Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Page 48
48 Lífsstíll Helgarblað
Hræðilegt húðflúr
n Hugsaðu þig vandlega um áður en þú færð þér húðflúr
M
argir sjá eftir því að fá sér
húðflúr enda standast þau
sjaldan tímans tönn. Sumt
húðflúr er þó verra en ann-
að eins og þessar myndir sanna.
D
ýrin eru ekkert að þykjast og
þau eru alveg laus við for-
dóma. Því sér maður miklu
fyrr hvort nuddið sé að gera
þeim gott eða ekki. Það er
þessi einlægni dýranna sem heillar
mig,“ segir Nanna Lovísa Zophanías-
dóttir hundanuddari.
Nanna ákvað að skella sér í nám
í hundanuddi fyrir þremur árum.
„Margir flissa þegar þeir heyra af þessu
enda ekki klassískt nám. Ég lærði þetta
í Axelsons-skólanum í Svíþjóð þar sem
er kennt bæði nudd fyrir dýr og menn.
Námið skiptist í slökunarnudd, teygj-
ur og svo sjúkranudd. Ég hef verið að
fá hunda sem eru að jafna sig eftir að-
gerðir, gigtveika hunda og hunda með
gamla áverka eða sem hafa beitt sér
vitlaust. Og líka óörugga og stressaða
hunda. Hundar verða fyrir streitu og fá
þessa „velmegunarsjúkdóma“ eins og
við. Margir þeirra eru of þungir, hafa
fengið litla hreyfingu eða jafnvel verið
geymdir í búrum í marga tíma á dag.
Nuddið virkar eins og á fólk – þetta
eru sömu vöðvar, liðir og bein. Dýrin fá
vöðvabólgu rétt eins og við,“ segir hún
en bætir við að þar sem hún sé ekki
læknir taki hún ekki að sér veika eða
slasaða hunda nema eftir tilvísun eða
samtal frá dýralækni.
Sjálf er Nanna mikil dýramann-
eskja. „Ef það er loðið og með fjóra
fætur,“ segir hún brosandi og bætir við:
„Ég fæ aðallega hunda í nuddið en ein-
staka köttur kemur líka. Kettirnir eru
miklu erfiðari viðfangs,“ segir hún og
bætir við að hún hafi meira að segja
nuddað naggrís. „Það var alveg yndis-
legt – svona vasaútgáfa. Þetta eru allt
sömu vöðvarnir og ég gerði það sama
og við hundana og gat hjálpað honum,“
segir Nanna sem á sjálf hund og kött.
Nanna segir hundana oftast
hrædda í fyrstu heimsókninni. „Þeir
eru óöruggir enda er allt í einu ný
manneskja að pota í þá á allt annan
hátt en þeir eru vanir, en eftir fyrsta
skiptið elska þeir mig takmarkalaust.
Það er yndislegt að sjá hund koma
valhoppandi í aðra heimsóknina og
henda sér á bælið. Þetta er oft eins
og í teiknimynd,“ segir hún bros-
andi, en hún er með aðstöðu í Dýra-
ríkinu. Hún segir áhuga gæludýra-
eigenda á nuddinu alltaf að aukast.
„Ég vinn í þessu á kvöldin og um
helgar en er í annarri vinnu á dag-
inn. Eftirspurnin er alltaf að aukast
og það er spurning hvað maður ger-
ir næst og hvort maður þori að taka
stökkið.“
Hægt er að fræðast meira um
nuddið á síðunni hundarogkettir.is
indiana@dv.is
Nuddar hunda,
ketti og naggrísi
n Nanna Lovísa Zophaníasdóttir er lærður hundanuddari
Hundur í nuddi
Nanna segir yndislegt
að fá hund í annað
skiptið því þá valhoppi
þeir iðulega beint á
bælið. mynd eyþór árnason
Húðflúr í handarkrikanum Það er
eitthvað truflandi við það að einhver
vilji láta flúra á sér handarkrikann.
röntgenmynd af andlitinu Þessi
tók öskudaginn skrefinu lengra og sér afar
líklega eftir því.
andlit á
hnakkanum
Skelfileg og
stórfurðuleg
hugmynd.
Pac-man á
rassinum Eins
og Pac-man er
nú skemmtilegur
leikur þá er þetta
líklega versta húð-
flúr sem sést hefur.
matur Veru-
lega ólystugt.
Hverjum dettur
þetta eiginlega
í hug?