Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 14
14 Fréttir Helgarblað 6.–9. júní 2014
É
g bara skil ekki þessa nei
kvæðni í umræðunni. Við
erum að reyna að vekja
athygli á laxveiðinni. Boðið
kemur náttúrlega frá veiði
félagi Norðurár sem er stjórnað af
eigendum árinnar sem eru bænd
ur í Borgarfirði. Það er löng hefð
fyrir því að fyrirmönnum hafi verið
boðið í Norðurá, bæði konungborn
um og öðrum, og alltaf þótt sómi.
Við viljum breyta þessari ímynd
laxveiðinnar þannig að mönnum
finnist sjálfsagt og eðlilegt að bjóða
mönnum í laxveiði,“ segir Einar Sig
fússon, sölustjóri Norðurár, um boð
veiðifélags árinnar til ráðherranna
Sigmundar Davíðs Gunnlaugsson
ar og Bjarna Benediktssonar um að
opna með formlegum hætti veiðina
í ánni þetta sumarið.
Þeir Bjarni og Sigmundur
opnuðu ána á fimmtudagsmorgun
en veiddu ekki lengi; voru hættir rétt
fyrir klukkan átta eftir að hafa byrj
að að veiða klukkan sjö. Bjarni náði
einum laxi á land, öðrum laxi sum
arsins en þann fyrsta veiddi bróðir
Einars, Sigurður Sigfússon. Bjarni
veiddi grálúsuga hrygnu, 78 senti
metra, sem tók eina af klassískari
flugum sem til er, Rauðan Francis.
Sá árangur Bjarna verður að teljast
góður í ljósi þess hversu stutt ráð
herrarnir voru við veiðar – einungis
í um fjörtíu mínútur.
Flinkur Bjarni
„Bjarni er flinkur veiðimaður,“ seg
ir Einar. „Þetta er greinilega mik
ið áhugasport hjá honum. Hann
kastaði bara eins og fagmaður hér.
Bjarni setti í fiskinn eitthvað 23 mín
útur yfir sjö í morgun og var búinn
að landa honum 20 mínútum síðar.“
Einar segir að Sigmundur hafi líka
kastað ágætlega en að það hafi háð
honum að hann var bara á göngu
skóm en ekki á vöðlum eins og
Bjarni. „Jú, Sigmundur tók nokkur
köst hér af bakkanum. Það var gert
af myndarskap en hann náði ekki að
koma flugunni eins vel fyrir fiskinn
því að hann var ekki í vöðlum. Þeir
komu bara hérna í morgun, þáðu
einn kaffibolla og svo bara út í á
klukkan sjö þannig að þetta var bara
skemmtilegt. Svo voru þeir farnir
fyrir átta. Þannig að þetta var bara
svona örstutt heimsókn,“ segir Ein
ar. „Þeir höfðu víst aldrei hugsað sér
að vera neitt lengur.“
Boðið í einn og hálfan dag
Einar segir að veiðifélag Norður
ár hafi ákveðið að gera þetta svona
núna, opna ána með þessum hætti
þetta árið, en að ekki hafi ver
ið ákveðið með framhaldið. „Þetta
voru bara vinir okkur og fjölskylda,“
segir Einar. Ráðherrunum var boðið
í einn og hálfan dag, sem og í fæði og
gistingu, en þeir nýttu sér það ekki
heldur stöldruðu stutt við á bökkum
Norðurár á fimmtudagsmorgun.
Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar
innar, Sigurður Már Jónsson, sagði
á fimmtudag að litið væri á veiði
ferðina sem opnunarathöfn en ekki
sem boðsferð. Til samanburðar má
nefna að borgarstjórinn í Reykjavík
hefur á hverju ári opnað Elliðaárnar
í Reykjavík. „Við erum að gera þetta
bara af hreinum og jákvæðum hug
og þetta hefði snúið eins að öllum
sem hefðu verið í þessum embætt
um,“ segir Einar.
Ímyndarvandi eftir hrun
Einari er tíðrætt um þann ímyndar
vanda sem laxveiðin hafi glímt við
frá hruninu árið 2008. „Við erum að
reyna að vekja athygli á laxveiðinni
og hefja hana til vegs og virðingar
af því hún fékk á sig neikvæðan
stimpil eftir hrunið 2008. Hún hef
ur átt undir högg að sækja og okkur
finnst þetta bara jákvætt. Þetta eru
nú heldur ekki dýr veiðileyfi á þess
um tíma,“ segir Einar og bætir við
að veiðileyfið kosti um 38 þúsund
krónur á dag á þessum tíma. Fyrir
hrunið 2008 var algengt að bankar
og önnur fjármálafyrirtæki biðu
viðskiptavinum sínum og ýmsum
öðrum í laxveiði á þessum árum.
Einar segist vera hissa á neikvæðu
umfjölluninni sem hófst um veiðar
ráðherranna. „Ég átti svo sem von
á þessu. Það eru alltaf sjálfskipaðir
postular í landinu sem þykjast þurfa
að hafa vit fyrir okkur. Það kom nátt
úrlega strax komment frá ákveðnum
aðilum, líkt og ég bjóst við. Hefði
Jóhanna Sigurðardóttir verið for
sætisráðherra þá hefði hún allt eins
fengið boð um að koma.“
Tími „laxveiði-
spillingartímans“?
Með orðum sínum vísar Einar til
þess að Jóhanna Sigurðardótt
ir hafi gagnrýnt veiðiferð ráðherr
anna þegar hún spurðist út í vik
unni. Vísaði Jóhanna til þeirra tíma
þegar einkafyrirtæki buðu stjórn
málamönnum og öðrum til lax
veiða á árunum fyrir hrunið 2008.
„Get ur verið að laxveiðispill ing ar
tím inn sé að renna upp aft ur? Hafa
þess ir menn enga siðferðis kennd?
Og ég spyr, hafa þeir numið úr gildi
siðaregl ur fyr ir rík is stjórn Íslands
sem sett var af rík is stjórn minni, þar
sem svona sukk var bannað?“
Boðsferð eða ekki?
Í siðareglum sem ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur samþykkti
í mars 2011 kemur fram að ráðherr
ar eigi ekki að þiggja boðsferðir frá
einkaaðilum. „Ráðherra þiggur að
jafnaði ekki boðsferðir af einkaað
ilum nema opinberar embættis
skyldur séu hluti af dagskrá ferðar
innar.“ Líkt og áður segir þá hefur
upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinn
ar hins vegar stigið fram og sagt að
veiðiferðin í Norðurá sé ekki boðs
ferð heldur sé um að ræða opnun
á laxveiðiá. Ef ráðherrarnir hefðu
dvalið allan tímann við veiðar – 1,5
dag – og þegið fæði og gistingu má
hins vegar frekar segja að um boðs
ferð hefði verið að ræða. Kostnaður
veiðifélags Norðurár af veiðum ráð
herranna á fimmtudag var sannar
lega ekki mikill þegar litið er til þess
að heill dagur í ánni nú kostar nú
um 38 þúsund á stöng en þeir Bjarni
og Sigmundur Davíð veiddu aðeins
í klukkutíma. Því má kannski segja
að með því að staldra svo stutt við
hafi ráðherrarnir breytt eðli veiði
ferðarinnar. Þeim var boðið í boðs
ferð í laxveiðiá en þeir gerðu úr
henni opnun á laxveiðiá.
Laxinn í skýrslunni
Með orðum sínum um laxveiði
spillingartímann vísaði Jóhanna
væntanlega til þess tímabils í sögu
þjóðarinnar á árunum fyrir hrun
þar sem bankar buðu viðskiptavin
um og stjórnmálamönnum í lax
veiðiferðir. Slíkar boðsferðir tíðk
uðust raunar líka fyrir þetta tímabil
sem segja má að hafi hafist með
Styrinn um kostaða laxveiði
n Veiðiferð Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs hluti af áralangri umræðu um kostaðar laxveiðiferðir n Boðsferðir í laxveiði voru tengdar við óhóf, lúxus og jafnvel spillingu
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Get ur verið að
laxveiðispill ing ar
tím inn sé að renna upp
aft ur?