkefnisins thjodlag.is, en þar
er hægt að fylgjast með framgangi
mála, í máli og myndum.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Textinn fyrir lagið
Þúsund ár og þúsund enn
Þó elni fjara og rísi flóð
Þúsund ár
Gleði á Djúpavogi Krakkarnir voru fljótir að fyrirgefa Halldóri þó hann svæfi aðeins yfir
sig. mynD tHjoDlaG.is
Góð þátttaka Á Stöðvarfirði tók 41 þátt. mynD tHjoDlaG.is
Duglegur kórstjóri Halldór segist ekki
þurfa á bjartsýni að halda. Hann viti að hann
muni klára verkefnið.