Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 98

Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 98
98 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 FóLk TexTi: svava jónsdóTTir Birna íris Jónsdóttir, deildarstjóri UT­útlána hjá Landsbankanum. Birna Íris Jónsdótt­ir hefur unnið hjá Lands bankanum í tvö og hálft ár, fyrst sem deildar stjóri UT­hugbúnaðar og síðan sem deildarstjóri UT ­útlána. „Ég hóf störf hjá Landsbankan­ um í kjölfar skipulagsbreytinga árið 2011, kom fyrst inn sem faglegur stjórnandi yfir hugbún ­ aðargerð bankans og síðan sem stjórnandi yfir upplýsinga ­ tæknimálum útlánaferils hans. Í þessu felst að leiða áfram þá vinnu sem snýr að því að straumlínulaga, þróa og við ­ halda tæknilegri útfærslu á út lánaferlinu. Í deildinni eru 15 manns, forritarar, prófarar, verk ­ efnastjóri og gagnagrunnsfor­ ritarar og mitt hlutverk er að stýra verkefnum, taka þátt í for gangsröðun og leiða sýn deildarinnar bæði faglega og praktískt. Ég er svo heppin að fá að vinna með frábæru fólki sem skilar vel unnu verki og sýnir frumkvæði og útsjónar­ semi í öllum þeim lausnum sem það kemur að.“ Birna Íris segir að hún og samstarfsfólk sitt vinni mikið að því að hagræða í útlána ­ fer l inu, fækka handtökum og sjálf virknivæða. „Við skoðum mik ið uppbyggingu á ferlinu með straumlínulögun og sjálf ­ virknivæðingu í huga, bæði hvað varðar tæknilega útfærslu sem og í notkun. Þetta á bæði við um það sem við forritum sjálf sem og aðkeypt kerfi. Við sinnum mörgum spenn ­ andi verkefnum í upplýsinga ­ tæknimálum Landsbankans og vinnum að því að vera framúr skarandi og til fyrirmynd ­ ar á því sviði.“ Birna Íris hefur haldið fyrir lestra um hönnun og gerð hug búnaðar og stjórnun í hug búnaðardeildum, m.a. fyrir Lands bankann, Dokkuna og á alþjóðlegri ráðstefnu (Nordi­ CHI), en hún hefur auk þess setið í undirbúningsnefnd um fyrir ráðstefnur. „Ég tel gríðar­ lega mikilvægt að halda góðu sam starfi á milli fyrirtækja lands ins, háskólanna og hvers konar faghópa. Það leiðir af sér meiri gæði og tækifæri til nýsköpunar innan fyrirtækja og á svona litlu landi eins og Íslandi býður það upp á mikil tækifæri í framþróun og út færslu nýjunga, bæði tæknilegra nýjunga sem og nýjunga í stjórnun.“ Birna Íris hóf MBA­nám í Háskólanum í Reykjavík nú í haust. „Ég setti mér markmið um að fara í MBA­nám fyrir nokkrum árum og ákvað svo í sumar að það væri komið að því. Námið fer gríðarlega vel af stað, er krefjandi, prakt­ ískt og skemmtilegt. Það er svolítið skrýtið að setjast aftur á skólabekk í námsfögum þar sem ég hef enga reynslu, eins og í hagfræði og bókhaldi, og ég finn fyrir smávaxtarverkjum. En ég finn að þetta nám verður spennandi ferðalag.“ Birna Íris er með stóra fjöl­ skyldu – börnin eru fimm – og segir hún að frítíminn fari mikið í samvistir með þeim. „Ég hef aðeins verið að hlaupa og hljóp fyrsta maraþonið mitt í ágúst í fyrra. Svo er ég dugleg í ræktinni og stunda svolítið jóga. Nú í haust seldum við svo annan bílinn og nú ferðast ég til og frá vinnu á hjóli. Það er frábær ferðamáti og tekur mig styttri tíma að hjóla en að fara á bíl, finna stæði og allt sem því fylgir. Þar fyrir utan er hjólið bæði umhverfisvænt og hress­ andi og þessi stund sem ég á með sjálfri mér á hjólinu er afar dýrmæt og orkugefandi. Okkur fjölskyldunni finnst gaman að fara út úr bænum og í sveitina til að heimsækja ömmu og afa sem búa í Reyk­ holti. Svo gerum við einfalda hluti saman eins og að fara í göngutúr og í sund eða vera heima og elda saman.“ Fjölskyldan ferðaðist um Suðurland í sumarfríinu. „Við fórum í sumarbústað í Brekku­ skógi og vorum svo heilmikið í Reykholti hjá ömmu og afa en krakkarnir elska að vera í sveitinni og brölluðu margt og mikið.“ Birna Íris Jónsdóttir – deildarstjóri UT-útlána hjá Landsbankanum „Við höfum frá árinu 2010 unnið markvissar en áður var gert með fólki sem er í endur­ hæf ngu. Fólk á vinnumarkaði ávinnur sér rétt til greiðslna úr sjúkrasjóðum verka­ lýðsfé laga.“ Nafn: Birna Íris Jónsdóttir. Fæðingarstaður: Reykjavík, 14. janúar 1973. Foreldrar: Magnea Sigrún Jónsdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson. Fósturfaðir: Jónas G. Halldórsson. Maki: Baldvin A.B. Aalen. Börn: Halldór Ísak, 14 ára, Þórarinn Kári, 8 ára, og Þórhildur Saga, 5 ára. Tvær fósturdætur: Hrafnhildur Birta, 8 ára, og Birgitta Björk, 4 ára. Menntun: BS í tölvunarfræði, hálfn­ uð í meistaranámi í sömu grein. Er í MBA­námi. frjals_verslun_augl_titt_utlit.indd 1 11.3.2013 15:06:02
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.