Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2012, Qupperneq 64
Sló taktinn á Nasa n Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fram- kvæmdastjóri Já Ísland, sýndi það og sannaði á miðvikudagskvöld- ið að henni er margt til lista lagt þegar hún spilaði á kúabjöllu fyrir fullum sal af fólki á Nasa. Bryndís sló taktinn með einni vinsælustu hljóm- sveit Íslands í dag, FM Belfast, en litli bróðir Bryn- dísar, Árni, er í hljómsveitinni. Sjálf segir Bryn- dís á Facebook- síðu sinni að þetta hafi verið upphaf og endir tónlistarferils síns. Taktfastur áróður! Les til að svæfa sjálfan sig n „Ég hef gaman af því að lesa en ég geri bara voða lítið af því. Ég get ekki sagt að ég lesi á hverju kvöldi en ég nota þetta til að svæfa sjálfan mig,“ segir sparkspekingurinn Hjörvar Haf- liðason í myndbandi sem unnið var í tilefni af bókasafnsdeginum sem haldinn var síðastliðinn þriðjudag. Í myndbandinu, sem birt er á mynd- bandavefsíðunni YouTube, segir Hjörvar frá reynslu sinni af bókum. Hann segist til að mynda aðallega lesa ævisögur íþrótta- manna en uppá- haldsbókin hans er ævisaga knattspyrnu- mannsins Pauls Gascoigne. Þá segist Hjörvar ekki hafa gaman af stórskáld- inu Halldóri Laxness. Missti af gríni um sjálfan sig n „Þetta er alveg frábærlega gert hjá þeim,“ segir Árni Johnsen þing- maður um leikritið Banastuð, sem Leikfélag Vestmannaeyja sýnir um þessar mundir. Leikritið er lauslega byggt á söguþræði Evil Dead-kvik- myndanna. Það er spunnið saman við raunveruleika Vestmannaey- inga, þykir blóðugt og súrt og hefur vakið ánægju í Eyjum. Árni sat þó ekki allt leikritið á dögunum og þurfti frá að hverfa í hléi, sökum anna. Kunnugir leikritinu segja brotthvarfið óheppilegt mjög enda hafi Árni misst af köflum í sögunni sem fjalla um hann. „Ég ætla nú ekki að eltast við það. Ég fer aftur ef ég hef tíma,“ svaraði Árni spurður hvort hann hygðist ekki fara aftur og hlæja á eigin kostnað. A thafnamaðurinn Bjarni Ár- mannsson, 44 ára, vakti at- hygli vegafarenda á Esjunni á miðvikudag þegar hann hljóp léttum og hröðum skrefum upp fjall- ið. Bjarni mun hafa verið 35 mínútur upp en félagi hans mátti lúta í gras og var 40 mínútur sömu leið. Báðir hlupu þeir lengri leiðina upp að Steini sem er í um 640 metra hæð yfir sjávarmáli. Hundruð manna leggja leið sína viku- lega upp Esjuna en flestir ganga þótt nokkur fjöldi hlaupi eða skokki upp fjallið. Bjarni er fyrir löngu landsþekkt- ur fyrir maraþonhlaup sín en hann var sem forstjóri Glitnisbanka upphafs- maður að Reykjavíkurmaraþoni Ís- landsbanka, árlegu hlaupi bankans, sem fram fer í ágúst. Þúsundir manna og kvenna taka jafnan þátt í því hlaupi. Hefur framlag Bjarna þannig orðið til að hjálpa þúsundum manna að breyta um lífsstíl og efla heilbrigði sitt. Bjarni mun með hlaupunum upp Esjuna vera að undirbúa 50 kílómetra hlaup í sumar. Hann hefur tvisvar hlaupið þá frægu gönguleið, Lauga- veginn, sem flestir eiga fullt í fangi með að ganga. Þeir allra fljótustu til að hlaupa Laugaveginn eru um 5 klukku- stundir á leiðinni. Bjarni hljóp Lauga- veginn í fyrra á sex klukkustundum og sjö mínútum. Varð hann 48. af 289 þátttakendum. Besti tími Bjarna upp Esjuna að Steini mun vera 29 mínút- ur, sem er mjög góður árangur. Hann á því dálítið í land með að ná þeim tíma aftur. Hleypur upp Esjuna á 35 mínútum n Bjarni Ármannsson æfir stíft fyrir 50 kílómetra hlaup í sumar Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 20.–22. aPrÍL 2012 45. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. athafnamaður í formi Bjarni hefur áður hlaupið upp Esjuna á 29 mínútum, sem þykir mjög góður tími.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.