Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 71
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 71
Engin kona hafði verið
í stjórn unarstöðu hjá
fyrir tæk inu þegar Helga
Fjóla Sæm undsdóttir
hóf þar störf árið 2007
sem fram kvæmda stjóri
starfs manna sviðs.
Konur eru 11% starfsmanna
eins og þegar hefur komið fram
enda segir Helga Fjóla að þetta
sé mikill karlavinnustaður.
„Fáar konur sækja um störf
utan skrifstofunnar en áhuginn
virðist ekki liggja í þessum
störfum hjá kvenfólki.“
Hún segir að konurnar í fyrir -
tækinu fái að vera „prinsessur“.
„Karlarnir koma mjög vel
fram við okkur og þrátt fyrir að
við séum í miklum minnihluta
finnst mér það ekki veikja stöðu
okkar. Það er mikið jafnræði
í fyrirtækinu og skipuritið er
flatt.“
Helga Fjóla, verðlaunahafi
stjórnunarverðlauna Stjórnvísi
2012, innleiddi svokallaða Fisk!,
Fish!-hugmyndafræði. „Hug-
myndafræðin byggist á því að
við höfum öll val um að velja
okkur jákvætt viðhorf. Lögð
er áhersla á að hafa gaman í
vinnunni, að við séum til staðar
hvert fyrir annað og lifum í
núinu með því að gera hvern
dag eftirminnilegan.“ Þá hefur
hún lagt áherslu á að byggja
mannauðsstefnuna á gleði og
jákvæðni en gleði er einmitt
fyrsta gildi fyrirtækisins.
Áhersla á fjölskylduna
„Mannauðsstefnan lýsir vilja
fyrirtækisins til að vera fram -
úrskarandi vinnustaður þar
sem metnaðarfullt starf er
unnið af jákvæðu, samstilltu og
ábyrgu fólki í anda jafnræðis.
Mannauðsstefnunni er ætlað
að tryggja starfsmönnum sem
best starfsskilyrði og mögu-
leika til að vaxa og dafna í starfi.
Við leggjum mikla áherslu á
fjölskylduna; en hverj um starfs -
manni fylgir heil fjöl skylda. Til
dæmis eru allar skemmt anir
innan fyrir tækisins haldnar
með fjöl skyldur starfs manna í
huga. Framundan er t.d. ljós -
myndanámskeið, pipar köku -
bakstur, jólaball fyrir börnin,
jólakaffi, jólahlaðborð og
skötuveisla.“
Helga Fjóla segir að oft geti verið erfitt að brúa bilið á milli
þjóðerna þar sem tungu -
málakunnátta sé misjöfn og geti
flækt samskipti en stjórnendur
reyna að koma til móts við
erlenda starfsmenn á ýmsan
hátt. „Við erum með ýmsa
viðburði þar sem tungumálið
skiptir ekki öllu máli. Þar má
nefna fótboltamót og keilumót
þar sem allir eru jafnir og
mikil barátta er um bikarinn.
Við njótum aðstoðar túlks við
fræðsluefni, fréttablað sem
fer á hvert heimili, námskeið
og þá þjónustu sem erlendir
starfsmenn þurfa.“
Ákveðinn sigur
Hvað jafnlaunavottunina
varðar bendir Helga Fjóla á
að það skipti alla starfsmenn
miklu máli að vita að þeim sé
ekki mismunað eftir kyni, aldri,
þjóðerni eða kynhneigð.
„Það var yndisleg tilfinn ing
þegar við fengum jafn launa -
vott unina að þurfa ekki að
gera neina leiðréttingu hvað
varðar launin. Það er ákveðinn
sigur og staðfesting á því að
við séum að gera rétt. Við
fengum einnig fyrsta skjalið
frá VR, sem var mikill heiður.
Ég er stolt af því að tilheyra
fyrirtæki sem hlaut fyrst fyrir -
tækja jafnlaunavottun VR.
Mér finnst mjög gaman en
einnig krefjandi að vera hluti
af fyrirtæki sem er tilbúið til
að vera leiðandi – hvort sem
það er á sviði jafnréttismála,
um hverfismála eða á öðrum
sviðum. Það sem hefur heillað
mig við Íslenska gámafélagið
eru öflugir starfsmenn sem eru
frum kvöðlar, einstaklingar sem
hafa kjark til þess að láta verkin
tala.“
„Það var yndisleg til -
finn ing þegar við feng-
um jafn launa vott unina
að þurfa ekki að gera
neina leiðréttingu hvað
varðar launin.“
íslenska gámafélagið fékk verðlaun Vr sem Fyrirtæki ársins 2010 og 2011 og var valið Fyrirmyndar fyrirtæki ársins 2012.