Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 75
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 75
Fjóla Kristín Helgadóttir er starfsmannastjóri IKEA. Frjáls verslun spurði Fjólu hvenær
IKEA hlaut jafnlaunavottun VR
og hvaða þýðingu hún hefði
fyrir starfsfólk fyrirtækisins:
„Fyrirtækið hlaut jafnlauna-
vottun VR í apríl 2013. Það
var ákveðið að sækja um vott-
unina með það að mark miði
að efla innra starf okkar, traust
starfsmanna til fyrirtækisins
og ímynd okkar út á við. Til að
hljóta vottunina þurftum við
ekki að gera neinar breyt ingar á
kjörum og við getum verið stolt
af því. Við þurftum hins vegar
að skrásetja verk lags reglur og
ferla sem snúa að jafnréttisstefnu
okk ar, launaákvörðunum og
launavinnslu. Auk þess þurft um
við að samræma starfaflokkun
okkar við þá sem Staðlaráð
Íslands gaf út. Í raun var allt
í góðum farvegi fyrir en við
þurftum að gera verk lag skriflegt
og sýna fram á að við ynnum
eftir því með raun dæmum og
fyrirliggjandi gögnum. Það er
auðvitað stórt skref að hafa
hlotið vott unina þar sem hún
gefur skýr skilaboð um að orð
séu sýnd í verki með því að
sýna fram á að ekki eigi sér stað
mismunun innan fyrirtækisins
þegar kemur að launaákvörðun
eða verklagi sem snýr að
mann auðs- og launamálum.
Við lítum þó alls ekki svo á að
ferlinu sé lokið þar sem um
stöðuga vinnu er að ræða og
endurmat. Við komum sífellt til
með að endurmeta stöðu okkar
og ferla og rýna í hvernig við
getum gert betur þegar kemur
að jafnrétti. Hluti af því ferli
felur meðal annars í sér úttekt
af óháðum aðilum sem yfirfara
verklag okkar og gögn tvisvar
á ári. Fyrst og fremst lítum við
þó á vottunina sem ákveðinn
gæðastimpil sem við leggjum
okkur fram við að viðhalda, en
til þess þurfum við sífellt að
vera á tánum.
Í okkar augum styrkir vott -
unin enn frekar okkar IKEA-
anda, sem einkennist meðal
annars af jafnaðarhyggju, gagn -
kvæmri virðingu og heiðar -
leika.“
Stuðlað að jólaanda í húsi
Hvað er helst á döfinni hjá
fyrirtækinu?
„Eins og hjá öðrum fyrir-
tækjum í verslunar geiran um er
desembermánuður erilsamur.
Orka fyrirtækisins beinist fyrst
og fremst að viðskiptavinum
og áhersla er lögð á að stuðla
að jólaanda í húsi. Það gerum
við bæði með því að kynna
fallegar jólavörur og bjóða við-
skiptavinum upp á jólamat,
smákökusmakk og jólaglögg
í anda sænskrar menningar.
Eftir jólin fer útsalan svo á
fullt og þar á eftir taka við
þemabreytingar í versluninni
sem eiga sér stað fjórum sinn -
um á ári í takt við áherslur
hverju sinni. Það er því óhætt
að segja að alltaf sé nóg um
að vera í versluninni. Á þeim
árstíma þegar álag er minna er
aukinn kraftur settur í innra
starf hjá okkur. Þá fara ýmis
verkefni af stað sem stuðla
að innri uppbyggingu, for -
vörnum og liðsheildarvinnu á
vinnu staðnum. Þar má nefna
ýmiss konar fræðslu, nám skeið,
starfsmannasamtöl og starfs -
mannasamkomur, svo eitthvað
sé nefnt. Við erum annars
nokk uð lífræn skipulagsheild
sem kýs að hafa hlutina ekki of
formfasta. Það er því aldrei að
vita hverju okkur dettur í hug
að taka upp á eftir áramót til
að byggja reksturinn enn frekar
upp og efla vinnustaðinn okkar.
Það er nóg að gera á stóru
heimili og að mörgu að hyggja.
Það er því eins gott að vera
vel vakandi, rýna í þætti sem
betur mega fara í rekstri og
vinnuumhverfi og bregðast við
með viðeigandi leiðum.“
Fjör í jólamánuðinum
Hvernig er stemningin hjá
Ikeastarfsfólki í jólamán uð
inum?
„Hjá IKEA er líf og fjör í jóla -
mán uðinum en jólin byrjuðu
um miðjan október hjá okkur
þegar jólavörum var stillt upp
í verslun og hún fagurlega
skreytt af fagfólki okkar sem
starfar í útstillingadeild. Það
er mikil ös í versluninni allan
jólamánuðinn, brjálað að gera
á veitingastaðnum og ekki
hjá því komist að starfs menn
fái jólin beint í æð með jóla -
and anum sem svífur yfir á
þessum tíma. Á vinnu staðn um
er líka stöðugur jóla ilmur sem
kemur með hangi kjötinu og
kalkúninum af veit ingastaðn-
um, og líka smá kökunum og
jólaglögginu sem boðið er upp
á hér um helgar fram að jólum.
Þar fyrir utan höldum við fast
í hefðir sem stuðla enn frekar
að jólaanda í húsi með því að
bjóða upp á jólahlað borð fyrir
starfsmenn, jólaskreyt inga-
keppni og jólaglögg. Það er
því nóg um að vera, bæði til að
gleðja viðskiptavini og starfs-
menn.
Jafnaðarhyggja að leiðar
ljósi
Til gamans má geta að hjá
IKEA á Íslandi starfa nú um
250 manns, ýmist í fullu eða
hlutastarfi, sem sinna ólíkum
störfum í húsi. Hóp urinn
samanstendur af háskóla -
mennt uðum sérfræð ingum,
iðn menntuðum, ófag lærðum,
íslenskum, erlendum, konum
og körlum á aldrinum 18-73
ára. Kynjaskipting er jöfn og
eru jafnmargir kven- og karl -
stjórnendur hjá fyrirtækinu.
Þetta er okkur mjög mikilvægt
þar sem IKEA stendur fyrir að
„vera fyrir sem flesta“ og hefur
meðal annars jafnaðarhyggju
að leiðarljósi. Það að vera með
svo fjölbreyttan hóp af fólki
með ólíkan bakgrunn gefur
okkur enn frekari ástæðu til að
vera vel vakandi fyrir því að
mismunun eigi sér ekki stað hjá
fyrirtækinu.“
IkEa:
Vottunin styrkir IKEA enn frekar
„Kynjaskipting er jöfn
og eru jafnmargir kven-
og karlstjórnendur hjá
fyrirtækinu. Þetta er
okkur mjög mikilvægt
þar sem IKEA stendur
fyrir að „vera fyrir sem
flesta“ og hefur meðal
annars jafnaðarhyggju
að leiðarljósi.“
Jafnlaunavottun VR staðfestir að búið sé að kerfisbinda launaákvarðanir hjá IKEA, koma upp jafnlaunakerfi samkvæmt kröfum
ÍST85:2012-jafnlaunastaðals og að nú verði markvisst fylgst með því að starfsfólki verði ekki mismunað í launum eftir kyni.
TexTi: jón G. Haukson / Myndir: Geir ólafsson ofl.