Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 41
Skrýtið 41Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
Vinsæll David R. Grant er
nokkuð eftirsóttur áhættuleikari í
Hollywood. Hann tók að sér leik fyrir
Michael Rooker í Guardians of the
Galaxy og fyrir Johnny Depp í Mortdecai
sem kemur út á næsta ári. Grant hefur
haft í nógu að snúast að undanförnu því
hann leikur í áhættuatriðum í myndum
eins og Avengers: Age of Ultron,
Frankenstein og Cinderella svo fáar
myndir séu nefndar.
Sjö eftirsóttir
áhættuleikarar
n Áhættuleikarar sem bregða sér í hlutverk sem stjörnurnar vilja síður taka að sér
F
jölmargar stórmyndir eru
væntanlegar í kvikmynda-
hús á næstunni með mörg-
um af skærustu stjörnum
Hollywood í aðalhlutverkum.
Þessar svokölluðu stjörnur eru oft
látnar líta vel út á hvíta tjaldinu enda
verða hasaratriðin sífellt ótrúlegri eft-
ir því sem árin líða og tækninni fleygir
fram. Hollywood-stjörnurnar og fram-
leiðendur þessara mynda gætu samt
illa komist af án einnar starfsstéttar í
Hollywood, aukaleikaranna sem sjá
um áhættuatriðin fyrir stórstjörnurn-
ar. Business Insider tók á dögunum
saman nöfn nokkurra af eftirsóttustu
áhættuleikurum Hollywood. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Næstum eins Bobby
Holland Hanton hefur komið fram í
fjölmörgum stórmyndum. Hér sést hann í
gervi Þórs í samnefndri stórmynd þar sem
hann lék í áhættuatriðum fyrir Chris
Hemsworth. Þeir eru býsna líkir en þó sést
ef vel er að gáð að Hanton er hægra megin
á myndinni en Hemsworth til vinstri.
Hanton hefur einnig brugðið sér í hlutverk
James Bond og Batman, í stað þeirra
Daniels Craig og Christians Bale.
Bartabræður Áhættuleikarinn Richard Bradshaw hefur haft í nógu að
snúast í Hollywood undanfarin misseri. Þótt hann sé ekki þekktur leikari er hann mjög
eftirsóttur áhættuleikari. Hér sést hann í gervi Logans/Wolverine í myndinni X-men en
stórleikarinn Hugh Jackman fer alla jafna með hlutverkið í myndunum. Bradshaw fylgir
Jackman yfirleitt eftir í svoköllum tæknibrellumyndum því hann tók einnig að sér hlutverk í
Van Helsing. Áður en hann varð áhættuleikari starfaði Bradshaw sem kafari á olíuborpalli.
Þess má einnig geta að hann er mágur Jackmans.
Járnmaðurinn
Þó að Robert Downey Jr., einn af best
launuðu leikurum Hollywood, leiki Iron
Man, eða Járnmanninn, bregður hann
sér ekki í gervi Járnmannsins á setti
nema að mjög takmörkuðu leyti. Það
hlutverk er í höndum áhættuleikarans
Clays Donahue Fontenot en búningur
Iron Man var sérsmíðaður fyrir Clay.
Hann hefur leikið í fjölda mynda á
undanförnum árum, má þar nefna
Django Unchained, The Avengers og The
Amazing Spider Man 2 sem kom út fyrr
á þessu ári.
Álfkonan Fjölmargar konur starfa sem áhættuleikarar í Hollywood og er ein þeirra
Ingrid Kleinig. Hún hefur starfað sem áhættuleikkona fyrir margar Hollywood-stjörnur og komið
fram í myndum eins og The Great Gatsby og Pacific Rim. Hér sést hún í myndinni The Hobbit:
The Desolation of Smaug þar sem hún tók að sér áhættuleik fyrir leikkonuna Evangeline Lilly.
Alltaf í hasar Lifibrauð Marks Vanselow veltur að talsverðu leyti á þeim
verkefnum sem Liam Neeson tekur að sér. Til allrar lukku hefur Neeson leikið í fjölmörgum
vinsælum hasarmyndum á undanförnum árum og er Vanselow aldrei langt undan á setti.
Frá árinu 1998 hefur hann leikið í áhættuatriðum fyrir Neeson en þá léku þeir saman í
myndinni Gunshy. Nú síðast lék hann í myndinni Non-Stop sem gerist um borð í flugvél.
Eins og Bruce Willis Stuart F. Wilson er sköllóttur eins og Bruce Willis.
Líklega er það ástæðan fyrir því að hann tekur að sér nær undantekningarlaust áhættuleik fyrir
Hollywood-hasarleikarann fræga. Hann lék meðal annars í Live Free or Die Hard og Looper.
Wilson hefur einnig tekið að sér leik fyrir aðra leikara, þar á meðal John Malkovich í kvik-
myndinni Transformers: Dark of the Moon.