Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Íslenska gámafélagið hóf starfsemi árið 1999 og eru umhverfismál rauði þráðurinn í starfseminni.
Á meðal verkefna er almenn
sorphirða m.a. fyrir sveitarfélög
víða um land, ráðgjöf á sviði
flokkunar og endurvinnslu,
götusópun, snjómokstur og
sláttur auk þess sem fyrirtækið
rekur véla- og tækjaleigu. Þá
starfrækir fyrirtækið bílaverk -
stæði þar sem settur er met -
an búnaður í bíla ásamt því að
framleiða lífdísel.
Æ fleiri nýta sér þá þjónustu
sem og upplýsingar og aðstoð
um hvernig haga megi málum
í sem bestri sátt við umhverfið
og að fjárhagslegur ávinningur
náist.
Fyrirtækið er með starfs -
stöðv ar víða um land, sér um
þjónustu á flestum mót töku -
stöðvum Sorpu og starfar fyrir
um 3.000 önnur fyrirtæki.
Markmið Íslenska gáma fé -
lagsins er að halda áfram að
vera fremst sorphirðufyrirtækja
í ráðgjöf og auka enn frekar
nýtni hráefna til flokkunar,
vera öðrum fyrirtækjum
fyrir mynd hvað samfélagið
og umhverfið varðar og að
styrkja Endurvinnsluþorpið í
Gufunesi og laða þannig til sín
sprotafyrirtæki á sviði endur -
vinnslumála.
Fyrirtækið er fyrst sorp hirðu -
fyrirtækja hér á landi til að
innleiða umhverfis- og gæða -
staðlana ISO 14001 og ISO 9001.
250 manns vinna hjá fyrir -
tækinu. Starfsmenn eru frá
níu þjóðlöndum en erlendir
starfs menn eru um sextíu.
Yngsti starfsmaðurinn er á
ungl ings aldri en sá elsti um
sjötugt. Hlutfall kvenna innan
fyrirtækisins er um 11% og eru
tvær konur í fram kvæmda -
stjórn inni þar sem karlar eru sjö
talsins. Fyrirtækið fékk verð -
laun VR sem Fyrirtæki ársins
2010 og 2011 og var valið Fyrir -
myndarfyrirtæki ársins 2012.
rökstuðningur og skjal
festing
Engin kona hafði verið í stjórn -
unarstöðu hjá fyrir tæk inu
þegar Helga Fjóla Sæm unds-
dóttir hóf þar störf árið 2007
sem fram kvæmda stjóri starfs -
manna sviðs.
„Ég fékk frjálsar hendur við
að innleiða mannauðsstefnu
hjá fyrirtækinu og vildi ég ýta
undir þann frábæran starfsanda
sem starfsmenn höfðu þegar
byggt upp. Það var ekkert
mann auðskerfi fyrir hendi og
fór ég í það að setja upp kerfi
sem hentaði rekstrinum. Með
kerfinu náum við að halda
utan um alla skjalstýringu, sem
er nauðsyn þegar kemur að
vottunum.“
ÍSLENSka GáMaFéLaGIð:
Jafnréttis- og fjölskyldustefna
Konur eru um 11% starfsmanna hjá Íslenska gámafélaginu og eru tvær konur í framkvæmdastjórn þar sem karlar eru
sjö talsins. Af 250 starfsmönnum eru um 60 af erlendu bergi brotnir. Mikil áhersla er lögð á mannauðsmál hjá Íslenska
gámafélaginu og má geta þess að fyrirtækið fékk verðlaun VR sem Fyrirtæki ársins 2010 og 2011 og var valið
Fyrirmyndar fyrirtæki ársins 2012.
TexTi: svava jónsdóTTir / Myndir: Geir ólafsson o.fl.
Svanhildur Sigurðardóttir samskipta og samfélagsstjóri og
elísabet einarsdóttir starfsmannastjóri.
jaFnLaunaVottun
Helga Fjóla Sæmundsdóttir. „Það sem hefur heillað mig við ís lenska
gámafélagið eru öflugir starfsmenn sem eru frumkvöðlar, einstakl
ingar sem hafa kjark til þess að láta verkin tala.“