Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Qupperneq 42
Hvað er að gerast? Laugardagur Föstudagur Sunnudagur 21 apr 20 apr 22 apr Gospeltónleikar Bjarna Ara Söngvarinn Bjarni Arason syngur trúarlega söngva Elvis Presley ásamt einvala liði söngvara og tónlistarmanna. Tónleikarnir fara fram í Salnum í Kópavogi og hefjast klukkan 20.30. Miðaverð er 4.900 krónur. 10cc í Háskólabíói Stórtónleikar hljómsveitar- innar 10cc eru í Háskólabíói í kvöld. Hljómsveitin hefur selt yfir 30 milljónir platna á ferlinum og á ellefu lög sem hafa komist á topp tíu í Bretlandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Spilaþjófurinn frumsýndur Gamanleikritið Spilaþjófurinn er frumsýnt í kvöld. Það er Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sem setur leikritið upp. Sýnt í Rýminu á Akureyri og hefst klukkan 20. Miðaverð er 2.500 krónur. Iron Maiden „tribute“- tónleikar Tónleikarnir fara fram á Gamla Gauknum. Það er hljómsveitin MaidenIced sem spilar á tón- leikunum lög eftir hljómsveitina Iron Maiden. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Úr ljóðum Laxness Kammerkór Norðurlands flytur kórverk við ljóð Halldórs Laxness í Norðurljósasal Hörpu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og miðaverð er 2.500 krónur. Einn dagur á jörðinni Heimildarmyndin One Day On Earth er frumsýnd í Bíó Paradís í dag klukkan 16 á alþjóðadegi jarðarinnar. Myndin er sýnd á sama degi í 160 löndum. Það er UNICEF sem stendur fyrir sýningunni. 42 20.–22. apríl 2012 Helgarblað „Lágstemmd en áhrifamikil baráttusaga íslenskrar náttúru“ „Sýning sem þið megið alls ekki missa af“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Baráttan um landið eftir Helenu Stefánsdóttur. Tengdó eftir Val Frey Einarsson Í sak Óli Sævarsson er aðal- listamaður á listahátíðinni List án landamæra. Hann var fjögurra ára þegar for- eldrar hans komust að því að hann væri einhverfur. Á svipuðum tíma var það orðið ljóst að listin myndi liggja fyrir honum en það sem þau vissu ekki var að hann myndi leita í sögurnar sem þau lásu fyrir hann, ekki síst með það að marki að komast aðeins nær honum. En þótt hann sé lítið fyrir faðmlög og kossaflens er hann fyrir foreldrum sínum fullkominn eins og hann er. Enda er hann ekki bara ein- staklega hæfileikaríkur lista- maður heldur er hann einnig einstaklega skemmtilegur strákur. „Hvenær áttu afmæli?“ Ævintýri æskunnar eiga hug hans allan og hann hefur gert garðinn frægan með því að mála myndir af strumpum, skófólki, múmínálfum, Lúlla og vinum hans, Tinna og fé- lögum og fleiri teiknimynda- fígúrum. Já, hann er enginn venjulegur maður. Ísak Óli Sævarsson býr ásamt foreldrum sínum og systkinum í blokkaríbúð í Álf- heimum. Á leið minni upp stigann svara ég kveðjum að ofan, hæ, kallar Ísak Óli oft og ítrekað. Hann mætir mér svo á miðri leið og spyr hvenær ég eigi afmæli. Skoðar mig aðeins og hefur orð á því að ég sé með slaufu, fínu slaufuna sem ég ber um hálsinn. Sjálfur er hann klæddur í gallabuxur og stuttermabol með áprentaðri mynd af Tinna. Við göngum saman upp á efstu hæðina þar sem faðir hans, Sævar Magnússon, stendur í gáttinni og móðir hans, Halla Þuríður Stephensen, er inni í eldhús- inu, eitthvað að sýsla við mat. Öðruvísi en önnur börn „Ég er ekki vitlaus, ég er skrýt- inn,“ segir Ísak Óli. Hann er öðruvísi en annað fólk og hon- um er sama um það. Einhverf- um börnum er oft strítt í skóla en ef það gerðist þá skipti það hann engu máli, hann fattaði það ekki einu sinni. Hins vegar skiptir það hann miklu máli að vita hvað er að honum og að fólk haldi ekki að hann sé vitlaus. „Ég er einhverfur,“ segir Ísak Óli. Hann er með dæmi- gerða einhverfu en þótt það væri strax ljóst að hann væri ekki eins og önnur börn voru foreldrarnir lengi í afneitun. „Hann var mjög órólegur sem ungbarn,“ segir mamma hans. „Hann grét svo mikið að við vorum alltaf að reyna að róa hann. Við vorum með hann í „Ég er aðal“ Ísak Óli Sævarsson er aðallistamaður á listahátíðinni List án landamæra. Hann var fjögurra ára þegar for- eldrar hans komust að því að hann væri einhverfur. Á svipuðum tíma var það orðið ljóst að listin myndi liggja fyrir honum en það sem þau vissu ekki var að hann myndi leita í sögurnar sem þau lásu fyrir hann, eiginlega bara til þess að komast aðeins nær honum. En þótt hann sé lítið fyrir faðmlög og kossaflens er hann fyrir foreldrum sínum fullkominn eins og hann er. Enda er hann ekki bara einstaklega hæfileikaríkur listamaður heldur er hann einnig einstaklega skemmtilegur strákur. „Þegar við komum heim vissi ég ekki hvort ég ætti að fara að hlæja eða gráta, því Ísak Óli hafði teiknað risa- stórar fígúrur á ný- málaða veggina. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.