Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 38
38 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
ón Gnarr hættir á toppn-
um, margt bendir til að
hann hefði náð kjöri aftur
sem borgarstjóri. Pólitískur
viðskilnaður hans er það
mikla tómarúm sem hann
skilur eftir en þrír stjórnmálamenn
munu keppast við að fylla það,
þeir Dagur B. Eggertsson, Halldór
Halldórsson og Björn Blöndal,
verði hann valinn sem leiðtogi
Bjartr ar framtíðar í kosningunum,
sem mestar líkur eru á. Björt
framtíð mælist núna með mesta
fylgi í borginni og samkvæmt því
er Björn Blöndal líklegastur sem
næsti borgarstjóri, eins og staðan
er núna. Nýleg könnun sýnir hins
vegar að flestir vilja sjá Dag B.
Eggertsson sem næsta borgarstjóra
og fær hann fylgi langt út fyrir
raðir Samfylkingar. Fjárhagslegur
viðskilnaður Jóns Gnarrs ein -
kenn ist hins vegar af mikilli
skuldaaukningu borgarinnar og
miklum fjárfestingum og því hve
skatttekjur Reykjavíkurborgar
hafa blásið út á hans vakt sem og
útgjöldin og eru þær hækk anir
umfram verðbólgu sé miðað við
árið 2010 þegar Jón varð borgar-
stjóri og oddviti meiri hlutans.
Besti flokkurinn og Sam fylkingin
hækkuðu útsvars pró sentuna úr
13,03% í 14,48%. Tekið skal fram
að 1,2% af þessari hækkun er
vegna lagasetningar um flutning
á málaflokki fatlaðs fólks frá ríki
til sveitarfélaga. Mestu munar
þó hvað launatekjur Reykvíkinga
hafa hækkað mikið á tímabilinu
en útsvarstekjur borgarinnar taka
mið af þeim. Andstæðingar Jóns
Gnarrs innan minnihlutans segja
að hann hafi haft lítinn áhuga á
fjármálum borgarinnar og reitt
sig algjörlega á aðstoðarmann
sinn Björn Blöndal í þeim efnum
sem og trausta embættismenn.
Þeir segja að stóra myndin sé
sú að fyrri meirihluti hafi gert
aðgerðaáætlun um að hækka ekki
útsvar og gjaldskrá borgarinnar í
kjölfar efnahagshrunsins. Engu að
síður hafi tekist að stýra borginni af
festu undir þeim kring umstæðum
og með rekstrarafgangi. Þeir segja að
vorið 2010 hafi útsvarið ekki verið
full nýtt og það hafi verið meðvituð
ákvörðun. Sem og að hækka ekki
gjaldskrá Orkuveitunnar vegna
efnahagslægðarinnar. Jón hafi hins
vegar ákveðið að fullnýta útsvarið
Jón Gnarr hættir í pólitík í vor og snýr sér að listagyðjunni aftur. Hann
hættir sem vinsæll borgarstjóri en býsna umdeildur. Hann skilur eftir sig
tómarúm á pólitíska sviðinu þar sem Dagur B. Eggertsson, Halldór
Halldórsson og líklegast Björn Blöndal munu keppast við að fylla rými
hans og setjast í borgarstjórastólinn. Jón getur gengið nokkuð sáttur frá
borði. Stuðningsmenn hans segja að fjárhagslega verði hans hugsan lega
minnst sem mannsins sem tók á fjárhagsvanda Orkuveitunnar. Skuldir
A-hluta borgarinnar hafa stóraukist í hans tíð, eða um 17 milljarða króna
á þremur árum og eru núna 65 milljarðar króna. Eiginfjárstaða A-hlutans
er hins vegar sterk; 84,5 milljarðar króna.
TexTi: jón G. Hauksson
Myndir: Geir ólafsson o.fl.
forsíðuMynd: fenGin Hjá borGinni, ljósMyndari eddi.
ForsíðueFni
Reykjavíkurborg:
v iðskilnaður
Jóns Gnarrs