Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Page 23
Fréttir 23Helgarblað 20.–22. apríl 2012
Hrunvaldurinn
Wen Jiabao
n Á lista með Davíð Oddssyni yfir helstu áhrifavalda heimskreppunnar
E
f ódýrt lánsfé var kókaín fjár-
málakrísunnar – sem það var
– þá var Kína helsti fíkniefna-
salinn,“ segir tímaritið Time
í umfjöllun um Wen Jiabao,
forsætisráðherra Kína. Tímaritið seg-
ir Wen einn þeirra sem mesta sök
beri á bankakreppunni á heimsvísu
en kínverski forsætisráðherrann er í
sextánda sæti listans. Það er nokkuð
ofar en Davíð Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, sem vermir næst-
neðsta sæti listans. Það eru lesendur
Time sem raða á listann í þeirri röð
sem þeir telja réttmætasta.
Aðeins þrír aðilar utan Banda-
ríkjanna verma listann. Auk Wens
og Davíðs er þar Fred Goodwin, fyrr-
verandi bankastjóri Royal Bank of
Scotland. Það skal tekið fram að vera
Davíðs Oddssonar á listanum teng-
ist störfum hans sem forsætisráð-
herra og seðlabankastjóra en ekki rit-
störfum fyrir Árvakur, sem rekur og á
Morgunblaðið.
Billjónir á billjónir ofan
Lesendum Time er sagt að líta verði
Wen þeim augum að honum fylgi
nærvera kínverskra stjórnvalda. „Sér-
staklega þeim hluta yfirvalda sem
skaffaði bandarískum markaði for-
dæmalaust magn lánstrausts frá alda-
mótum til 2009.“ Þá segir að þegar
listinn var settur saman hafi Kína átt
kröfur upp á 1,7 billjónir (BNA trillion)
dollara. Miðað við seðlabankagengi
gjaldmiðla 18. apríl myndi upphæð-
in í krónum telja 216.495.000.000.000
krónur eða tvö hundruð og sextán
þúsund fjögur hundruð níutíu og
fimm milljarðar króna. Upphæð sem
nægði til að reka íslenska ríkið í 397 ár
miðað við fjárlög ársins 2012.
Varð að viðhalda bandarískri
neyslu
„Gríðarleg uppsöfnun dollaraeigna
er sérstaklega tengd við viðleitni
kínverskra yfirvalda til stýringar á
virði gjaldmiðils Kína. Yfirvöld vildu
koma í veg fyrir skyndilegt ris á gengi
renminbisins, gagnvart Bandaríkja-
dal. Að hluta til vegna þess að að-
gangur að ódýru fjármagni hélt lífi
í útflutningsiðnaði Kína – Það gekk
líka eftir allt þar til eftirspurn Banda-
ríkjanna eftir varningi féll skyndilega
haustið 2008.“
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Kínverskt lánsfé
í íslenskum stærðum
Rekið íslenska ríkið
í rúmlega
397 ár
Miðað við fjárlög ársins 2012
Rekið íslenska utanríkisþjónustu í
22.220 ár
Miðað við fjárlagafrumvarp ársins 2012
Borgað allt Icesave
309 sinnum
Heimild: Icesave-reiknir Morgunblaðsins
og Datamarket, miðast við enga vexti,
engar endurheimtur og gengi dagsins
18. apríl.
Borgað Landsbankalaun
Sigurjóns Árnasonar í
746.534 ár
Miðað við laun Sigurjóns
hrunárið 2008.
Byggt tónlistarhúsið Hörpu,
aftur og aftur, eða
7.873 sinnum
Miðað við tölur frá árinu 2010, sem gera
ráð fyrir að kostnaður við byggingu
Hörpu verði um 27,5 milljarðar.
Kennt um efnahagsvandann Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er sagður einn þeirra
25 sem mesta ábyrgð bera á efnahagskrísu heimsins.
Leynd yfir
fjölda aftaka
Kínversk yfirvöld birta ekki
upplýsingar um fjölda aftakna í
landinu né tölur um fjölda
dauðadóma. Amnesty Inter-
national gerir það þó, síðast árið
2008. Amnesty segir að minnst
1.718 aftökur hafa verið fram-
kvæmdar í Kína það ár. Á sama
tíma hafi að lágmarki sjö þúsund
fangar verið dæmdir til dauða.
Það er gríðarleg aukning frá 2007
þegar 470 voru teknir af lífi og
1.860 einstaklingar dæmdir til
dauða.
Opinber stefna kínverskra yfir-
valda er að fækka aftökum. Árið
2011 var tegundum glæpa þar sem
krefjast mátti dauðadóms fækkað
úr 68 í 55. Samkvæmt dómi hæsta-
réttar í Kína er ekki heimilt að
dæma menn til dauða af lægri
dómsstigum nema að tafarlaus
aftaka sé talin nauðsyn. Dauða-
dómar eru því í reynd enn við lýði
í Kína.
Glæsikvöld-
verður á Kola-
brautinni
Samkvæmt heimildum DV verða
um hundrað gestir í kvöldverðar-
boði á Kolabrautinni, á fjórðu hæð
Hörpu, til heiðurs Wen Jiabao,
forsætisráðherra Kína, að kvöldi
föstudags. Meðal gesta verða for-
menn stjórnmálaflokka og fyrir-
menni innan stjórnsýslunnar.
Gestalistinn hefur ekki verið gerð-
ur opinber og málsverðurinn ekki
verið tilkynntur opinberlega. For-
mönnum flokka og ráðherrum rík-
isstjórnar er þó samkvæmt heim-
ildum DV boðið á kvöldverðinn
fyrir hönd íslenskra yfirvalda.
Birgittu
ekki boðið
Þótt formönnum stjórnmálaflokka
með fulltrúa á Alþingi sé sam-
kvæmt heimildum DV boðið til
glæsilegs kvöldverðar á Kolabraut-
inni með Wen Jiabao, forsætis-
ráðherra Kína, á slíkt ekki við um
formann Hreyfingarinnar, Birgittu
Jónsdóttur. Margréti Tryggva-
dóttur er boðið í hennar stað. Og
það þrátt fyrir að hún sé hvorki
formaður né þingflokksformaður
Hreyfingarinnar. Birgitta hefur
verið gagnrýnin á stefnu kín-
verskra yfirvalda í Tíbet og verið
í forsvari fyrir hóp sem kallar sig
Vini Tíbets. „Held að það myndi
ekki skemma að flagga tíbetska
flagginu,“ skrifaði Birgitta á Fa-
cebook-síðu sína á fimmtudag.
Tilefnið er heimsókn Wens.