Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Blaðsíða 12
12 Fréttir 20.–22. apríl 2012 Helgarblað É g myndi segja að þetta væru viðunandi tölur. En okkar markmið er að börn undir 18 ára aldri geti ekki keypt tóbak,“ segir Geir Bjarnason, forvarnar­ fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Geir stóð í byrjun apríl fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur eða neftóbak á þeim sölustöðum sem hafa tóbakssöluleyfi í Hafnarfirði. Far­ ið var á 18 sölustaði og gátu ungling­ arnir keypt sígarettur á þremur þeirra en neftóbak á tveimur. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar á undan­ förnum árum og ef þær eru skoðaðar sést að töluverður árangur hefur náðst. Þannig gátu unglingarnir keypt tóbak í 60 prósentum tilvika árið 2003. Fá áminningu „Samkvæmt lögum á að spyrja um skilríki ef starfsmenn eru í vafa. Þetta eru krakkar í 10. bekk sem eru fimm­ tán ára gamlir og aldurstakmarkið til að kaupa tóbak er 18 ár,“ segir Geir. Könnunin fór þannig fram að tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnar­ fjarðarbæjar og reyndu að kaupa síga­ rettur og svo nokkru seinna var reynt að kaupa neftóbak. Sem fyrr segir seldu þrír sölustað­ ir unglingum sígarettur en tveir nef­ tóbak. Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt. Geir segir að eigendur þeirra staða sem kannaðir voru hafi allir tekið vel í könnunina. Einn sölustaður seldi unglingunum bæði sígarettur og nef­ tóbak og þar hefur verslunarstjórinn strax brugðist við. Búast má við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu frá heilbrigðiseftirliti eins og lög um tóbaksvarnir kveða á um. Samvinnuverkefni Á línuritinu sem fylgir fréttinni sést hvernig málin í Hafnarfjarðarbæ hafa þróast. Þeim stöðum sem selja börn­ um undir 18 ára tóbak hefur fækkað á undanförnum árum og segist Geir fagna því enda hafi markvisst verið unnið að því að halda verslunareig­ endum á tánum með því að fram­ kvæma kannanir oftar. „Við gerum samninga við verslunareiganda og þeir vita af þessu. Við erum ekki að berjast við þá heldur erum við að hjálpast að við að reyna að breyta þessu. Þetta er samvinnuverkefni því að enginn vill að börn geti keypt tóbak. Við hættum ekkert fyrr en þetta endar í núlli,“ segir hann. Áhyggjur af kannabis Þó að tóbaksneysla ungs fólks virð­ ist fara minnkandi segist Geir hafa vissar áhyggjur af kannabisneyslu ungmenna. Í maí í fyrra var greint frá því að kannabisneysla ungmenna í Hafnarfirði hefði aukist og í kjölfarið var blásið til málþings sem miðaði að því að hjálpa foreldrum og fræða þá um raunverulega skaðsemi kanna­ bisefna. Geir segist ekki hafa nýjar tölur um kannabisneyslu ungmenna í Hafnarfirði en fram undan sé þó löng og ströng barátta. „Öll vímuefna­ notkun unglinga er að minnka nema kannabisneyslan,“ segir Geir og kenn­ ir meðal annars því um að talað sé um kannabisefni sem skaðlaus fíkni­ efni. Þá séu efnin ræktuð innanbæjar og tiltölulega auðvelt að fá aðgang að þeim. „Þetta er að koma svolítið aftan að okkur og foreldrar kunna ekki al­ mennilega að bregðast við þessu. Þetta er að aukast, því miður. Maður heyrir af krökkum sem hafa reykt marijúana en hafa aldrei reykt sígar­ ettur. Þetta hélt maður að væri ekki til og var ekki til í gamla daga. Við erum að elta halann og erum í raun á byrj­ unarreit með kannabisefnin.“ Fimmtán ára börn n Sölustaðir seldu börnum sígarettur og neftóbak n Áhyggjur af kannabisneyslu geta keypt tóbak Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is 0 10 20 30 40 50 60 70 D es . 2 0 0 3 M aí . 2 0 0 4 D es . 2 0 0 4 M ar s. 2 0 0 6 M aí . 2 0 0 7 M aí . 2 0 0 8 A pr íl. 2 0 0 9 N óv . 2 0 0 9 M ar s. 2 0 10 M aí . 2 0 10 Se pt . 2 0 10 Fe b. 2 0 11 M aí . 2 0 11 O kt . 2 0 11 A pr íl. 2 0 12 Hlutfall unglinga sem gátu keypt tóbak „Maður heyrir af krökkum sem hafa reykt marijúana en hafa aldrei reykt sígarettur. Skýrt markmið Geir segir að markmiðið sé að enginn undir 18 ára aldri geti keypt tóbak. Tóbaksneysla Þrír sölustaðir seldu ungmenn- unum sígarettur en á tveimur gátu þau keypt neftóbak. MyND PHOTOS.cOM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.