Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Síða 79
Helgarblað 6.–9. júní 2014 HM 2014 33
10 bestu
HM-þjóðirnar
DV skoðar hér 10 bestu HM-þjóðirnar frá upphafi en upplýs-
ingarnar voru fyrst birtar hjá vefritinu Bleacher Report. Til út-
skýringar eru þjóðunum gefin stig fyrir sigur- eða jafnteflisleiki í
keppninni, 1 fyrir jafntefli en 3 fyrir sigur. Þegar komið er í útslátt-
arkeppni fá liðin þrjú aukastig fyrir sigra. Ef til vítaspyrnukeppni
hefur komið telst sá leikur hafa endað með jafntefli þar sem
bæði lið fá eitt stig. Og ef einhverjar tvær þjóðir fá jafn mörg stig
þegar tekið hefur verið tillit til allra þessara þátta endar sú þjóð
fyrir ofan sem oftar hefur unnið HM. Ef jafnt er þar er tekið tillit til
stiga að meðaltali úr hverjum leik og loks ræður markatalan.
n Brasilíumenn bestir frá upphafi
n Svíar fulltrúar Norðurlandanna
1 Brasilía
Leikir: 97 Sigrar: 67 Töp: 15 Jafntefli: 15 Stig: 216
n Það kemur eflaust fáum á óvart að Brasilíumenn
eru besta HM-þjóðin. Liðið hefur 19 sinnum tekið þátt í
lokakeppninni, eða alltaf frá árinu 1930. Brasilíumenn
hafa einnig unnið keppnina oftast, eða fimm sinnum.
Eins og allir vita verður HM haldið í Brasilíu og verða
heimamenn, allavega í ljósi sögunnar, að teljast líklegir
til afreka.
2 Þýskaland
Leikir: 99 Sigrar: 60 Töp: 20 Jafntefli: 19 Stig: 199
n Þó að Þjóðverjar hafi verið sterkir í seinni tíð þóttu
Þjóðverjar ekki sigurstranglegir framan að. Liðið fékk
brons 1934 en svo liðu 20 ár liðu þar til Vestur-Þýskaland
vann HM árið 1954. Undanfarin 50 ár, ef undan er skilið
árið 1978 hafa þeir alltaf komist alla vega í 8-liða úrslit.
Það er einstakur árangur. Þessi stöðugleiki er ástæðan
fyrir því að Þjóðverjar hafa leikið flesta leiki á HM. Liðið
hefur þrisvar unnið mótið; 1954, 1974 og 1990.
3 Ítalía
Leikir: 80 Sigrar: 44 Töp: 15 Jafntefli: 21 Stig: 153
n Ítalir eru sigursælasta Evrópuþjóðin á HM en Ítalir
hafa lyft heimsmeistaratitlinum fjórum sinnum, síðast
árið 2006. Þrátt fyrir það verða Ítalir að gera sér að góðu
að vera í þriðja sæti á listanum. Ítalir unnu mótið tvisvar
í röð, 1934 og 1938, en í tuttugu ár þar á eftir komst liðið
ekki einu sinni upp úr riðlakeppninni. Ítalir unnu mótið
síðan árið 1982.
4 Argentína
Leikir: 70 Sigrar: 37 Töp: 20 Jafntefli: 13 Stig: 124
n Argentína er stórþjóð í knattspyrnuheiminum og hafa
ófáir leikir sem Argentínumenn hafa spilað verið ansi
eftirminnilegir. Liðið lék til úrslita árið 1930 en tók ekki
þátt í lokakeppninni á árunum 1934 til 1954. Síðan þá
hafa Argentínumenn alltaf verið sterkir þótt árangurinn
á undanförnum árum hafi valdið mörgum vonbrigðum.
Liðið varð heimsmeistari árið 1978 og aftur árið 1986 þar
sem Diego Maradona var í aðalhlutverki.
5 England
Leikir: 59 Sigrar: 26 Töp: 14 Jafntefli: 19 Stig: 97
n Það kann að koma sumum á óvart hvað Englendingar
eru ofarlega. Þó að Englendingar hafi ekki komist langt
á undanförnum heimsmeistaramótum hefur þeim
einungis tvisvar tekist að komast upp úr riðlakeppninni
frá árinu 1958. Englendingar hafa fengið 1,64 stig að
meðaltali úr hverjum leik sínum á HM. Af þeim þjóðum
sem spilað hafa 50 leiki eða fleiri á HM er England sú
þjóð sem tapað hefur fæstum leikjum, eða 14. Eini sigur
þeirra á HM kom aftur á móti árið 1966.
6 Spánn
Leikir: 56 Sigrar: 28 Töp: 16 Jafntefli: 12 Stig: 96
n Það er í raun ótrúlegt að Spánverjar séu ekki ofar á
listanum miðað við yfirburði þeirra í heimsknattspyrn-
unni á undanförnum árum. Spánverjar hafa einfaldlega
borið höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir frá árinu 2008
þegar þeir unnu Evrópumótið. Sigrinum fylgdu þeir eftir
í Suður-Afríku 2010 þegar þeir uðru heimsmeistarar. Frá
árinu 1982 hefur Spánn alltaf komist í lokakeppni HM en
til ársins 2010 olli frammistaða Spánverja nánast alltaf
vonbrigðum.
7 Frakkland
Leikir: 54 Sigrar: 25 Töp: 18 Jafntefli: 11 Stig: 86
n Frakkar hafa um langt skeið verið í hópi sterku-
stu þjóða heims. Stöðugleika hefur þó vantað; þeir
komust í undanúrslit 1982 og 1986 en liðið komst ekki í
lokakeppnina árið 1990 og 1994. Það reyndist Frökkum
erfitt að fylla skarðið sem Michel Platini og Alain Giresse
skildu eftir sig. Frakkar unnu þó eftirminnilegan sigur á
heimavelli 1998 en duttu svo á enn eftirminnilegri hátt
úr keppni 2002, með því að komast ekki upp úr riðlinum.
8 Holland
Leikir: 43 Sigrar: 22 Töp: 11 Jafntefli: 10 Stig: 76
n Ekkert lið hefur leikið oftar til úrslita á HM án þess að
vinna til verðlauna en Holland. Liðið komst í úrslit 1974,
1978 og 2010 en tapaði í öll skiptin. Holland hefur fengið
1,81 stig að meðaltali úr hverjum leik sínum á HM. Aðeins
þrjár þjóðir hafa fengið fleiri stig. En þar sem liðið hefur
ekki unnið til nægilega margra verðlauna telst Holland
áttunda sterkasta HM-þjóðin.
9 Úrúgvæ
Leikir: 47 Sigrar: 18 Töp: 17 Jafntefli: 12 Stig: 66
n Úrúgvæ var fyrsta þjóðin til að vinna HM, en það
gerðu þeir á heimavelli árið 1930. Þeir endurtóku leikinn
í Brasilíu 20 árum síðar. Síðan þá hafa Úrúgvæar ekki
unnið til verðlauna á HM, en komust þó nálægt því
árið 2010 þegar þeir töpuðu leiknum um 3. sætið gegn
Þjóðverjum. Hver veit nema Luis Suarez og Edinson
Cavani geti leitt þjóðina enn lengra á HM í Brasilíu og
unnið til verðlauna.
10 Svíþjóð
Leikir: 46 Sigrar: 16 Töp: 17 Jafntefli: 13 Stig: 61
n Svíar hafa um langt skeið verið í hópi sterkustu
knattspyrnuþjóða heims þótt þeir hafi aldrei gert
almennilega atlögu að HM-titli undanfarna áratugi, ef
árið 1994 er undanskilið þar sem Svíar höfnuðu í 3. sæti.
Liðið hafnaði í 4. sæti árið 1938 og náði í bronsverðlaun
árið 1950. Bestum árangri náðu Svíar þó árið 1958 þegar
þeir komust í úrslitaleikinn gegn Pele og félögum í
brasilíska landsliðinu en biðu lægri hlut.
einar@dv.is