Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 10
Helgarblað 6.–9. júní 201410 Fréttir
Þ
að er búið að leita í húsinu
okkar,“ skrifar fundarritari
Hells Angels-vélhjólasam-
takanna í fundargerðabók
samtakanna í maí 2010. Í
marsmánuði 2011 urðu vélhjólasam-
tökin MC Iceland (MC prospects of
Hells Angels) fullgildir meðlimir í al-
þjóðlegu vélhjólasamtökunum Hells
Angels, eða Vítisenglar.
MC Iceland hét áður Fáfnir en frá
árinu 2002 hafði verið unnið að því
að stofna Vítisengla á Íslandi. Hells
Angels eru skilgreind sem alþjóðleg
glæpasamtök og unnu íslensk lög-
regluyfirvöld að því leynt og ljóst að
koma í veg fyrir fótfestu samtakanna
með miklu eftirliti. Samkvæmt heim-
ildum DV óttuðust margir meðlim-
ir það mjög að vera hleraðir og voru
ávallt búnir undir húsleit.
DV hefur fundargerðabækur sam-
takanna á árunum 2010–2012 undir
höndum. Bækurnar gefa góða innsýn
inn í starf Hells Angels á Íslandi, þótt
auðvitað hafi ekki allt sem tengd-
ist samtökunum ratað í bækurnar.
Samtökin eru enn starfrækt í dag, en
eru talsvert minna áberandi en þau
voru á árunum 2011–2012. Hér er er
skyggnst inn í upphaf samtakanna
áður en hópurinn varð að fullgildum
Hells Angels-meðlim.
Samkvæmt heimildum DV voru
hið minnsta þrjár tegundir af fund-
um: fundirnir sem skráðir eru í sér-
stakar fundargerðabækur, óformleg-
ir fundir og svo fundir sem fóru fram
undir berum himni. Á þeim síðar-
nefndu var þess gætt að ekki væri
hægt að hlera samtökin eða festa
niður hvað fór fram.
Vildu vera sýnilegir
Formlega gengu samtökin MC
Iceland inn í Hells Angels á vor-
mánuðum 2011. Í fundargerðabók-
unum má þó lesa að samtökin voru
þegar árið 2010 farin að skipuleggja
sig sem fullgild samtök og haga starfi
sínu þannig.
Samtökunum er og var annt um
ímynd sína út á við. Ímynd samtak-
anna og sýnileiki er sérstaklega tek-
inn fyrir á fundum. Þá áttu menn að
ganga í Vítisenglavestunum meðal
almennings eftir að samtökin urðu
fullgildur meðlimur.
Það þurfti þó að gæta mikillar
varúðar og tryggja að ímynd samtak-
anna væri með besta móti. Dansað
var á línunni varðandi það að hópur-
inn væri samsafn áhugamanna um
vélhjól og svo harðsnúinna einstak-
linga sem átti að bera óttablandna
virðingu fyrir. Alltaf lá þó klárt fyrir
hvert orðspor Hells Angels væri er-
lendis og í nágrannaríkjum Íslands.
Í fundargerðabókum má lesa um að
ef meðlimir væru stöðvaðir, jafnvel
þegar þeir væru vopnaðir, að þá bæri
þeim að gera lítið úr aðstæðunum.
Í nóvember 2010 er rætt um það
á fundi að þeir þurfi að fara varlega:
„Við þurfum að passa okkur hvað við
segjum við annað fólk.“
Ferðuðust víða
Hluti af starfi MC Iceland var sam-
vinna og sýnileiki meðal Hells Ang-
els-samtaka í öðrum ríkjum. Aðeins
þannig var hægt að verða fullgildur
meðlimur í alheimssamtökunum
Meðlimir ferðuðust því víða, sérstak-
lega á árunum 2010–2011. Í fundar-
gerðabókunum er rætt um ferðalög,
hentugar tímasetningar og annað
þeim tengt. Þegar meðlimir sneru til
baka héldu þeir stutta tölu á fundum
um ferðalögin.
Félagslegt taumhald
Menn þurftu að standa sig í MC
Iceland og Hells Angels ef marka
má fundargerðabækurnar. Oft er
rætt um meðlimi sem þurfa að „taka
sig á,“ gagnvart klúbbnum. Einnig
þurftu þeir sem áttu í vandræðum
með áfengisneyslu að vanda sig,
sinna AA fundum og „vinna í edrú-
mennsku sinni.“
Ef marka má fundargerðabók-
ina komust meðlimir ekki upp
með að sýna af sér óæskilega hegð-
un – sem var skilgreind af samtök-
unum sjálfum. Í desember 2010
er rætt um meðlim sem ekki hafði
fylgt settum hegðunarreglum: „Villi
var tekinn fyrir varðandi framkomu
sína á mánudaginn síðasta.“ Annar
meðlimur er einnig tekinn á tepp-
ið á fundi á haustmánuðum 2010.
Þar segir í fundargerðabókinni:
„Framkoma Billa gagnvart klúbbn-
um var rædd og verður niðurstaðan
tekin með hann fyrir framan okkur.“
Hægt er að kalla þessa eftirfylgni fé-
lagslegt taumhald, en meðlimum
var, eftir því sem DV kemst næst,
mjög annt um að standa sig gagnvart
samtökunum. Hörð viðurlög voru
við agabrotum og gátu menn meðal
annars misst vestin sín og atkvæðis-
rétt ef þeir gleymdu að borga bar-
reikninga í klúbbhúsi samtakanna
í Hafnarfirði. Einn meðlimur lenti í
því að missa „litina“ sína. Í fundar-
gerðabókinni segir: „Litirnir hans X
teknir af honum þangað til hann er
kominn á hjól og sínir [sic] að hann
sé orðin edrú hann á að hitta sponsor
og gera eitthvað í sínum málum og
skoðist vikulega.“ Maðurinn átti að
mæta daglega í klúbbhúsið til þess að
hægt væri að fylgjast með heilsu hans
og framförum.
Innri átök
Í bókunum má lesa vísi að innri átök-
unum meðal félagsmanna. Í bókun-
um er greint frá því þegar einn MC
Iceland „prospect“ (maður sem er
ekki fullgildur meðlimur en sækir
fundi og tekur þátt í starfi samtak-
anna en hefur ekki rétt til að taka
þátt í kosningum eða ákvarðana-
töku innan samtakanna) hættir í
samtökunum. Maðurinn heitir Rikki
í fundargerðabókinni en um er að
ræða Ríkharð Ríkharðsson. Þar seg-
ir: „Rikki er alveg farinn og búinn að
gera það opinbert út að hann sé ekki
með okkur. Það verður eitthvað gert í
þessu. Núna verða allir að vera vak-
andi og á high alert. Vopnaðir alltaf
[alltaf er undirstrikað, innsk. blm.] ef
þeir sjást þá taka þá út. Ef við erum
spurðir þá gerum við grín af [sic]
þessu.“
Viðkomandi meðlimur, Ríkharð-
ur, gekk síðar til liðs við önnur vél-
hjólasamtök, Outlaws.
Engum sögum fer af því hvern-
ig málin enduðu formlega en það
er ekki tekið fyrir í fundargerðabók-
unum. Hér er um að ræða færslu
sem skrifuð er í desembermánuði
2010, rétt fyrir áramótin áður en MC
Iceland-samtökin urðu fullgildur
meðlimur Hells Angels. Það vekur
athygli hversu bersögull fundarritar-
inn er í þessu tilfelli, en líkt og greint
var frá hér fyrir framan voru ákvarð-
anir sem þessar sjaldnast skráðar í
fundargerðabókina og frekar ræddar
á fundum undir berum himni.
Við þennan tiltekna meðlim,
Rikka, höfðu margoft áður verið um-
ræður þar sem rætt var um hvort ætti
að freista þess að halda honum inn-
an vébanda samtakanna og í raun
allt kapp lagt á að halda honum.
Sami maður kemur raunar oft fyrir í
fundargerðabókunum. Á einum stað
er lagt til að meðlimir hafi samband
við hann eða „fari í heimsókn“ til
hans en það er nokkru áður en hann
er settur á „high alert.“
Þá hafði hann verið veikur og fé-
lagar hans voru því hvattir til að líta
til hans á sjúkrabeðinn. Þá grein-
ir fundarritari frá því að maðurinn
sé að verða fyrir miklu áreiti frá lög-
reglunni. Hún sé að reyna að „hræða
hann frá okkur,“ segir fundarritari og
segir lögregluna vera „með leiðindi
við hann.“
Settur af
Einar Ingi Marteinsson, Einar Boom,
var formaður Hells Angels á Íslandi
frá stofnun samtakanna. Í janúar
2012 sat Einar Ingi í gæsluvarðhaldi.
Það hafði mikil áhrif á samtökin,
enda hafði Einar verið andlit þeirra
út á við og stýrt starfi þeirra.
Gæsluvarðhaldsvistin tengdist
árás í Hafnarfirði rétt fyrir jólin 2011
en lögreglan hélt því fram að Einar
hefði komið nálægt skipulagi hennar.
Einar var sýknaður af slíkum ásökun-
um bæði fyrir héraðsdómi og Hæsta-
rétti og fór í mál við íslenska ríkið þar
sem hann taldi sig hafa setið í gæslu-
varðhaldi við ómannúðlegar aðstæð-
ur í hálft ár að ósekju. Skaðabóta-
málinu var vísað frá dómi á þessu
ári. Aðrir aðilar sem tengdir voru við
Hells Angels voru dæmdir fyrir að-
komu sína að málinu og hlutu þunga
dóma.
Gæsluvarðhaldið hafði þó afdrifa-
ríkar afleiðingar fyrir stöðu Einars
innan Hells Angels því hann var á
endanum settur af sem formaður
samtakanna og í kjölfarið var mjög
hljótt um samtökin. Einar var settur
af í „Bad standing,“ þann 14. mars
2012. Í fundargerðabók frá 2012 kem-
ur fram að gallavesti hans hafi verið
brennt, sem og merki hans. Í samtali
við DV í mars 2012 kvaðst Einar Ingi
vera hættur og vildi ekki tjá sig frekar
um málið. Í fundargerðabókunum
sést vel að Einar var í sambandi við
samtökin í gæsluvarðhaldinu. Hann
sendi þeim meðal annars bréf þótt
ekkert komi fram um efni þess í bók-
unum.
Boðið aftur inn
DV mun fjalla ítarlega um fundar-
gerðabækurnar á næstunni og fara
yfir efni þeirra. DV hefur heimild-
ir fyrir því að fyrrverandi meðlim-
um hafi nýlega verið boðið að koma
aftur inn í samtökin sem hafi ætlað
sér að sækja í sig veðrið eftir ládeyðu
undanfarin tvö ár. n
n Fundargerðabækur vélhjólasamtakana segja söguna frá stofnun til 2012 n Einar Ingi var kosinn út í „Bad standing“„Framkoma X
gagnvart klúbbn-
um var rædd og verður
niðurstaðan tekin með
hann fyrir framan okkur.
Formaður Einar Ingi Marteins-
son var formaður Hells Angels
á Íslandi þar til hann var settur
af árið 2012. Þá hafði hann setið
í gæsluvarðhaldi í langan tíma.
Hér stilla Hells Angels-með-
limir sér upp við Héraðsdóm
Reykjavíkur til að fylgja eftir
dómsmáli sem þeir höfðuðu á
hendur íslenska ríkinu eftir að
erlendum Hells Angels-meðlimi
var meinaður aðgangur að
landinu. Mynd SIgtryggur ArI
„Núna verða
allir að vera
vakandi og á high alert
Svona Störfuðu
HellS angelS
á ÍSlandi