Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 30
Helgarblað 6.–9. júní 201430 Fólk Viðtal
„Þarna fannst mér ég læra svo mik
ið. Seinna lenti ég í miklum rökræð
um við danska skólafélaga mína. Þá
vorum við að fara á McDonald's og ég
gaukaði smá peningi að manni sem
var að betla fyrir utan. Þeim fannst að
ég ætti ekki að gera það því þá væri ég
að koma í veg fyrir að hann sæi um
sig sjálfur. Bentu til að mynda á að á
þessum hamborgarastað væri ver
ið að óska eftir starfskröftum. Því var
ég ekki sammála og reyndi að útskýra
fyrir þeim þessa afstöðu mína og á
hverju ég byggði hana. Ef ég á eitthvað
umfram þá er ég í aðstöðu til að gefa
með mér og það er gott.“
Hann viðurkennir að vissulega sé
þetta kannski að vissu leyti á skjön við
hugmyndafræði hægri manna. Hver
og einn eigi að skapa sér sín tækifæri
sjálfur. „Þannig að þegar við ræðum
það að fólk eigi að standa sig og hver og
einn sé sjálfum sér næstur og öll þessi
hægri hugmyndafræði sem ég trúi á
þá verð ég líka að hafa þetta hugfast.
Og ég finn það alveg að í minni hægri
mennsku að það umhverfi sem ég
kem úr, að alast upp á heimili þar sem
er bara svona kannski „lower middle,“
með félagslega menntun, það hleyp
ir manni bara ákveðið langt til hægri.
Ég hef trú á þessu félagslega neti og
þessari samfélagslegu hjálp. En að því
sögðu þá finnst mér líka að fólk eigi að
standa sig, það á að uppskera eins og
það sáir. Við berum meiri ábyrgð sem
einstaklingar en sem skattgreiðendur.
Við eigum að hugsa um samborgara
sjálf en ekki ætlast til að hið opinbera
gerði það. Við eigum að fara vel með
opinbert fé og ekki ala fólk inn á slíkt,“
segir hann.
Hefur mikinn áhuga á fólki
Elliði segir vináttu sína við heimilis
lausa manninn líklega hafa komið
til vegna þess gríðarlega áhuga sem
hann hefur á fólki. Hann hafi einstak
lega gaman að því að kynnast alls kon
ar fólki. „Ég hef ofboðslegan áhuga á
fólki. Mér finnst fólk alltaf svo áhuga
vert og spennandi. Mér finnst svo
gaman að hugsa til þess að við erum
niðurstaða 60 þúsund ára þróunar,“
segir Elliði sposkur. „Ég pæli mikið í
manneskjunni og mér finnst fólk bara
svo skemmtilegt. Mér finnst gaman
að kynnast ólíkum tegundum af fólki.
Mér finnst líka gaman að sjá hvað
heimurinn er alltaf að verða betri og
betri staður til að búa á – fólk segir að
hann sé að verða verri en ég er ósam
mála því. Börnin mín eru svo langtum
fremri en ég í alla staði, læknavísindin,
tækniframþróunin og allt þetta. Allt
hefur sínar skuggahliðar en heimur
inn hefur aldrei verið betri staður til
að búa á en akkúrat núna,“ segir hann
og fær sér sopa af kaffinu sem líklega
er orðið nokkuð volgt núna.
Væri til í að snúa
til baka í kennsluna
Eftir námið í Danmörku fluttu þau
Bertha aftur heim til Íslands. Gamli
heimabærinn togaði í Elliða og þau
ákváðu að flytjast þangað. Þau réðu
sig bæði til starfa sem kennarar við
Fjölbrautaskóla Vestmannaeyja og
kenndu þar í nokkur ár eða allt þar
til Elliði varð bæjarstjóri og Bertha
hætti nokkrum árum seinna þegar
hún opnaði tískuvöruverslun. „Okkur
fannst báðum alveg ofboðslega gam
an að kenna og við værum alveg til í að
snúa aftur í kennsluna einhvern tím
ann, það er næstskemmtilegasta starf
á eftir því að vera bæjarstjóri í Vest
mannaeyjum,“ segir hann kíminn.
Reynir að stjórna
eigin draumum
Framan af hafði Elliði engan áhuga á
stjórnmálum og hafði aldrei tekið þátt
í stjórnmálastarfi. Upp úr þrítugu fór
hann þó að skipta sér af stjórnmál
um en þá vegna eigin áhuga á sam
félaginu. Hann var kosinn formaður
Ungra sjálfstæðismanna í Vestmanna
eyjum og var í 4. sæti á lista sjálfstæðis
manna. Hann komst inn sem vara
bæjarfulltrúi og sat í minnihluta. Á
næsta kjörtímabili leiddi hann listann
og náðu þau þá meirihluta sem hefur
haldist undanfarin átta ár. Hann segir
það hafa komið sér vel að koma inn í
stjórnmálin á þennan hátt. „Þegar ég
bjó erlendis þá fékk ég mikinn áhuga
á samfélagi. Áhugi minn á pólitík
kemur út frá samfélagsáhuga mínum.
Ég er rosalega mikið „control freak“,
alveg gríðarlega mikið – svo mikið að
ég reyni að stjórna draumum mínum,“
segir hann hlæjandi. „Þegar ég fer að
sofa þá geri ég tilraun; ég ímynda mér
að ég hoppi upp og ef ég get stoppað
þar þá veit ég að ég er sofnaður, þetta
tekst mjög sjaldan,“ segir hann hlæj
andi aðspurður hvernig hann fari að
því. Áhugi hans á stjórnmálum kvikn
aði sem sagt út frá samfélagslegum
áhuga hans og hann telur nauðsyn
legt að fólk taki þátt í að móta eigið
samfélag. „Það er hollt og gott að taka
þátt í mótun samfélagsins, ef maður
tekur ekki þátt þá er erfiðara að gagn
rýna.“
Tók við erfiðum rekstri
Á þeim árum sem liðin eru síðan
Elliði tók við stjórn bæjarfélagsins
hefur margt gerst. „Samfélagið hefur
breyst mikið á þessum tíma. Ef mað
ur á að stjórna vel settu sveitarfélagi
þá er betra að hafa kynnst því hvernig
er að vera með þungt og erfitt sveitar
félag. Hér hafði íbúum fækkað um 20
prósent og það var stöðug íbúafækk
un, 50–200 á ári. Bæjarfélagið stóð líka
illa fjárhagslega. Mitt fyrsta verk sem
bæjarstjóri var að skrifa undir lán til
þess að við gætum greitt út laun, við
áttum ekki til hnífs og skeiðar og ekk
ert hægt að framkvæma. Tekjur dugðu
ekki fyrir rekstri hvað þá framkvæmd
um. Þetta var ofboðslega þungur róð
ur. Í dag erum við eitt af best settu
sveitarfélögum á landinu. Erum nán
ast að verða skuldlaus. Íbúum fjölgar
núna ár eftir á og hefur gert frá 2007,“
segir hann.
En hvernig fór hann að þessu? „Ég
gerði það ekki. Það er oft freistandi að
halda því fram í hrokanum en bæði ég
og aðrir vita að þetta er ekki verk eins
manns, því fer fjarri. Í stjórnmálum
tölum við alltof mikið um persónur
og leikendur. Það er ekki rétt að gera
það, í félagssálfræði er það til sem er
kallað eignunarkenningin; og stóra
eignunarvillan er að gera persónur
að svo stórum og miklum áhrifavöld
um. Það er rangt en að því sögðu þá
skiptir sannarlega máli hverjir stjórna;
hvernig hugmyndafræði við höfum og
það skiptir máli að fara vel með fjár
mál. Það höfum við reynt að gera og
ég trúi því að bæjarbúum líki það.“
Átakamaður í eðli sínu
Í stjórnartíð sinni hefur Elliði líka ver
ið óhræddur við að taka stóra slagi.
Einn þeirra var þegar var þegar bær
inn fór í mál við eignarhaldsfélag
Magnúsar Kristinssonar vegna sölu
á útgerðinni BergiHugin til Síldar
vinnslunnar í Neskaupstað. Héraðs
dómur ógilti söluna í byrjun maí og
telur bæinn eiga forkaupsrétt. „Við
höfum verið mjög óhrædd við það að
taka stóra slagi, kannski minnug þess
sem ég sagði áðan að frelsi er ekki til
neins ef við höfum ekki frelsi til þess
að gera mistök. Þannig að við höfum
alveg óhrædd mætt í alla slagi og líka
spilar það inn í hvernig við erum og
hvernig ég er. Ég er átakamaður í eðli
mínu. Mér líður vel í átökum. Þannig
var handboltinn fyrir mér, hann var
átök og ég mætti þannig til leiks,
þannig var ég sem barn og þannig er
ég ennþá. Ég er svo langt því frá að
vera átakafælinn og stundum of ákaf
ur í átök. Þegar að átökin eru sem
mest og maður er farinn að upplifa
að maður sé að eignast óvini þá fer
mér að þykja alveg ofboðslega vænt
um óvini mína því að góður óvinur
er svo verðmætur. Það er gott að eiga
góða vini; góður vinur gerir margt fyrir
þig, hann vekur hjá þér öryggiskennd,
þú slakar á og situr við eldinn og sef
ur lengur og verður værukær. Góður
óvinur gerir akkúrat það gagnstæða.
Hann hvetur þig til dáða, eykur þér ár
vekni, þú sefur minna og berst meira
þannig þér verður meira úr verki. Mér
þykir ofboðslega vænt um að eignast
öfluga óvini, þetta er neikvætt orð en
það er kannski nær að kalla þetta öfl
uga andstæðinga. Það er gott og hollt
að eiga öfluga andstæðinga,“ seg
ir hann og viðurkennir óhræddur að
hann eigi sér alls kyns andstæðinga
og hann kunni því vel.
Verður á að stíga á tær
Hann segir það líka hafa veitt sér með
byr í stjórnmálum að vera óhræddur
við að raska ró einhverra. „Ég á gríðar
lega marga og góða andstæðinga. Ég
geng þannig fram og hef alla tíð gert
að mér verður á að stíga á tær. Þegar
ég byrjaði í stjórnmálum, þegar ég
byrjaði að leiða þetta samfélag í
Vestmannaeyjum þá átti ég ekkert
tengslanet. Ég vissi aldrei hver neinn
var og varla hvað þingmennirnir hétu.
Ég hélt að þetta yrði mér fjötur um fót
en til baka litið var þetta bara rosa
lega gott. Ég vissi aldrei hver hefði lent
upp á kant við hvern í einhverri ung
liðahreyfingu eða hvernig einhverjar
kosningar í stúdentapólitíkinni fyrir
20 árum fóru. Það skipti mig nákvæm
lega engu og ég vissi aldrei fyrir hverj
um maður átti að beygja sig og bugta
og fyrir hverjum ekki. Ég þurfti aldrei
að taka þátt í einhverju þannig rugli.
Þetta var utan míns skilnings og er að
sumu leyti enn. Þegar upp var staðið
þá hjálpaði það mér,“ segir hann.
Komst í tengslanet Geirs
Elliði segist þó hafa notið góðs stuðn
ings sinna flokksmanna og getað
gengið að þeirra tengslaneti vísu.
„Ég eignaðist snemma mjög góða
vini sem veittu mér aðgang að sínu
tengslaneti; nefni í því samhengi t.d.
Geir H. Haarde sem reyndist mér al
veg ofboðslega vel þegar hann var
formaður. Eftir fyrstu kosningarnar
þegar ég var oddviti þá fór ég bara til
formannsins og ég sagði honum að
við værum með hreinan meirihluta
og þetta væri samfélag sem yrði pláss
frekt í umræðunni, ég hefði ekk
ert tengslanet og yrði að geta geng
ið að hans tengslaneti sem vísu. Það
hefur aldrei klikkað til dagsins í dag
ef ég þarf að komast í tengsl við eitt
hvert fólk hvort sem það er í erlendum
stjórnmálum eða innlendum þá er
það eitt símtal í Geir og hann hjálpar
mér. Það ég er honum þakklátur fyrir
og kann vel að meta.“
Bjarni „fokking“ flottur
Hann segist einnig eiga í góðum
samskiptum við núverandi formann
flokksins, Bjarna Benediktsson. Skila
boð á kosninganótt frá formanninum
komust í fréttirnar þegar Elliði las þau
upp í beinni útsendingu. „Fokking
ótrúlegt og þú mátt hafa það eftir mér.
Bið að heilsa í höfuðvígi Sjálfstæðis
manna í Vestmannaeyjum,“ stóð í
skilaboðunum.
„Samband okkar Bjarna er mjög
gott og ég kann vel að meta hann. Ég
hef notið þeirra forréttinda að kynn
ast honum sem persónu ekki bara
sem stjórnmálamanni. Mér hefur
stundum fundist hann vanta að sýna
svona þessa persónulegu hlið, þenn
an mann sem finnst gaman að segja
manni frá hundinum sínum og börn
unum sínum. Þennan eldhuga sem á
sér svo skýr markmið og hreina hug
myndafræði. Þetta er svo ofboðs
lega vandaður og góður maður, hann
Bjarni. Hann á að láta það eftir sér að
vera þannig. Það brennur svo mikill
eldur í honum sem honum kannski
tekst ekki nógu vel að koma til skila,
mér fannst þetta sms sem hann sendi
mér á kosninganótt – það er Bjarni
Ben og þannig á hann að vera. Þetta
er öflugur maður sem brennur eldur
í og ég hef mikla trú á honum. Hann
er „fokking“ flottur,“ segir Elliði hlæj
andi.
Stjórnmálamenn eins og tyggjó
Elliði segist ekki hafa búist við svo
miklum yfirburðasigri í kosningunum
síðustu helgi. „Ég átti ekki von á svona
stórum sigri. Ég vissi að okkur var að
ganga vel, ég vissi að við vorum að fara
verja meirihlutann. Sjálfstæðismenn í
Vestmannaeyjum voru búnir að vinna
gríðarlega hart í aðdraganda kosninga
og mér leið fyrst og fremst vel að sjá fé
laga mína upplifa sig sem sigurvegara
sem þeir sannarlega voru. Það er svo
gott og það er svo mikilvægt,“ segir
hann.
Elliði segist ekki óttast að honum
verði skipt út á næstunni. Reyndar
segir að honum sé alveg sama og von
ast til þess að festast aldrei í því að
verða háður starfi sínu. „Það er svo
auðvelt að vera óhræddur þegar mað
ur upplifir sig óhræddan við það sem
þarf að gera. Ég varð ekki til þegar ég
byrjaði í stjórnmálum. Ég var búinn
að vera til lengi áður en ég byrjaði í
stjórnmálum þó að fólk hafi kannski
fyrst þá vitað ég væri til þá var ég bú
inn að vera til lengi. Ég verð líka áfram
til þegar ég hætti í stjórnmálum. Og
komandi úr íþróttunum þá skil ég
leikreglurnar í pólitík og virði þær.
Ég hef gaman af því að tefla og tefli
mikið og það er ekkert langt á milli
skáklistarinnar og þeirra reglu að
vera í stjórnmálum. Grunnreglan er
kannski ekki jafn háfleyg og skák
in. Grunnreglan í stjórnmálum er að
stjórnmálamenn eru eins og tyggjó.
Stjórnmálamenn eru ekki nautasteik,
þú getur borðað nautasteik og þú
manst lengi eftir henni. Stjórnmála
menn eru eins tyggjó, þeir eru tuggðir
meðan það er bragð af tyggjóinu, svo
hendir fólk tyggjóinu og það hugsar
ekkert meira um það. Það þýðir ekk
ert fyrir mig sem stjórnmálamann
að taka því persónulega þegar að því
kemur að mitt bragð verður búið. Þá
fer ég bara að gera eitthvað annað.
Þetta eru grunnreglurnar, að það má
enginn í stjórnmálum líta á það sem
eitthvað persónulega höfnun eða sitt
persónulega tap þegar fylgið verð
ur lítið. Það er ekki þannig heldur er
bragðið kannski bara aðeins að dofna.
Þá er fólki bara skipt út,“ segir hann
ákveðinn.
Lífið er hlaðborð
„Það er hættulegt þegar fólk verður
háð sínum pólitísku stöðum. Það sem
gerist þá er að það fer að hugsa hvað
vill fólk heyra, hvað það sé sem fólk
vilji að það geri og þá hættir fólk að
vera trútt sjálfu sér. Þá hættir fólk að
þora að taka slaginn og hættir að hafa
frelsið til að gera mistök. Og það hlýt
ur að vera hroðaleg staða fyrir stjórn
málamann að lenda í þegar þetta fer
að verða vinnan þeirra. Ég verð rosa
lega hissa ef ég á einhvern tímann
eftir að lenda í þeirri stöðu að upplifa
mig háðan þessu. Ég vinn mér ekki
auðveldara verk en að hætta í pólitík
og fara gera eitthvað allt annað. Mér
fannst t.d. alveg ofboðslega gaman
að kenna og ég get alveg hugsað mér
að fara starfa í sálfræði. Ég myndi líka
vera í námi alla ævi ef einhver myndi
borga mér fyrir það. Ég veit ekkert
hvað framtíðin ber í skauti sér og kvíði
engu. Lífið er svo mikið hlaðborð –
maður er aldrei háður því að borða
einn rétt,“ segir hann. n
Áhugasamur um fólk Elliði segist hafa ótrúlega mikinn áhuga á fólki. Þegar hann var við nám í Danmörku voru nágrannar hans vændis
konur og heimilislaust fólk og segist hann hafa lært mikið af því. Mynd SiGTRyGGuR ARi
„Ég hef alltaf
lifað mjög
áhyggjulausu lífi