Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Side 24
24 Fréttir 20.–22. apríl 2012 Helgarblað M enntaskólar landsins gera margir hverjir miklar kröfur til nemenda sinna og er ekki auðvelt að komast inn í vinsælustu skólana. Þeir eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem flestir nemendur eru. Skólarn­ ir sem notið hafa hvað mestrar eftir­ spurnar eru Kvennaskólinn, Mennta­ skólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands. DV kannaði hver inntökuskilyrðin í þessa skóla voru á síðasta ári en þessa dagana velta eflaust margir grunn­ skólanemendur, sem eru við það ljúka námi, fyrir sér í hvaða framhaldsskóla þeir vilji fara í. Staðsetning hafði vægi Eftirsóttustu skólarnir eiga sam­ eiginlegt að vera miðsvæðis í Reykjavík. MR og Kvennaskólinn eru staðsettir í póstnúmeri 101 en MH og Verzlunarskólinn nálægt hvor öðrum í póstnúmeri 105 og 103. Hvort staðsetning skólanna hafi mikið með aðsókn í þá að gera er ekki hægt að draga endan­ lega ályktun um en gott aðgengi að þeim með almenningssamgöng­ um hefur líklega einhver áhrif. Staðsetning hefur hingað til haft einhver áhrif á inntöku nem­ enda í skóla. Breyting hefur ver­ ið gerð á reglum um inntöku nem­ enda í skólana og er hver skóli fyrir sig sem ákveður hvaða vægi búseta nemenda hefur. Það var þó ekki nema lítill hluti, eða um fjórðung­ ur, nemenda á síðasta ári sem fékk inngöngu í skóla vegna þess að þeir bjuggu í nálægð við skólann sem þeir sóttu um inngöngu í. Langflest­ ir nemendur hafa komist inn í eftir­ sóttustu skólanna vegna góðs náms­ árangurs. Óvíst um lágmarkseinkunn í ár Ekki liggur enn ljóst fyrir hvaða ein­ kunnir nemendur þurfa að hafa til að komast inn í vinsælustu skólana. Það fer í raun eftir einkunnunum almennt hjá árganginum og hvaða nemendur sækja um hvar. Skólarnir sjálfir geta meira að segja ekki séð fyrir hvaða nemendur komast inn í skólann þar sem þeim er fyrst raðað óháð því hvort umræddur skóli hafi verið fyrsta eða annað val nemenda. Með þessu kerfi er erfitt að hafa bein áhrif á hvaða nemendur kom­ ast inn í skólana. Lítið svigrúm er til að beinlínis handvelja nemendur þar sem ekki liggur ljóst fyrir þegar skól­ arnir raða í röð hvaða nemendur skól­ arnir vilja helst sjálfir fá, hvort það sé skólinn sem viðkomandi nemandi vill sjálfur helst fara í. Þannig er það þegar nemandi á bæði möguleika á að kom­ ast inn í skóla sem settur var sem fyrsti og annar kostur er það hans en ekki skólanna að ákveða. Aðeins toppnemendur komAst í vinsælA skólA n Þetta eru skólarnir sem erfiðast er að komast inn í n Vinsælustu skólarnir með há viðmið Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Vinsælustu skólarnir n Forinnritun í menntaskóla er lokið fyrir næsta skólaár. Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu eru vinsælustu menntaskólarnir fimm allir í Reykjavík. Séu tíu vinsælustu skólarnir skoðaðir kemur í ljós að aðeins Verkmenntaskól- inn á Akureyri kemst inn á listann af þeim skólum sem staðsettir eru utan höfuðborgar- svæðisins. Allir skólarnir sem njóta hvað mestrar aðsóknar þurfa að hafna talsverðum fjölda nemenda. Skóli 1. val 2. val Alls Pláss Umsóknir umfram pláss Verzlunarskóli Íslands 535 258 793 336 -457 Kvennaskólinn 266 400 666 250 -416 Menntask. við Hamrahlíð 328 259 587 260 -327 Menntaskólinn við Sund 224 293 517 224 -293 Menntask. í Reykjavík 295 211 506 225 -281 Verkmenntask. Akureyri 201 247 448 200 -248 Menntask. í Kópavogi 188 238 426 245 -181 Fjölbrautask. í Garðabæ 141 272 413 150 -263 Borgarholtsskóli 176 216 392 240 -152 Tækniskólinn 162 177 339 175 -164 31 2 4 5 Menntaskólinn við Hamrahlíð Lágmarkseinkunn árið 2011: 8,25 Nánar um inntökuskilyrði: Meðaltal ein- kunna úr íslensku, stærðfræði, ensku og einni sérgrein, eftir því hvaða námsbraut var sótt um, þurfti að lágmarki að vera 8,25 til að nemendur gætu verið öruggir um að komast inn á einhverja braut í MH. Einhverjar undantekningar voru á þessu þar sem horft var til annarra þátta en almennt var það þó ekki gert. 1 Kvennaskólinn í Reykjavík Lágmarkseinkunn: 7,00 Nánar um inntökuskilyrði: Þeir nemendur sem komust inn í Kvennaskólann á síðasta ári þurftu að vera með minnst 7 í meðaleinkunn úr íslensku, ensku og stærðfræði til að komast inn í skólann. Það var þó mismunandi eftir brautum líkt og í öðrum menntaskólum hverjar kröfurnar voru og fór það eftir aðsókn á hverja braut. Sem dæmi þurfti 7,83 til að komast inn á náttúruvísindabraut í skólanum. Ekki var horft sérstaklega til annarra þátta eins og listnáms eða íþróttaiðkunar en horft var á einkunnir úr einstaka fögum hjá þeim einstaklingum sem stóðu jafnir með tilliti til hvaða námsbrautar viðkomandi voru að sækja um. 2 Menntaskólinn við Sund Lágmarkseinkunn: 7,2 Nánar um inntökuskilyrði: Ekki var sérstaklega horft til búsetu nemenda sem teknir voru inn í Menntaskólann við Sund fyrr en eftir að búið var að raða þeim í röð eftir einkunnum. Sú einkunn sem notuð var til viðmiðs var meðalein- kunn úr sex mismunandi námsgreinum og voru allar námsgreinarnar lagðar til jafns. Ef nemendur stóðu jafnir eftir þann útreikning var horft til þátta eins og búsetu og frammistöðu í einstaka fögum eftir því hvaða námsbraut við- komandi nemandi sóttist eftir. 3 Menntaskólinn í Reykjavík Lágmarkseinkunn: 7,85 Nánar um inntökuskilyrði: Einkunn sem notuð er sem viðmið fyrir málabrautar- nemendur er reiknuð þannig að einkunn- ir úr íslensku og ensku hafa tvöfalt vægi gagnvart einkunnum úr norðurlanda- máli og stærðfræði. Einkunn sem notuð er fyrir viðmið fyrir náttúrufræði- brautarnemendur er reiknuð þannig að einkunnir úr íslensku og stærðfræði hafa tvöfalt vægi gagnvart einkunnum úr ensku og náttúrufræði. Fleiri þættir eru skoðaðir við val á nemendum og er meðal annars horft til mætingar og þátttöku í starfi utan skóla eins og íþróttum og listnámi. 4 Verzlunarskóli Íslands Lágmarkseinkunn: 8,75 Nánar um inntökuskilyrði: Um 250 nem- endur valdir eftir einkunn sem reiknuð er þannig að einkunnir úr stærðfræði og íslensku hafa tvöfalt vægi gagnvart tveimur bestu einkunnum í samfélags- fræði, ensku og dönsku. Um það bil 70 nemendur svo valdir með lakari einkunn en út frá öðrum forsendum eins og mætingu og öðrum einkunnum. 5 Vinsælustu menntaskólarnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.