Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 37
Lífsstíll 37Helgarblað 6.–9. júní 2014
17 daga kúrinn
M
egrunarbransinn er risa
atvinnugrein enda er til
aragrúi af alls kyns fræð-
um, bókum og fæðu-
bótarefnum sem lofa
skyndilausnum. Staðreyndin er
hins vegar sú að leiðin að heil-
brigðari líkama þarfnast vinnu og
aga. Skyndilausnir springa fljótt
í andlitið á okkur auk þess sem
margir kúrar eru hreint og beint
hættulegir.
Ágæti 17 daga kúrsins hefur ekki
verið vísindalega sannað en höf-
undur hans, Michael Rafael Mor-
eno, staðhæfir að hann sé hættu-
laus. Hér er stutt úttekt en hægt er
að lesa meira um 17 daga kúrinn
á vefsíðunni webmd.com. Mundu
bara að tala við heimilislækni áður
en öfgafullar breytingar á lífsstíl eru
framkvæmdar.
Fjögur tímabil
17 daga kúrinn er byggður á bók
Michaels Rafaels Moreno The 17
Day Diet: A Doctor's Plan Designed
for Rapid Results sem kom út árið
2011. Kúrinn skiptist í fjóra 17 daga
hringi sem verða til þess að rugla
líkamann í ríminu svo hann ríg-
haldi ekki í allar kalóríur.
Fyrsta tímabilið,Stigið á bens-
ínið (e. Accelerate), snýst um að
lækka kalóríuinntöku niður í 1.200
á dag, minnka sykurát og einbeita
sér að betri meltingu. „Á þessum
tíma léttistu mest – þótt mest af
þyngdartapinu sé vatn,“ segir Mor-
eno.
17 dögum síðar er komið að
næsta skeiði átaksins sem nefnist
Gangsetning (e. Activate). Á þessu
tímabili áttu að skiptast á að halda
áfram með 1.200 kalóríur á dag og
borða kalóríuríkari mat til þess að
endurbyggja efnaskiptin. Sam-
kvæmt Moreno er algengt að missa
2–3 kíló á öðrum hring.
Þriðji hringurinn, Framkvæmd
(e. Achieve), hefst 17 dögum síðar.
„Á þessu tímabili skaltu einbeita
þér að heilbrigðum matarvenjum
til að missa 1 kíló í viðbót,“ útskýr-
ir Moreno.
Fjórði og síðasti hringurinn, Slá í
gegn (e. Arrive), er viðvarandi. „Þú
viðheldur þyngd þinni með því að
borða hollan mat á virkum dögum
en leyfa þér meira um helgar.“
Hreyfing og sukk um helgar
Líklega virkar kúrinn, allavega ef
þú heldur þig við planið og hreyf-
ir þig jafn mikið og kúrinn ætlast
til af þér. Þótt þú megir fá þér eitt-
hvað óhollt um helgar máttu samt
ekki missa þig í kökunum. Engin
rannsókn hefur þó staðfest að kúr-
inn virki.
Hreyfing er aðalatriðið í 17 daga
átakinu. Í fyrsta og öðrum hringn-
um áttu að ganga í 17 mínútur á dag.
Á þriðja skeiðinu áttu að hreyfa þig
hraustlega í 40–60 mínútur flesta
daga vikunnar. Á síðasta tímabilinu
skaltu hreyfa þig í klukkutíma um
helgar en halda áfram að hreyfa þig
á virkum dögum.
Moreno segir kúrinn hættu-
lausan en ítrekar að allir sem ætla
að gjörbreyta lífsstíl sínum ættu að
ráðfæra sig við lækni. n
1. hringur
Morgunmatur
n Tvær hrærðar eggjahvítur
n ½ greip eða annar ferskur ávöxtur
n 1 bolli grænt te
Hádegismatur
n Stórt grænt salat með túnfiski, smá
ólífuolíu yfir og tvær matskeiðar af
balsamediki.
n 1 bolli grænt te
Kvöldmatur
n Grillaður kjúklingur
n Hreinsandi grænmeti (á borð við
þistilhjörtu, brokkolí, eggaldin, grænar
baunir).
n 1 bolli grænt te
Snakk
n 180 ml sykurlaus jógúrt með 1–2 tsk.
af sykurlausri sultu
n 1 ávöxtur (sykurlítill á borð við epli,
ber, greip, perur eða vínber).
2. hringur
Morgunmatur
n 2 hrærðar
eggjahvítur
n ½ greip eða annar
ferskur ávöxtur
n 1 bolli grænt te
Hádegismatur
n Stór skál af kjúklingasúpu eða grilluð-
um kjúklingi með gufusoðnu grænmeti
n Meðalstór bökuð kartafla með 1 tsk. af
fitulausum sýrðum rjóma
n 180 ml sykurlaus jógúrt með ávaxta-
bragði
n 1 bolli grænt te
Kvöldmatur
n Grilluð steik
n Salat með 1 tsk. af ólífuolíu og 2 tsk.
af balsamediki
n 1 bolli grænt te
Snakk
n 1 bolli hindber með 1 bolla af sykur-
lausri jógúrt með ávaxtabragði
n Gróf brauðsneið með ½ bolla af gar-
banzo-baunum og gúrkusneiðum
3. hringur
Morgunmatur
n 1 sneið af ristuðu heilkornabrauði
n 1 soðið egg
n ½ greip
n 1 bolli grænt te
Hádegismatur
n Sesarsalat með
grilluðum kjúklinga-
bringum, 2 bollum af
dökku salati, grænmeti
og 2 tsk. af léttri dressingu
n 1 sneið af heilkorna ristuðu brauði
n 1 ferskur ávöxtur
n 1 bolli grænt te
Kvöldmatur
n Grilluð svínalund
n 1–2 bolli af blönduðu salati með 2 tsk.
af fitulausri dressingu
n 1 bolli grænt te
Snakk
n Jógúrt
n 1 frosin ávaxtastöng
4. hringur
Morgunmatur
n 2 hrærð egg
n 1 meðalstór pera
n 1 bolli grænt te
Hádegismatur
n Grillaðir hamborgarar
n Niðurskornir tómatar
n 1 bolli grænt te
Kvöldmatur
n Steikt grænmeti með kjúklingabitum
og 1 tsk. af ólífuolíu
n 1 bolli grænt te
Snakk
n 1 bolli fersk ber með 180 ml af
sykurlausri jógúrt
n 1 bolli grænt te
n Viltu missa 4,5–7 kíló á 17 dögum? n Ráðfærðu þig við lækni
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Kostir 17 daga kúrsins
n sveigjanlegur.
n næringarfræðilega öruggur.
n þú getur fengið þér uppáhalds-
pítsuna þína en aðeins um helgar.
n hraðvirk en um leið heilbrigð leið
að þyngdartapi án hungurtilfinningar.
n þú gætir misst 4,5–7 kíló á aðeins
17 dögum.
Gallar
n frekar dýr.
n þarfnast undirbúnings.
Dæmigerður matseðill
fyrir 17 daga kúrinn
Elskar þú pítsu? Samkvæmt Moreno
máttu fá þér pítsu eða annan uppáhalds-
skyndibita um helgar. Passaðu bara að
missa þig ekki gjörsamlega.
Kjúklingabringa Í 17 daga
kúrnum er mælt með mikilli
neyslu á mögru próteini.
Sólbruni og
krabbamein
Hvítar konur sem fá annars stigs
bruna af völdum sólar í fimm
skipti á meðan þær eru á aldrin-
um 15 til 20 ára auka líkur á því
að fá sortuæxli, sem er hættuleg-
asta tegund húðkrabbameins,
um 80%. Bandarísku samtökin
AACR, sem rannsaka krabba-
mein, greina frá þessu.
Rannsóknin leiddi í ljós að
hjá sama hópi aukast einnig
líkur á því að fá aðrar tegundir
húðkrabbameins um 68%.
Í tilkynningu um rannsókn-
ina er einnig bent á að eldra fólk
ætti auðvitað líka að passa sig,
því hættan eykst lítillega í hvert
skipti sem fólk kemst í snertingu
við sólina.
Þrír blóð-
foreldrar brátt
veruleiki
Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi
hafa gefið út að ný umdeild tækni
til að frjóvga egg konu með erfða-
efni úr þremur manneskjum sé
„ekki hættuleg.“ Þetta þýðir að
möguleiki sé á að í náinni fram-
tíð verði til börn sem erfi gen frá
þremur einstaklingum.
Tækninni er ætlað að minnka
líkur á því að barnið erfi „gölluð“
hvatberaerfðaefni frá móðurinni,
sem geta valdið fæðingargöllum
og sjúkdómum.
Tilraunir sem gerðar hafa ver-
ið hingað til benda til þess að
tæknin sé nógu örugg til að óhætt
sé að hefja tilraunir á mönnum,
en ekki er víst hvort bresk yfirvöld
komi til með að leyfa þær.
Egg í hárið
Öll viljum við hafa heilbrigt og
fallegt hár en það getur reynst
erfitt að ná því fram. Gott nátt-
úrulegt ráð til þess að ná fram
heilbrigði hársins er að nota
egg í hárið. Brjóttu egg í skál
eða bolla og makaðu því í hárið.
Settu það í þurrt hár og láttu það
vera í hárinu í 20 mínútur. Þetta
er kannski ekki geðslegasta fegr-
unarráðið en virkar vel til þess
að næra hárið. Síðan er egginu
skolað burt með köldu vatni. Það
sem skiptir svo höfuðmáli við að
halda hárinu góðu er að þvo það
reglulega en þó alls ekki of oft
því það getur haft þau áhrif að
hárið verði líflaust.