Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 69
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 69
lag ningar, gjaldþrotaréttar, á
skattasviði, flutningastarfsemi,
verktakafyrirtækja, fjarskipta -
fyrirtækja, svo fátt eitt sé
nefnt. Þá erum við mikið í
mál flutningi og samningsgerð
er nokkuð sem við komum
mikið að sem og samskipti við
stjórnvöld á ýmsum sviðum.
Þá höfum við verið að byggja
upp teymi á sviði orku- og
auðlindamála.“
Upphaf lögmannsstofunnar
LOGOS má rekja til ársins 1907
þegar Sveinn Björnsson, síðar
forseti lýðveldisins, opnaði
lögmannsstofu ásamt fleirum.
Rúmlega sjötíu starfa hjá lög -
mannsstofunni í Reykjavík
auk þess sem LOGOS rekur
lögmannsstofu í London þar
sem starfsmenn eru rúmlega
tíu. Guðmundur J. Oddsson
stýrir skrifstofunni í London
og hefur gert frá opnun hennar
árið 2006.
Þurftu engu að breyta
Nærri helmingur starfsmanna
hjá LOGOS í Reykjavík er
konur. „Það hefur verið mis -
munandi frá einum tíma til
annars hvernig hlutfallið er
þegar kemur að lögfræðingum
en núna eru karlmenn fleiri í
þeim hópi.“
Eigendur LOGOS eru nítján.
Helga varð meðeigandi fyrir
ellefu árum og var lengi vel
eina konan í eigendahópnum
en nú eru fjórar konur í þeim
hópi. „Þetta hlutfall mun
hækka þótt það taki einhvern
tíma eins og gengur og gerist.“
Helga tekur fram að hjá
LOGOS eigi konur jafnmikla
möguleika og karlar. „Mér
finnst mikilvægt að hér séu
bæði kynin við störf. Þetta er
klassísk karlastétt í sögulegu
samhengi þótt hún hafi verið
að breytast. Ég er því mjög
ánægð með að hafa fengið
staðfestingu á því að það er
enginn mismunur hjá okkur
hvað laun varðar eða annað
sem jafnlaunavottunin tekur til.
Svo lengi sem ég hef þekkt til
hjá LOGOS höfum við viljað
jafnræði á milli kynja, hvort
sem það er í launum eða öðru.
Okkur fannst jafnlaunavottun
VR skemmtilegt tækifæri til að
fá vegvísi í þeirri viðleitni og
staðfestingu á því að við séum
alfarið innan þeirra marka
sem við höfum lagt upp með
í gegnum árin. Niðurstaðan
var að laun og annað er snýr
að starfsmönnum er í því horfi
sem við viljum hafa en til
þess að fara í gegnum þessa
jafn launavottun þurftum við
nánast engu að breyta.
Það var heilmikil vinna að fara
í gegnum jafn launa vott unina og
þurfti að gera skoðanir á ýmsu
og úttektir en niðurstaðan var
mjög ánægjuleg og gott að fá
staðfestingu frá þriðja aðila á
því að við erum að gera rétt.“
Þó nokkurt brottfall
Helga var einn af stofnendum
Félags kvenna í lögmennsku
fyrir tíu árum. „Ég man að
fyrir tíu árum var ég ekki
viss um að það hentaði mér
að vera í félagi sem væri
sérstaklega ætlað konum.
Þá var horft til þess að það
þurfti jú að auka hlut kvenna
í lögmennsku og tryggja að
þær vildu vera í lögmennsku
vegna þess að brottfall
kvenna í stéttinni hefur verið
staðreynd. Svo skemmtilega
vill til að núverandi formaður
þess ágæta félags er einn af
liðsmönnum LOGOS. Auðvitað
tekur hver einstaklingur
ákvörðun fyrir sig miðað við
hvar áhugasviðið liggur en ég
held að það þurfi oft að hvetja
konur til dáða. Það er nokkuð
um að konur velji að fara í
eitthvað annað eftir að þær hafa
jafnvel byrjað í lögmennsku
og oft eru þetta mjög öflugar
konur. Lögmennskunni fylgja
oft langir dagar og það er ekki
sjálfgefið að allir lög fræð ing -
ar vilji velja sér þennan far -
veg. Hver og einn verður eðli
málsins samkvæmt að fylgja
eigin sannfæringu og áhuga -
sviði í starfsvali. En þetta
er skemmtilegt starf, nýjar
áskoranir á hverjum degi og
úr lausnarefni af ýmsu tagi sem
gaman er að takast á við og finna
lausnir á. Mæli því með starfinu
fyrir konur jafnt sem karla.“
Helga tekur fram að
hjá LOGOS eigi konur
jafnmikla möguleika
og karlar. „Mér finnst
mikilvægt að hér séu
bæði kynin við störf.“
Helga Melkorka Óttarsdóttir. „Svo lengi sem ég hef þekkt til hjá LOGOS höfum við viljað jafnræði á
milli kynja, hvort sem það er í launum eða öðru.“