Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Blaðsíða 29
10 ríkustu
stjórnmála-
mennirnir
Erlent 29Helgarblað 20.–22. apríl 2012
„Hann keypti
fyrirtæki
sem enginn þurfti
á milljónir dala en
seldi þau svo aftur
á milljarða dala
Sá ríkasti Michael Bloomberg
er ríkasti stjórnmálamaður
heims. Eignir hans eru metnar á
rúmlega 2.700 milljarða króna.
Henry Ross Perot eldri
Eignastaða: 3,5 milljarðar dala, eða 440 milljarðar króna. Tengsl við
stjórnmál: Tvisvar í framboði til forseta Bandaríkjanna, 1992 og 1996.
n Ross Perot er 81 árs en hann stofnaði tæknifyrir-
tækið Electronic Data Systems árið 1962. Fyrirtækið óx
hratt og landaði stórum samningum, meðal annars við
bandarísk yfirvöld. Árið 1984 seldi hann fyrirtækið til
General Motors sem greiddi 2,4 milljarða dala fyrir. Perot
bauð sig fram í forsetakosningunum í Bandaríkjunum
árið 1992 þar sem hann hlaut 19 prósent atkvæða. Árið
1996 bauð hann sig aftur fram en þá gekk ekki eins vel
og í fyrra skiptið og hlaut Perot 8 prósent atkvæða.
Andrei Guriev
Eignastaða: 3,5 milljarðar dala, eða 440 milljarðar króna.
Tengsl við stjórnmál: Þingmaður á rússneska þinginu frá 2001.
n Guriev er einn valdamesti stjórnmálamaður Rússlands
og er það ekki síst vegna gríðarlegra auðæfa hans.
Hann er frá Murmansk í Rússlandi og hagnaðist mikið á
áburðarverksmiðju sinni sem er sú næst stærsta í heimi.
Síðasta sumar seldi hann 10,8 prósenta hlut sinn í fyrir-
tækinu og fékk fyrir þann hlut 535 milljónir dala. Hann á
enn 70 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Naguib Sawiris
Eignastaða: 3,1 milljarður dala, eða 392 milljarðar króna.
Tengsl við stjórnmál: Stofnaði stjórnmálaflokkinn Free Egyptians í fyrra.
n Sawiris hagnaðist mikið þegar hann stofnaði fyrsta
farsímafyrirtæki Egyptalands, Mobinil, árið 1998. Fyrir-
tækið hefur starfsemi í mörgum ríkjum, meðal annars
í Norður-Kóreu, þar sem það rekur farsímaþjónustu.
Sawiris hóf afskipti af stjórnmálum í fyrra þegar hann
stofnaði stjórnmálaflokkinn Free Egyptians. Hann
leggur meðal annars áherslu á frjálst markaðskerfi.
Sawiris komst í hann krappan í ársbyrjun þegar hann var
kærður fyrir móðgun í garð trúarbragða eftir að hann
birti skopmyndir af Mikka og Mínu mús í íslömskum
klæðum á Twitter-síðu sinni.
5
6
7
Najib Mikati
Eignastaða: 3 milljarðar dala, eða 380 milljarðar króna.
Tengsl við stjórnmál: Forsætisráðherra Líbanons frá 2011.
n Mikati stofnaði fjarskiptafyrirtækið Investcom ásamt
bróður sínum, Taha, árið 1982. Árið 2006 seldi hann
fyrirtækið til MTN Group í Suður-Afríku fyrir 5,5 milljarða
dala. Hann varð forsætisráðherra Líbanons í janúar 2011
á miklum umbrotatímum í Mið-Austurlöndum. Hann
þykir þó vinsæll í heimalandi sínu og heldur stuðnings-
mönnum sínum upplýstum með reglulegum færslum á
samskiptavefnum Twitter.
Sebastian Pinera
Eignastaða: 2,4 milljarðar dala, eða 304 milljarðar króna.
Tengsl við stjórnmál: Forseti Chile frá 2010, þingmaður í landinu frá 1990
til 1998.
n Áður en Pinera varð forseti átti hann 100 prósenta hlut
í chilesku sjónvarpsstöðinni Chilevisión og 27 prósenta
hlut í LAN Airlines ásamt því að eiga hluti í fleiri minni
fyrirtækjum. Eftir að hann varð forseti seldi hann 26
prósent í LAN fyrir 1,5 milljarða dala, eða 189 milljarða
króna, en hélt eftir einu prósenti í fyrirtækinu.
Jeff Greene
Eignastaða: 2,1 milljarður dala, eða 266 milljarðar króna.
Tengsl við stjórnmál: Meðlimur í Demókrataflokknum, tók þátt í forvali
flokksins í Flórída fyrir þingkosningarnar 2010.
n Greene hefur verið umsvifamikill í fasteignavið-
skiptum á undanförnum árum og byggir auður hans
að stóru leyti á ábyrgum fjárfestingum. Greene er
meðlimur í Demókrataflokknum og bauð sig fram í
forvali flokksins fyrir þingkosningarnar árið 2010. „Ég
er utangarðsmaður. Ég er eini fulltrúinn í forvalinu sem
er ekki atvinnupólitíkus. Velgengni mín byggist á mikilli
vinnu,“ sagði hann þegar hann bauð sig fram. Þrátt fyrir
þetta náði Greene ekki kjöri.
8
9
10
Notar ekki
peninga
Árið 2000 ákvað Daniel Suelo, 51
árs Bandaríkjamaður, að gera rót-
tækar breytingar á lífi sínu. Hann
sagði upp vinnu sinni, hætti að nota
peninga og flutti í óbyggðir Utah
þar sem hann hefst við í helli. Suelo
er atvinnulaus, á ekki bankareikn-
ing og í raun á hann enga peninga
– enda notar hann þá ekki. Hann
borðar það sem hann finnur úti í
náttúrunni og jafnvel dauð dýr sem
hann tínir upp af vegum.
Nýlega kom út bókin The Man
Who Quit Money eftir höfund-
inn Mark Sundeen. Í bókinni er
saga þessa ótrúlega manns sögð
og viðurkennir höfundur bókar-
innar í samtali við BBC að mörgum
kunni að þykja ákvörðun Daniels
einkennileg. Hann segir hins vegar
að eftir efnahagshrunið 2008 hafi
margir sett spurningamerki við gildi
peninga.
„Daniel hefur sannað að hann
þarf ekki að vera hluti af peninga-
kerfinu. Hann hefur lifað í tólf ár
án peninga og hefur veitt mörgum
innblástur. Þess vegna ákvað ég að
skrifa þessa bók.“
Réttarhöldin yfir Breivik:
Vildi afhöfða
Brundtland
Anders Behring Breivik, sem myrti
77 manns í árásum í Osló og Útey í
Noregi í fyrrasumar, vildi handsama
Gro Harlem Brundtland, fyrrver-
andi forsætisráðherra Noregs. Þetta
sagði Breivik í réttarhöldunum sem
staðið hafa yfir honum alla vikuna.
Breivik sagði að markmið hans hafi
verið að afhöfða Brundtland, taka
ódæðið upp á myndband og birta
það svo á netinu. Breivik vissi af
ferðum Brundtland en hún hafði
verið á eyjunni skömmu áður en
Breivik steig þar á land. Þegar hann
kom á svæðið var hún á bak og burt.
Í réttarhöldunum sagði Breivik
einnig að hann hafi ætlað að drepa
mun fleiri en þá 69 sem hann skaut
til bana í Útey. Um sex hundruð
manns voru í Útey þennan örlaga-
ríka dag og segir Breivik að mark-
mið hans hafi verið „að drepa þá
alla“.
Eins og komið hefur fram kom
Breivik fyrir sprengju í bifreið í mið-
borg Osló sem honum tókst að
sprengja. Hann sagði við réttar-
höldin að önnur sprengja hafi átt
að springa við höfuðstöðvar norska
Verkamannaflokksins og þriðja
sprengjan hafi átt að springa í ná-
grenni við Konungshöllina. „Ég ætl-
aði að koma sprengjunni fyrir við
Konungshöllina án þess að nokkur í
höllinni myndi slasast. Flestir þjóð-
ernissinnar eru stuðningsmenn
konungsstjórnar, þar á meðal ég.“
Hann sagðist hins vegar aðeins
hafa sprengt eina sprengju vegna
þess að of erfitt hefði verið að koma
hinum sprengjunum fyrir. Þá sagði
Breivik einnig að hann hafi ætlað
að framkvæma skotárásir víðar en í
Útey. Hann hafi til dæmis ætlað að
skjóta á blaðamenn sem sóttu ár-
lega ráðstefnu norskra blaðamanna
og á fulltrúa Verkamannaflokksins
á landsfundi flokksins. Hann hafi
hins vegar ekki getað undirbúið sig
í tæka tíð og því hafi hann ákveðið
að fara í Útey þar sem hann myrti 69
manns, aðallega ungmenni.